Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Síða 18
18
Sveitarfélagið Hörgársveit hlaut Orðsporið
2018 – hvatningarverðlaun sem eru veitt á
Degi leikskólans 6. febrúar ár hvert. Hörgár-
sveit hlaut verðlaunin í ár fyrir að vera það
sveitarfélag sem státar af hæsta hlutfalli leik-
skólakennara sem starfa við uppeldi og
menntun leikskólabarna.
Samkvæmt lögum eiga að lágmarki tveir
þriðju, eða 66,66%, þeirra sem starfa við
uppeldi og menntun leikskólabarna að hafa
leyfisbréf til kennslu í leikskóla. Hlutfall leik-
skólakennara í leikskólanum Álfasteini í
Hörgársveit er 84 prósent og því vel yfir hinu
lögbundna lágmarki – og jafnframt það
hæsta hér á landi.
Efnt var til hátíðarhalda í leikskólanum
Álfasteini þann 6. febrúar sl. af þessu tilefni
og afhenti Þórður Árni Hjaltested, formaður
Kennarasambands Íslands, Orðsporið 2018.
Við verðlaununum tók Hugrún Ósk Her-
mannsdóttir, leikskólastjóri Álfasteins í Hörg-
ársveit.
Leikskólinn Álfasteinn
– með sól í hjarta
Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta-
og menningarmálaráðuneytinu, flutti ávarp.
Hún fór yfir sögu Dags leikskólans í stuttu
máli og ræddi mikilvægi þess að í leikskólum
sé metnaðarfullt og vel menntað starfsfólk.
Að ávarpinu loknu sungu leikskólabörnin í
Álfasteini fyrir gesti.
Heilsuleikskólinn Álfasteinn er eini leik-
skóli Hörgársveitar, hefur verið starfræktur í
22 ár og rúmar 32 börn. Leikskólastjóri er
Hugrún Ósk Hermannsdóttir og hefur hún
verið við stjórnvölinn nánast frá upphafi.
Einkunnarorð Álfasteins eru „Með sól í
hjarta“ og mikil áhersla er lögð á umhyggju
fyrir barninu.
„Skólabragurinn er jákvæður og nægur
tími gefst til að hlusta á börnin, leyfa þeim
að prófa sig áfram og sinna þeim öllum
persónulega. Því getur kennarinn upplifað
nánd og endurgjöf og fundið að starf hans
er mikils virði. Það er gaman og gott að
vinna og vera til á Álfasteini,“ segir Hugrún
Ósk.
Sjötta árið sem Orðsporið
er veitt
Orðsporið 2018 er veitt á Degi leikskólans,
6. febrúar, sem fyrr segir, en haldið var upp
á þennan dag í ellefta sinn í ár. Sjötti febrú-
ar er merkilegur dagur í íslenskri leikskóla-
sögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu
frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök
sín.
Markmið dagsins er að stuðla að jákvæðri
umræðu um leikskólastarf og beina athygli
fólks að því faglega og metnaðarfulla starfi
sem innt er af hendi í leikskólum dagsins á
degi hverjum. Þetta er sjötta árið sem verð-
launin eru veitt.
Fréttir
Hörgársveit hlaut hvatningar-
verðlaunin Orðsporið 2018
Frá afhendingu verðlaunanna, talið frá vinstri: Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara;
Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands; Hugrún Ósk Hermannsdóttir, leikskólastjóri
Álfasteins; Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar; Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga; Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og
Sigurður Sigurjónsson, starfandi formaður Félags stjórnenda leikskóla.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í
Þingeyjarsveit
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti við
gerð fjárhagsáætlunar ársins 2018, að skóla-
máltíðir við grunn- og leikskóla sveitarfé-
lagsins verði gjaldfrjálsar fyrir alla nemendur
skólanna árið 2018.
Í mötuneytum skólanna er boðið upp á
hollan og góðan mat, morgunmat, ávaxta-
stund og heitan mat í hádeginu, að því er
fram kemur á vefsíðunni www.641.is
Að sögn Dagbjartar Jónsdóttur, sveitar-
stjóra Þingeyjarsveitar, er þessi ákvörðun
sveitarstjórnar liður í að bæta velferð barna
og unglinga í sveitarfélaginu og hefur hún
mælst vel fyrir og íbúar lýst ánægju sinni
með þetta framtak.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.