Sveitarstjórnarmál

Ukioqatigiit

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Qupperneq 18

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2018, Qupperneq 18
18 Sveitarfélagið Hörgársveit hlaut Orðsporið 2018 – hvatningarverðlaun sem eru veitt á Degi leikskólans 6. febrúar ár hvert. Hörgár- sveit hlaut verðlaunin í ár fyrir að vera það sveitarfélag sem státar af hæsta hlutfalli leik- skólakennara sem starfa við uppeldi og menntun leikskólabarna. Samkvæmt lögum eiga að lágmarki tveir þriðju, eða 66,66%, þeirra sem starfa við uppeldi og menntun leikskólabarna að hafa leyfisbréf til kennslu í leikskóla. Hlutfall leik- skólakennara í leikskólanum Álfasteini í Hörgársveit er 84 prósent og því vel yfir hinu lögbundna lágmarki – og jafnframt það hæsta hér á landi. Efnt var til hátíðarhalda í leikskólanum Álfasteini þann 6. febrúar sl. af þessu tilefni og afhenti Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands, Orðsporið 2018. Við verðlaununum tók Hugrún Ósk Her- mannsdóttir, leikskólastjóri Álfasteins í Hörg- ársveit. Leikskólinn Álfasteinn – með sól í hjarta Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, flutti ávarp. Hún fór yfir sögu Dags leikskólans í stuttu máli og ræddi mikilvægi þess að í leikskólum sé metnaðarfullt og vel menntað starfsfólk. Að ávarpinu loknu sungu leikskólabörnin í Álfasteini fyrir gesti. Heilsuleikskólinn Álfasteinn er eini leik- skóli Hörgársveitar, hefur verið starfræktur í 22 ár og rúmar 32 börn. Leikskólastjóri er Hugrún Ósk Hermannsdóttir og hefur hún verið við stjórnvölinn nánast frá upphafi. Einkunnarorð Álfasteins eru „Með sól í hjarta“ og mikil áhersla er lögð á umhyggju fyrir barninu. „Skólabragurinn er jákvæður og nægur tími gefst til að hlusta á börnin, leyfa þeim að prófa sig áfram og sinna þeim öllum persónulega. Því getur kennarinn upplifað nánd og endurgjöf og fundið að starf hans er mikils virði. Það er gaman og gott að vinna og vera til á Álfasteini,“ segir Hugrún Ósk. Sjötta árið sem Orðsporið er veitt Orðsporið 2018 er veitt á Degi leikskólans, 6. febrúar, sem fyrr segir, en haldið var upp á þennan dag í ellefta sinn í ár. Sjötti febrú- ar er merkilegur dagur í íslenskri leikskóla- sögu því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmið dagsins er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og beina athygli fólks að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum dagsins á degi hverjum. Þetta er sjötta árið sem verð- launin eru veitt. Fréttir Hörgársveit hlaut hvatningar- verðlaunin Orðsporið 2018 Frá afhendingu verðlaunanna, talið frá vinstri: Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara; Þórður Árni Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands; Hugrún Ósk Hermannsdóttir, leikskólastjóri Álfasteins; Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar; Klara E. Finnbogadóttir, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Björk Óttarsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Sigurður Sigurjónsson, starfandi formaður Félags stjórnenda leikskóla. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Þingeyjarsveit Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2018, að skóla- máltíðir við grunn- og leikskóla sveitarfé- lagsins verði gjaldfrjálsar fyrir alla nemendur skólanna árið 2018. Í mötuneytum skólanna er boðið upp á hollan og góðan mat, morgunmat, ávaxta- stund og heitan mat í hádeginu, að því er fram kemur á vefsíðunni www.641.is Að sögn Dagbjartar Jónsdóttur, sveitar- stjóra Þingeyjarsveitar, er þessi ákvörðun sveitarstjórnar liður í að bæta velferð barna og unglinga í sveitarfélaginu og hefur hún mælst vel fyrir og íbúar lýst ánægju sinni með þetta framtak. Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.