Fréttablaðið - 08.09.2022, Qupperneq 1
Tæknifræðingur kveðst tapa
15-20 milljónum vegna nýrra
lífeyrissjóðslaga. Hagfræð-
ingur segir skattalega meðferð
í séreignarstefnunni óboðlega.
bth@frettabladid.is
LÍFEYRISSJÓÐIR Fjöldi Íslendinga
fær högg um næstu áramót er ný lög
frá Alþingi um lífeyrissjóði skerða
greiðslur frá Tryggingastofnun.
Hálfsjötugur tæknifræðingur
hjá Almenna lífeyrissjóðnum,
sem hefur greitt í séreignarsjóð frá
níunda áratug síðustu aldar, segir
nýju löggjöfina munu skerða áætl-
aðar tekjur hans um 15-20 milljónir
á 15 árum. Frádráttur frá almanna-
tryggingum éti upp lífeyri sem
hann hefði ella fengið frá Trygginga-
stofnun. Hann gagnrýnir hve þessar
skerðingar komi aftan að mönnum
og kynning hafi verið lítil.
Tæknifræðingurinn segist hafa
hugleitt að segja upp starfi sínu
vegna laganna og fara þegar á eftir-
laun. Fleiri sérfræðingar, svo sem
læknar, hafi stofnað til séreignar
með sama hætti og hann. Ef þeir
hætta störfum vegna skerðinganna
fylgi því af leiðingar. Kveðst hann
ætla að taka út séreignarsjóð þótt
það kosti milljónir í hátekjuskatt.
Sigríður Ómarsdóttir, skrifstofu-
stjóri Almenna lífeyrissjóðsins,
staðfestir að sjóðurinn hafi undan-
farið fengið töluvert af fyrirspurn-
um frá sjóðfélögum sem margir eigi
séreign sem ekki varð til af viðbót-
ariðgjaldi. Sjóðurinn hefur boðað
til upplýsingafundar í lok mánaðar.
„Þessar skerðingar hjá Trygg-
ingastofnun eru úr öllu hófi,“ segir
Ólafur Ísleifsson hagfræðingur og
doktor í lífeyrissjóðsmálum.
Með lagafrumvarpinu verður lög-
fest að lágmarksiðgjald til lífeyris-
sjóðs verður minnst 15,5 prósent
af iðgjaldsstofni í stað 12 prósenta
nú. Með því eru lögfest samnings-
ákvæði milli aðila vinnumarkaðar.
Í greinargerð segir að áhersla sé
á samræmt réttindakerfi á vinnu-
markaði og sjálf bært lífeyriskerfi.
Því þurfi hver kynslóð að standa
undir eigin lífeyrisréttindum.
Starfshópur lagði til að aldurstengd
ávinnsla réttinda yrði meginreglan í
og lífeyrisaldur yrði samræmdur. n
Þessar skerðingar hjá
Tryggingastofnun eru
úr öllu hófi.
Ólafur Ísleifsson,
hagfræðingur
2 0 2 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 8 . S E P T E M B E R 2 0 2 2
Vill að
Rússland falli
Spenna og kvíði
hjá Hr. Rokk
Menning ➤ 24 Lífið ➤ 28
... hjá okkur í
d
a
gH
já
b
ónda í gær ...
markaður
Bænda
um helgina!
á Heilsu- & lífsstílsdögum Nettó
Sigraðu innkaupin á
1.-11. sept. Ofurtilboð
og app-
tilboð alla dagana
50%
afsláttur
Allt að
Tapa tugmilljónum á nýrri skerðingu
Nemendur í Melaskóla hófu átakið Göngum í skólann í gær ásamt þeim Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra, Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Sigríði Björk
Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra. Krakkarnir í þriðja bekk gengu um hverfið til að hefja átakið, sem á að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HEILBRIGÐISMÁL Klíníkin í Ármúla
reiknar með því að geta rúmlega
tvöfaldað fjölda liðaskiptaaðgerða
sem hún gerir á hverju ári. Sam-
kvæmt viðtali Fréttablaðsins við
framkvæmdastjóra Klíníkurinnar
mun fjöldinn fara úr um 300 á ári
upp í 650. Sagði hann að aukningin
gæti orðið enn meiri með stækkun
húsnæðisins. SJÁ SÍÐU 4
Tvöfaldar fjölda
liðskiptaaðgerða
Sigurður Ingi-
bergur Björns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Klíníkurinnar