Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 16
Ég held að þetta verði
tímabilið þar sem þeir
(Valsmenn) lenda í
miklum vandræðum.
Logi Geirsson,
fyrrverandi
atvinnu- og
landsliðsmaður
16 Íþróttir 8. september 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 8. september 2022 FIMMTUDAGUR
Það er blásið til hátíðar hjá
íslensku handboltaáhugafólki
í dag en Olís-deild karla fer af
stað á ný. Valsmenn þykja lík-
legir til afreka en Logi Geirs-
son er ekki sannfærður. Fram
undan gætu verið snúnir
mánuðir þar sem reyna muni
á breidd leikmannahóps
meistaranna.
aron@frettabladid.is
HANDBOLTI Logi Geirsson, fyrrver-
andi atvinnu- og landsliðsmaður í
handbolta, telur að Valsmenn, sem
spáð er Íslandsmeistaratitlinum
karlamegin í handboltanum, gætu
átt erfitt uppdráttar á tímabilinu.
Tímabilið í Olís-deild karla fer
formlega af stað í dag og Logi segir
mörg lið geta blandað sér í bar-
áttuna um deildarmeistaratitilinn.
„Frá því að ég sökkti mér að
fullu í þetta fyrir um tveimur til
þremur vikum og fylgdist náið með
undirbúningi liðanna hefur mikið
breyst. Á þessum skamma tíma,“
segir Logi við Fréttablaðið.
„Á dögunum voru Haukar að fá
risa styrkingu í Andra Má Rúnars-
syni og það sem hefur gengið á
undanfarna daga hefur fengið
mig til að breyta spá minni fyrir
deildarkeppnina. Við skulum hafa
það í huga að ég spái þessu eftir því
hverjir mér þykir líklegastir til að
enda sem deildarmeistarar. Svo
Spáir krefjandi vetri fyrir Íslandsmeistarana
Snorri Steinn Guðjónsson hefur náð frábærum árangri sem þjálfari Vals. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
tekur úrslitakeppnin við sem er allt
annar handleggur.“
Logi dregur þá ályktun af stöð-
unni núna að Haukar endi í fyrsta
sæti, FH í öðru, Valur í þriðja og ÍBV
í fjórða sæti.
„Valur er á leið í Evrópukeppni
og þeirra breidd er ekkert eitthvað
rosaleg. Ég veit að þeir hafa verið að
raða inn titlum undanfarið og ég hef
hrifist af handboltanum sem liðið
spilar en ég held að þetta verði tíma-
bilið sem þeir lenda í miklum vand-
ræðum vegna þess að það eru svo
mörg rosalega sterk lið í kringum
þá.“
Sú breyting verður á komandi
tímabili Vals að liðið tekur þátt í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar og
með því koma meiri ferðalög, f leiri
leikir. Logi þekkir slíka stöðu vel
eftir tíma sinn sem atvinnumaður
og segir þátttöku í Evrópukeppni
hafa áhrif.
„Þetta hefur yfirleitt alltaf áhrif
og getur tekið taktinn úr liðunum
og þau misstíga sig oftar. Við vitum
að meira álag getur stuðlað að meiri
meiðslum.
Ef Valsmenn halda þetta út, ná
að halda þeim dampi sem þeir hafa
verið á undanfarin ár, þá væri það
kraftaverk. Ég er ekkert að grínast
með það. Geta þeir keyrt á þessum
mannskap í gegnum Evrópu-
keppnina og Olís-deildina, sem er
feiki sterk, og rúllað yfir hana? Þeir
voru rétt á undan Haukum undir
lok deildarkeppninnar á síðasta
tímabili og FH-ingar voru á toppn-
um þegar það voru fjórar til fimm
umferðir eftir.“ n
Nánar á frettabladid.is
POP UP
KEX HOSTEL
HEFUR OPNAÐ
MERKJAMARKAÐURINN STENDUR YFIR 8.-11. SEPTEMBER
11:00-18:00
SKÚLAGATA 28
*ásamt fleiri merkjum
- MERKI FYRIR MINNA -
MERKJAMARKAÐUR
allt að
60%
AFSLÁTTUR
herrar