Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 4
Þeir þurfa bara að borga sjálfir, en það eru ekki allir sem geta gert það. Sigurður Ingi- bergur Björns- son, fram- kvæmdastjóri Klíníkurinnar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 590 2323 THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00 VIÐURKENNT ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA FÓLKSBÍLA - HÚSBÍLA - VINNUBÍLA STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 SMURÞJÓNUSTA UMBOÐSAÐILI benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Komist íslenska kvenna- landsliðið í fótbolta á heimsmeist- aramótið gæti það tryggt KSÍ um 210 milljónir króna hið minnsta standi FIFA við loforðið um að tvö- falda verðlaunafé á mótinu. Á HM 2019 fengu lið 750 þúsund dollara, eða 106 milljónir króna, fyrir að komast á mótið en FIFA hefur stefnt að því að tvöfalda hið minnsta verðlaunapottinn fyrir HM á Nýja-Sjálandi og í Ástralíu á næsta ári. FIFA hefur hvorki gefið út upp- hæð verðlaunafjárins né upphæðir fyrir komandi HM. Eftir mótið 2019 sagði forseti FIFA, Gianni Infantino, að FIFA ætlaði sér að tvöfalda verðlaunafé hið minnsta og halda þróuninni áfram. Á HM 2015 var verðlaunaféð 15 milljónir dollara en það var tvöfaldað fjórum árum síðar. Samkvæmt svari KSÍ hefur verið gefið út að það verði umtalsverð hækkun fyrir HM 2023, en upphæðin hefur þó ekki verið staðfest. Á HM 2015 og 2019 voru 24 lið, en á HM 2023 fjölgar þeim í 32. Sigur- vegararnir árið 2019 fengu í sinn hlut fjórar milljónir dollara, rúman hálfan milljarð króna, en lið sem féll út í riðlakeppninni fékk 750 þúsund dollara. Það veltur svo á því hversu langt lið fer í keppninni hvað það fær stóran hluta af kökunni, segir í svari KSÍ. Á fundi í júlí, sem hafði yfir- skriftina Eitt ár í mót, sagði fram- kvæmdastjóri FIFA, Fatma Samoura, að stefnan væri að hafa verðlauna- pottinn allt að 100 milljónum doll- ara. „Við erum langt á eftir miðað við verðlaunaféð sem við munum sjá hjá körlunum í Katar en HM karla hófst 1930 en HM kvenna árið 1991. Þetta er níunda HM kvenna og við erum að sjá mikla aukningu í fjár- festingum í kvennaboltanum og það er bara tímaspursmál hvenær þetta verður jafnt,“ sagði hún. n Hundruð milljóna fyrir að komast á heimsmeistaramótið Þær Sveindís og Sara sögðust báðar eftir leikinn gegn Hollandi ætla sér á HM á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY lovisa@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Á þriðjudag var í fyrsta sinn haldinn samstöðufundur notenda vímuefna. Fundurinn var skipulagður af Matthildarsam- tökunum um skaðaminnkun en fundinn leiddu þeir Arild Knutsen og John Melhus frá The Association for Humane Drug Policies í Noregi. „Það myndaðist strax skipulag og ákveðnar hugmyndir um hvað þarf að ávarpa strax,“ segir Arild. Hann segir marga ólíka einstakl- inga innan hópsins en ef þeir standi saman náist fram breytingar. „Að okkar mati er mikilvægt að hópurinn skipuleggi sig eins og aðrir hagsmunahópar,“ segir Arild. n Samstöðufundur vímuefnanotenda Framkvæmda- stjóri segir að heilbrigðiskerf- ið eigi að snúast um hagsmuni sjúklingsins. MYND/AÐSEND benediktboas@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Hafnarfjarðarbær ætlar að endurhanna skilti fyrir akandi vegfarendur. Umhverfis- og framkvæmdaráð bendir á að skiltin sem fyrir eru gefi fátt til kynna og séu illsjáanleg vegfarendum. Séu ökumenn ekki kunnugir sé lítið sem bendi til að þeir séu í Hafnarfirði. Ráðið minnir á að bæj- armerkið Vitinn verði í öndvegi. n Stækka skilti og minna á vitann Ökumenn vita varla þeir séu að keyra um Hafnarfjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Eftir að húsnæði Klíníkur- innar var stækkað er hægt að framkvæma 650 lið- skiptaaðgerðir á ári. Áður réð hún aðeins við 300. Fram- kvæmdastjóri segir að það sé ekki aðeins efnað fólk sem komi til fyrirtækisins. sigurjon@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Klíníkin í Ármúla reiknar með að geta framkvæmt um 650 liðskiptaaðgerðir á ári, að sögn Sigurðar Ingibergs Björnssonar, framkvæmdastjóra Klíníkurinnar. „Við erum að gíra okkur í að tvö- falda hjá okkur af köstin, það er kominn annar bæklunarlæknir þannig að við getum farið að gera svona 650 aðgerðir á ári,“ segir hann. Áður hafði Klíníkin náð að fram- kvæma um 300 liðskiptaaðgerðir á ári, en með stækkun húsnæðis mun nást að fjölga liðskiptaað- gerðum enn frekar og jafnvel ráða enn annan bæklunarlækni, að sögn Sigurðar. „Það er af nógu að taka, eftir því sem við bætum fleiri læknum við, þá koma fleiri í aðgerðir. Þeir þurfa bara að borga sjálfir, en það eru ekki allir sem geta gert það,“ segir Sigurður. Hann vill meina að það sé misskilningur í umræðunni að einungis efnað fólk sæki til Klí- níkurinnar. „Það er ekkert þannig sem það er, þetta eru oft samskot hjá vinum og svoleiðis. Þetta er fólk í alvöru neyð sem kemst ekki í aðgerð.“ Sigurður segir það eina sem Klín- íkin geti gert sé að auka af kasta- getuna en hver eigi að borga það sé ákveðið af ríkinu. „Það er eitthvað sem ríkið getur tekið að sér og verð- ur eiginlega að leysa úr,“ segir hann. Klíníkin tvöfaldar þann fjölda sem hægt er að taka í liðskiptaaðgerðir Biðlistavandi sé eitthvað sem Klíníkin sé búin að tala um síðan 2017. „Markmiðið hlýtur að vera að koma fólki í aðgerð sem fyrst,“ segir Sigurður. „Þetta snýst ekki um að við séum að fara að leysa einhvern vanda hjá Landspítalanum, það getur aldrei verið sjálfstætt mark- mið. Vandamálið er ekki að það séu langir biðlistar á Landspítalanum, heldur að það er fullt af fólki sem fær ekki aðgerðir sem það þarf að kom- ast í,“ segir Sigurður. Það sé verkefni Klíníkurinnar að koma þessu fólki í aðgerð. Sigurður segir heilbrigðiskerfið snúast um hagsmuni sjúklingsins. „Við þurfum að reyna að einblína aðeins á sjúklinginn og hvað hann vantar, en ekki hvað tilteknar stofn- anir þurfa til að leysa úr sínum vandamálum.“ Fréttablaðið greindi í gær frá bið Ragnars Hilmarssonar grunnskóla- kennara eftir liðskiptaaðgerð. Hann hitti lækni í febrúar í fyrra, þá var honum sagt að biðtíminn væri eitt ár en gæti þó orðið styttri. Eftir ár hafi verið sagt að aðgerðin gæti fyrst orðið í sumar eða haust. Ákveðið var að skipt yrði um lið í vinstra hné á Ragnari nú í október. Við vinnslu fréttarinnar var reynt að ná sambandi við Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, aðstoðarmann hans og upplýsinga- fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins en þau svöruðu hvorki skilaboðum né símtölum. n 4 Fréttir 8. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.