Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 8. september 2022 Jason vissi fyrir fram að framlag hans vekti umtal. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY jme@frettabladid.is Segja má að listaheimurinn hafi farið á hliðina þegar listaverk, skapað með notkun gervigreindar, hlaut fyrstu verðlaun í Colorado State Fair myndlistarkeppninni í f lokki stafrænnar listar. Verðlaunin, sem námu um 42.000 krónum, runnu til Jason Allen sem knúði gervigreindina Midjourney til þess að skapa verk sem hann kallar Théâtre D’opéra Spatial, með einni setningu. Á meðan nýttu aðrir listamenn í f lokknum sér tölvuforrit á borð við Photoshop eða Illustrator við sköpun sinna verka. Allen sviðsetur undarlega en forvitni- lega fjarlæga framtíð í verki sínu þar sem mannverur glápa upp- numdar út um risastórt hringlaga op á útsýni sem minnir á sögusvið Dune eftir Frank Herbert. Tilvistarkreppa Ekki voru margir hinna listamann- anna sáttir við sigurvegarann. Allen sjálfur segir um sigurinn: „Ég held að listasamfélagið sé á leið í tilvistarkreppu … Stór ástæða fyrir því er … truflandi tækni opinnar gervigreindar.“ Allen óttast sjálfur að gervigreind muni hafa áhrif á skapandi störf í framtíðinni. Eric Holloway er á öðru máli. Hann segir að gervigreindin sé þjálfuð með notkun listaverka sem séu nú þegar til, og því sé hún líkleg til þess að framleiða myndir sem samsvara list sem nú þegar er talin góð. Hins vegar risti samsvör- unin ekki mjög djúpt. n Gervigreind hreppir verðlaun Lovísa Tómasdóttir fann sína hillu þegar hún fór að hanna og sauma sviðsfatnað fyrir dragdrottningar og búrlesk-dansara. Hún elskar glamúrinn, pallíett- urnar og glimmerið sem fylgir starfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eins og hrafninn sem sækir í glingur Lovísa Tómasdóttir klæðskerameistari elskar glamúr og glimmer. Hún hannar og saumar búninga fyrir sviðlistafólk eins og dragdrottningar og búrlesk-dansara. Verkefnin eru oft krefjandi enda skipta búningarnir miklu máli í sýningum kúnnanna. 2 ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.