Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 8
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Hljóðritasjóður
Auglýst er eftir styrkumsóknum í Hljóðritasjóð. Veittir eru
styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist.
Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.
Umsóknum og lokaskýrslum skal skilað rafrænt.
Hafi umsækjandi hlotið styrk áður þarf loka- eða
áfangaskýrsla að hafa borist sjóðnum til að ný umsókn
verði tekin til umfjöllunar. Framhaldsstyrkir eru ekki veittir
til verkefna sem áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum. Útgáfa
má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst
Hljóðritasjóði.
Umsóknargögn eru á rannis.is. Umsóknarfrestir eru tvisvar
á ári í mars og september.
Rannís, Borgartúni 30, sími 515 5838,
hljodritasjodur@rannis.is.
Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla
íslenska hljóðritagerð í tónlist til útgáfu.
Umsóknarfrestur er til kl. 15:00,
15. september 2022
magdalena@frettabladid.is
Guðrún Gunnarsdóttir, deildar-
stjóri heilbrigðisdeildar Fastus,
segir að fyrirtækið geti þjónustað
allar heilbrigðisstofnanir í landinu
en fyrirtækið starfar mikið á heil-
brigðissviði og sérhæfir sig í að
flytja inn heilbrigðisvörur og selja
til heilbrigðisstofnana. Fyrirtækið
er einnig einn af stærri innf lytj-
endum á vörum fyrir fyrirtæki sem
selur hótelum og veitingahúsum
stóreldhústæki.
Stærsta deildin er heilbrigðis-
deildin sem hefur vaxið með heil-
brigðisgeiranum í landinu.
„Þetta er frábært svið þar sem
okkar félag hefur þróast með fram-
þróun í lækningum. Við þurfum
alltaf að vera á tánum gagnvart
þróuninni og vera tilbúin að mæta
breyttri eftirspurn,“ segir Guðrún
og bendir á að mikill vöxtur sé fram
undan í Fastus og fyrirtækið stefni
að því að fjölga starfsfólki og auka
við þjónustuna enn frekar.
„Á næsta ári munum við f lytja
í stærra húsnæði sem gerir okkur
kleift að bæta við vöruúrvalið
okkar. Við stefnum aftur á móti ekki
á útrás að sinni og erum í stakk búin
til að veita úrvalsþjónustu fyrir nýja
spítalann sem nú rís.“
Fastus var stofnað árið 2006 og
störfuðu þá þrettán manns hjá fyr-
irtækinu en nú er fyrirtækið með 60
starfsmenn.
Guðrún hefur komið að stofnun
fjölmargra fyrirtækja, bæði hér á
landi og í Bandaríkjunum, en hún
hóf innflutning á heilbrigðisvörum
árið 1992.
„Á þeim tíma kom upp í hend-
urnar á mér umboð fyrir lækninga-
vörum og ég lagðist yfir allt sem
tengdist rekstri heilbrigðisfyrir-
tækja. En ég ákvað að prufa eitthvað
nýtt árið 1996 og flutti til Virginíu í
Bandaríkjunum og var þar í fimm
og hálft ár. En kom þá heim aftur og
hóf störf hjá A. Karlssyni.“
Í apríl 2006 urðu miklar breyt-
ingar hjá A. Karlssyni og ákvað
Guðrún að hætta og stofna Fastus
ehf. ásamt félögum sínum.
„Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið
mikið á hverju ári og við stofn-
endurnir seldum svo fyrirtækið til
ÍSAM og hafa nýir eigendur reynst
félaginu mjög vel,“ segir Guðrún.
,,Við seldum félagið 2014 en ég
fylgdi áfram með sem stjórnandi
og hlakka til að mæta í vinnuna á
hverjum degi.“ n
Stefna að því að auka vöruframboð
Þrjú íslensk nýsköpunar-
fyrirtæki hafa aflað erlendra
styrkja upp á ríflega tvo
milljarða króna á síðustu
vikum. Sérfræðingur sem
hefur unnið með íslenskum
frumkvöðlum um árabil segir
Ísland eiga mikið inni þegar
kemur að nýsköpun sem
tengist loftslagsvandanum.
Eitt vandasamasta verkefni nýsköp-
unarfyrirtækja er að tryggja nægi-
legt fjármagn til að þróa hugmyndir
sínar áfram. Anna Margrét Guðjóns-
dóttir, eigandi Evris, hefur aðstoð-
að íslenska frumkvöðla við að fá
erlenda styrki um árabil. Bara nú í
sumar hefur Evris haft milligöngu
um styrki upp á mörg hundruð
milljónir króna fyrir íslensk nýsköp-
unarverkefni á þróunarstigi.
„Þessi þrjú verkefni sem fengu
styrki í sumar, sem við áttum þátt
í að afla, hafa tryggt sér samanlagt
yfir 1,7 milljarða króna í styrki til
áframhaldandi þróunar. Eitt þeirra
fékk að auki vilyrði um hlutafé fyrir
allt að milljarð frá Evrópska fjár-
festingasjóðnum. Slíkir styrkir geta
skipt sköpum fyrir framtíð þessara
fyrirtækja.“
Til að af la slíkra styrkja þurfa
fyrirtæki að fara í gegnum flókið
umsóknarferli. Anna Margrét segir
íslensk fyrirtæki misjafnlega í stakk
búin til að fóta sig í þessu umhverfi.
„Erlendir styrkir, og þá einkum
evrópskir, eru mikilvægur stuðn-
ingur við fyrirtæki í nýsköpun og
geta skipt sköpum við að koma
íslensku hugviti á alþjóðamarkaði.
Verkefnin þrjú sem fengu styrki í
sumar eru allt frá tækjum til lækn-
inga til vindtúrbína. Svo er margt
fleira í pípunum sem gaman verður
að segja frá f ljótlega,“ segir Anna
Margrét.
„Við stofnuðum Evris fyrir tíu
árum en árið 2016 varð ákveðinn
vendipunktur í rekstri fyrirtækis-
ins þegar við hófum samstarf við
alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið
Inspiralia Group. Það samstarf
hefur síðan skilað gríðarlegum fjár-
munum og þekkingu inn í íslenskt
nýsköpunarumhverfi.“
Í dag segir Anna Margrét það vera
sitt hlutverk að finna fyrirtæki og
hugmyndir sem henta. Vakta þró-
unarsjóði, sóknaráætlanir lands-
hluta og raunar allt það sem snertir
umhverfi nýsköpunar hér á landi.
„Við erum sífellt að reyna að átta
okkur á því hvaða fyrirtæki eiga
möguleika á að fá styrki. Hvaða
hugmyndir eiga möguleika á að ná
flugi og höfða til fjárfesta. Með því
að vera hluti af þessu alþjóðlega
neti Inspiralia höfum við aðgang að
ákveðinni fagþekkingu og gáttum
inn á mikilvæga erlenda markaði.“
Anna Margrét segir Ísland enn
eiga mikið inni þegar kemur að
lausnum og verkefnum sem tengj-
ast loftslagsvandanum. „Ég myndi
vilja sjá Íslendinga setja enn meiri
fókus á verkefni sem miða að því
að draga úr losun. Þetta er svo
stórt alþjóðlegt verkefni og það
sem stjórnvöld um allan heim eru
að setja á oddinn. Við Íslendingar
höfum alla burði til að leggja okkar
lóð á þessar vogarskálar og hugsa
stórt.“Bestu fyrirtækin og bestu
hugmyndirnar eiga um þessar
mundir betri möguleika en áður á
að sækja um alla þessa alþjóðlegu
styrki sem bjóðast að mati Önnu
Margrétar. n
Ísland á mikið inni þegar kemur að nýsköpun
Anna Margrét
Guðjónsdóttir,
framkvæmda
stjóri Evris,
segir eftir miklu
að slægjast í
erlendu styrkja
umhverfi sem
tengist lofts
lagsmálum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars
@frettabladid.is
Guðrún Gunn
arsdóttir,
deildarstjóri
heilbrigðis
deildar Fastus,
segir að fyrir
tækið stefni að
því að flytja í
stærra húsnæði.
MYND/AÐSEND
Ég myndi vilja sjá
Íslendinga setja enn
meiri fókus á verkefni
sem miða að því að
draga úr losun.
Anna Margrét Guðjónsdóttir,
stofnandi Evris
8 Fréttir 8. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 8. september 2022 FIMMTUDAGUR