Fréttablaðið - 08.09.2022, Síða 22
Áslaug Saja Davíðsdóttir
lítur á vörur sínar sem eins
konar framlengingu á upp-
lifun okkar í náttúrunni sem
við berum með okkur í dag-
legu lífi. Hún hélt sýningu á
Ljósanótt í Reykjanesbæ um
síðustu helgi.
starri@frettabladid.is
Það er íslensk náttúra, með sínum
sterku línum, formum, litum og
gróðri, sem einkennir helst vör
urnar frá SajaArts en það er Áslaug
Saja Davíðsdóttir sem er á bak við
vörumerkið sem inniheldur meðal
annars trefla, klúta, töskur og
kodda. „Núna er ég helst að vinna
með skófir og lyng sem er einmitt
heiti nýju línunnar minnar, þar
sem gulir, grænir og svartir tónar
eru einkennandi. Þessir litir eru
sóttir til litsterkra skófa á fjöru
klettum og lyngsins umhverfis og
við strendur landsins. Alla daga tek
ég inn litbrigði daganna, náttúr
unnar, fegurðar hluta, litasamsetn
ingar og ég nota mikið ljósmyndun
til að fanga áhrif og form. Ég er
einnig áhugasöm um japanskar
blekteikningar og finnst mjög
gaman að mála með bleki en ég er
expressjónísk í munsturgerðinni
frekar en formföst.“
Góðar viðtökur á Ljósanótt
Áslaug hélt sýningu á hönnun
sinni á bæjarhátíðinni Ljósanótt
sem fór fram í Reykjanesbæ um
síðustu helgi. „Ljósanótt var mjög
skemmtileg og þar kynntist ég
fjölda fólks sem vildi forvitnast um
nýju vörurnar mínar. Margir gestir
keyptu frumgerðir og sýnishorn af
klútum, treflum og töskum. Við
tökurnar hafa verið framar vonum
og fólk talaði um sameiginlega
ástríðu sína á lággróðri og skófum í
náttúrunni og fagnaði því að verið
sé að vinna með okkar hrjóstruga
land og framleiða vandaðar vörur.“
Byrjaði snemma að skapa
Áslaug Saja segist vera náttúru
unnandi, skapandi frumkvöðull,
„sökker“ fyrir fegurð og einstaklega
athafnaglöð. „Ég kem úr listrænni
fjölskyldu og byrjaði snemma
að skapa og framleiða. Leiðin lá í
Textíldeild MHÍ, þar sem síðasta
árið var tekið í UIAH í Helsinki í
Finnlandi. Eftir útskrift hélt ég til
Ítalíu þar sem ég vann um sumar
í AlOver Studio sem var munstur
hönnunarstúdíó í borginni Como
sem er skammt frá landamærum
Sviss og Ítalíu. Á Ítalíu sá ég glæsi
legt handverk annarra hönnuða
verða að fallegum efnum.“
Eftir útskrift árið 1996 hélt Áslaug
Saja áfram að silkiþrykkja og mála
eigin munstur á efni. „Ég seldi klúta,
slæður, kodda og einnig skúlptúr
púða í Gallerí Listakoti og síðar í
Sneglu. Lengi vel seldi ég vinsæla
silkiþrykkta boli fyrir konur með
litríkum mynstrum en ég hef alltaf
verið óhrædd við að nota sterka
liti og form. Fyrirtækið Valfoss ehf.
hefur framleitt vörur með jóla
mynstrum eftir mig og er eitt í sölu
enn í dag, tæpum fimmtán árum
síðar.“
Margt í vændum
Fram undan hjá SajaArts er mót
Alltaf verið óhrædd við sterka liti og form
Áslaug Saja Davíðsdóttir er eigandi SajaArts. Hún hannar meðal annars trefla, klúta, töskur og
kodda. MYNDIR/AÐSENDAR
Snyrtitaska og stórt ullar- og silkisjal.
Elegant Lyng-
silkislæða og
taska í stíl.
Málverk sem
er frumgerð
eins af fjórum
mynstrum
línunnar Lyng og
skófir og tvær
stórar snyrti-
töskur.
Gular skófir á tösku sem hentar í
ræktina eða til daglegra nota.
Létt Lyng-silkislæða.
taka fyrstu sendingar af vönd
uðum eðalsilkiklútum í byrjun
október. „Þeir eru einmitt fram
leiddir í mekka silkiþrykksins sem
er Como á Ítalíu. Svo er áframhald
andi framleiðsla á fleiri tegundum
klúta og taska í stíl og spennandi
útfærslur fyrir heimilið. Ég hef
þegar hannað viðbót við vöru og
mynsturlínuna. En fyrst og fremst
vil ég að SajaArts verði þekkt fyrir
vandaðar og umhverfisvænar
vörur. Sjálf lít ég á vörurnar sem
eins konar framlengingu á upp
lifun okkar í náttúrunni sem við
berum með okkur í daglegu lífi.“
Hægt er að fylgja SajaArts á Insta
gram (@saja.arts) og á Facebook
(saja design). n
6 kynningarblað A L LT 8. september 2022 FIMMTUDAGUR