Fréttablaðið - 08.09.2022, Síða 34
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
KRAGELUND Aya K 129
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án
rafmagns.
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik
KRAGELUND Handrup
Liz Truss er 15. forsætis-
ráðherrann sem Elísabet II
skipar en sú fyrsta sem mátti
ferðast 1.000 kílómetra til
fundar við drottninguna, ekki
í Buckingham-höll, heldur
Balmoral-kastala. Þar mætti
drottningin með sína sígildu
Launer-tösku þótt hún þyrfti
aðeins að fara milli herbergja.
toti@frettabladid.is
Elísabet II Englandsdrottning hefur
nú tekið á móti fimmtán forsætis-
ráðherrum þjóðar sinnar á met-
löngum valdatíma og sjálfsagt hefur
Launer-handtaska dinglað á hægri
handlegg hennar á öllum þeim
fundum.
Nýjasti forsætisráðherrann mátti
gera sér ferð til Balmoral-kastala þar
sem heilsan leyfði drottningunni
ekki að fara til móts við Truss í
Buck ingham-höll.
Sérhönnuð Launer-taska
Athygli vakti að Elísabet mætti
Truss með handtöskuna sína góðu
á handleggnum. Alkunna er að hún
fer aldrei að heiman án töskunnar
og þar sem hún fylgdi með í við-
hafnarstofu kastalans á þriðju-
dag vaknaði enn á ný hin sígilda
spurning um hvaða nauðsynjar eru
í tösku drottningar.
Hún hefur áratugum saman
notað handtöskur frá Launer og
fullyrt er að hún eigi yfir 200 slíkar
en þrjú snið eru henni hugleikn-
ust; svört Royale úr leðri, svört,
nett Traviata (23x20x10 cm) til
ferðalaga og svo ein sérsniðin fyrir
hana. Hermt er að framleiðandinn
geri fimm töskur á ári fyrir drottn-
inguna sem leggur mikið upp úr
lengdum handföngum svo hún eigi
auðveldara með að heilsa fólki.
Krókur á móti bragði
Haft hefur verið eftir fólki úr innsta
hring drottningar og sérfræðingum
að í Launer-töskunni hafi hún ætíð
lítinn spegil, varalit frá Clarins,
blekpenna, lesgleraugu, jafnvel
snýtibréf og vandlega slétt-
aðan 5 punda seðil fyrir
samskot abau k inn í
sunnudagsmessunni.
Sumir vilja meina
að litlir hundar og
kettir, lukkugripir frá
barnabörnunum, séu
stundum í töskunni og
jafnvel fjölskyldumyndir
Leyndardómar Launer-skilaboðaskjóðunnar
Elísabet fór ekki langt til þess að hitta Truss en taskan góða var þó á sínum
stað á handlegg hennar. Engum sögum fer af því hvort drottningin hafi talað
til forsætisráðherrans með skilaboðaskjóðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
en þar hefur mynd af Andrési prins
að koma heill á húfi úr Falklands-
eyja stríðinu 1982 verið nefnd sér-
staklega.
Þá hefur sést til drottningarinnar
taka lítinn snaga með sogskálum
upp úr töskunni, bleyta hann með
munnvatni með nokkrum tilþrifum
og festa síðan undir borðplötur áður
en hún hengir töskuna
á hann.
Skilaboðaskjóðan
Taskan er drottningunni þó ekki
síst mikilvæg þar sem hún notar
hana sem skilaboðaskjóðu og gerir
með staðsetningu hennar starfs-
fólki vilja sinn ljósan svo lítið sem
ekkert beri á.
Setji drottningin til dæmis tösk-
una upp á borð yfir kvöldmat eru
það skýr skilaboð um að hún vilji
að borðhaldi ljúki á innan við fimm
mínútum. Láti hún töskuna á gólfið
vita hirðdömurnar að henni leiðist
samtalið og þeim beri að
bjarga henni frá því með
uppgerðarerindi. n
Klass-
ísk Traviata
er úr glansandi
kálfsleðri og kostar
almúgann 3.145 evrur
út úr búð, eða um
443.000 krónur.
Ferða-
snagi með
sogskál er líklega
það undarlegasta
sem drottningin
er sögð geyma í
töskunni.
Penni
er mikil-
vægur og þá
dugir ekkert
kúludrasl.
Elísa-
bet er
óspör á vara-
litinn og ku sér-
lega hrifin af
Clarins.
Ekki
fylgir
sögunni hvort
Polo séu myntur
drottningar.
26 Lífið 8. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 8. september 2022 FIMMTUDAGUR