Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 36
En ég er ekki viss um að minn Hr. Rokk sé nú jafn töff og Rúnar Júlíusson enda verður aldrei neinn nokkurn tímann jafn töff og hann. AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@ frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson leikur Hr. Rokk í íslensku dans- og söngvamyndinni Abbababb! Þar fetar hann í fótspor ekki minni spámanna en Rúna Júl. og Sigurjóns Kjartanssonar og segist jafn kvíðinn og hann er spenntur fyrir því að sjá sjálfan sig í hlutverkinu. toti@frettabladid.is Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson er spennur og kvíð- inn í senn fyrir frumsýningu bíó- myndarinnar Abbababb! í næstu viku en þar leikur hann Hr. Rokk og fetar þannig í fótspor Rúnars Júlíussonar og Sigurjóns Kjartans- sonar þótt hann fái um leið tæki- færi til þess að nálgast persónuna úr nýrri átt. „Það var bara brilljant að Nanna skyldi treysta mér fyrir hlutverk- inu,“ segir Eyþór um leikstjórann Nönnu Kristínu Magnúsdóttur sem veðjaði á hann í myndinni sem er sú fyrsta sem hún gerir í fullri lengd. „Þett a er u svo eng in smá fótspor að fara í. Rúnar Júlíusson lánaði náttúrlega Hr. Rokk rödd sína á upprunalegu plötunni og eftir að platan kom út var gerður söngleikur þar sem Sigur- jón Kjartansson var Hr. Rokk, sem er nú líka mjög töff.“ Gamalt vín á nýjum belgjum Dr. Gunni gerði barnaplötuna Abba- babb! í hálfgerðu bríaríi fyrir 25 árum við svo miklar vinsældir að áratug síðar sló söngleikurinn sem var byggður á henni hressilega í gegn og hlaut Grímuverðlaunin 2007 sem besta barnasýningin. Þá fylgdi bókin Abbababb! í kjölfarið og nú lifnar sagan aftur við í bíómynd. „Nanna byggir síðan þessa bíó- mynd lauslega á söngleiknum, þannig að þetta er kannski ekki alveg sama sagan,“ segir Eyþór. „En þetta byggir svona á þessu og lögin af disknum eru þarna og svoleiðis.“ Eyþór segir grunnhugmyndina þannig vera svipaða en allur pakk- inn sé þó tekinn nýjum tökum. Í skugga aðaltöffarans „Þannig að Hr. Rokk í þessari útfærslu allavegana er eiginlega pínu svona uppgjafarokkari. Hann er kennari og já, bara dálítið sér- stakur karakter. Litríkur persónu- leiki. En ég er ekki viss um að minn Hr. Rokk sé nú jafn töff og Rúnar Júlíusson enda verður aldrei neinn nokkurn tímann jafn töff og hann,“ segir Eyþór og hlær þegar hann tekur undir að það sé þó ekkert til að skammast sín fyrir að vera eftir- bátur Rúna Júl. í almennu töffi. Þá bætir hann, aðspurður, við að það hafi verið virkilega skemmti- legt að nálgast uppfærðan Hr. Rokk á sínum forsendum. „Jú, það var alveg ótrúlega gaman og ég er eigin- lega jafn kvíðinn og ég er spenntur að sjá þetta á tjaldinu,“ segir Eyþór ekki síst með mátulega lúðalegt yfirbragð þessa Hr. Rokk. „Ég held ég hafi aldrei litið verr út en á þessu augnabliki í lífinu.“ Draumur rætist Eyþór segir stemninguna við tök- urnar hafa verið virkilega skemmti- lega og sparar ekki hrósið þegar talið berst að ungum mótleikurum hans en eðli málsins samkvæmt eru krakkar í f lestum aðalhlut- verkunum. „Þetta var mjög gaman og krakk- arnir alveg frábærir. Ótrúlega fag- mannleg og flott og stóðu sig í raun- inni bara mikið betur en ég. Held ég. Ég dáðist alveg að þeim og það var bara gaman að fá að gera þetta og leika sér í bíó.“ Þótt Eyþór hafi komið víða við í skemmtanabransanum þá er Abba- babb! fyrsta alvöru bíómyndin hans og hann segir að þarna hafi í raun enn einn bernskudraumurinn verið að rætast. „Þetta er eitthvað sem maður lét sig dreyma um þegar maður var krakki. Ég var sko alltaf með vídeó kamerur að gera stuttmyndir og svona í gamla daga. Þannig að kannski má alveg líta á þetta þann- ig að þarna sé ég búinn að tikka í eitt draumaboxið. Að fá að gera alvöru bíómynd.“ n Gaman að vera Hr. Rokk Eyþór Ingi telur víst að hann hafi aldrei litið jafn illa út og í bráðskemmtilegu hlutverki Hr. Rokk. MYND/SKJÁSKOT toti@frettabladid.is Teiknigrínarinn og kvikmynda- nördinn Hugleikur Dagsson dustar rykið af hlaðvarpshljóðnemanum í tengslum við Alþjóðlegu kvik- myndahátíðina í Reykjavík með RIFF-kastinu þar sem hann mun kafa ofan í ólíka kima kvikmynda- gerðar og ræðir við sérfræðinga úr ýmsum áttum. Hátíðin er nú haldin í 19. sinn og að þessu sinni í Háskólabíói þar sem hún mun standa yfir frá 29. septem- ber til 9. október. RIFF-kast þætt- irnir verða sex og sá fyrsti kemur út í dag og síðan vikulega þar til hátíðinni lýkur. Elísabet Ronaldsdóttir er fyrsti gestur Hulla og mun útskýra kvik- myndaklippingu sem felur annað og meira í sér en bara að skera og líma. Ása Helga Hjörleifsdóttir, leikstjóri Svars við bréfi Helgu, verður í öðrum þætti en síðan tekur Hulli á móti Lovísu Láru Halldórs- dóttur, stofnanda einu íslensku h r yl l i ng smy nd a hát íða r i n na r, Páli Óskari Hjálmtýssyni, anima- tion-undrabarninu Gísla Darra og Andreu Björk Andrésdóttur sem hefur lifað það af að horfa á allar íslenskar kvikmyndir sem gerðar hafa verið. Þættirnir verða aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum. n Hulli tekur sex köst í röð Hugleikur Dagsson Rúni Júl. var hinn uppruna- legi Hr. Rokk. 28 Lífið 8. september 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA Fjölbreytt fréttaumfjöllun í opinni dagskrá fyrir fólkið í landinu. Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti til að ræða helstu mál líðandi stundar. Þátturinn er sýndur á Hringbraut og frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.