Íslenzkur iðnaður

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Qupperneq 5

Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Qupperneq 5
íslenzkur iðnaður 3 Töjld * Saumum T J ö L D af öllum stærðum og gerðum. — Höf- um ávalt fyrirliggjandi fjölda stærðir og margar gerðir. — * GE YSIR, veiðarfæra vers/un. — Hvað þýðir okkur að vera að keppa við er- lendan stóriðnað? Hvað þýðir okkur, með okkar dýra vinnukrafti og rúml. 120 þús. sálna mark- aði, að ætla að keppa við milljónaþjóðir? — Það skal fúslega játað, að því eru tak- mörk sett, hvað hér er hægt að framleiða. En innan þessara takmarka eru þá einnig geysileg- ir möguleikar. Það gera sér ekki allir grein fyrir því, að fjöldi af þeim erlendu iðnfyrirtækjum, sem hafa selt hingað framleiðslu sína, eru smá- fyrirtæki — fyrirtæki, sem myndu þakka fyrir að hafa 120 þús. sálna markað. Það er engin skynsamleg ástæða fyrir því, að við getum ekki keppt við þessi fyrirtæki. Það ræður að líkum, að ýmsum byrjunarörð- ugleikum verður að ryðja úr vegi, áður en iðn- aðurinn verður fastur í sessi. Tollakerfið hefir enn ekki verið lagað eftir þörfum og sanngirniskröfum iðnaðarins. Þannig á það sér ennþá stað, að ýms hráefni eru tolluð margfalt hærra en erlendar framleiðsluvörur. — Það má hér geta þess, að nú situr á rökstólum milliþinganefnd, sem á að koma þessu í lag. — Það fé, sem þjóðin ver til styrktar iðnaðinum á meðan hann er að koma undir sig fótunum, fær hún margfalt endurgoldið. Það er um tvent að velja: Að hlúa að iðnaðinum eftir beztu getu, þannig að hann verði þess megnugur að skapa hér fjölbreytt athafnalíf ellegar að bregða fyrir hann fótum og skipuleggja víðtæka atvinnubóta- vinnu eða koma á atvinnuleysisstyrkjum. Mjög örðugur hjalli á vegi iðnaðarins er skortur á rekstursfé. Bankarnir hafa önnur hlut- verk og eiga fullt í fangi með landbúnað og sjáv- arútveg. Hér þarf að koma iðnaðar- og verzlun- arbanki. — Sjávarútvegurinn skipar og á að skipa öndvegissessinn í búskap þjóðarinnar. En það þurfa að renna fleiri stoðir undir athafnalíf landsmanna. Á sama tíma sem landbúnaður og .sjávarútvegur hafa dregið saman seglin, hafa þjóðinni opnast dyr inn í heim fjölbreyttari fram- leiðsluhátta. Þetta er stórkostlegt spor í atvinnu- þróun Islendinga, sem hefir aukið trú allra hugs- andi manna á framtíðarmöguleikum þjóðarinn- ar. Pétur Ó. Johnson.

x

Íslenzkur iðnaður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenzkur iðnaður
https://timarit.is/publication/1690

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.