Íslenzkur iðnaður - 01.12.1938, Qupperneq 17
íslenzkur iðnaður
15
DÓSAVERKSMiÐJAN H.F
Smíðum dósir og brúsa úr blikki í margs
konar litum og undir hverskonar efni sem
er, svo sem fyrir niðursuðuvörur allskon-
ar, málningarvörur, bón og skósvertu,
creme, smurfeiti o. fl. o. fl. —
Einasta blikkumbúðaverksmiðja landsins.
Unnið með sjálfvirkum vélum af full-
komnustu gerð.
DÓSAVERKSMIÐJAN H.F
S í m i 2 0 8 5.
ör, er með öllu óvíst, og sömuleiðis hvort hægt
muni vera að ,,aðstoða“ náttúruna við þessa
myndun. Margt bendir þó til þess, að myndunin
sé nokkuð ör og ennfremur, að „aðstoð“ við nátt-
úrlega myndun brennisteinsins muni ekki verða
árangurslaus. Á næstu árum verður þetta rann-
sakað til hlýtar.
Brennisteinninn, sem finnst í námunum, er
ekki hreinn. í honum eru, auk vatns, 10—15%
af óhreinindum, aðallega kísilsýru. — Brenni-
steinninn óhreinsaður er óseljanlegur. Það er því
tilgangur þeirrar verksmiðju, sem nú er verið að
byggja uppi við Reykjahlíðarnámur, vestanvert
við Námaskarð, að hreinsa þann brennistein
fyrst og fremst, sem finnst í Reykjahlíðarnám-
um. Ef sá rekstur borgar sig, er fyrirhugað að
hagnýta einnig þann brennistein, sem finnst á
öðrum stöðum í Þingeyjarsýslu. Er líklegast, að
hann verði þá fluttur óhreinsaður að verksmiðj-
unni við Námaskarð og hreinsaður þar.
Verksmiðjan, sem nú verður byggð, á að vinna
500—600 tonn af hreinum brennisteini á ári.
Ef rannsóknir næstu ára staðfesta að einhverju
leyti þær vonir, sem gerðar eru til þess magns
af brennisteini, sem nú liggur í námunum og enn
fremur til myndunar á nýjum brennisteini, er það
líklegt, að þessi verksmiðja verði stækkuð fljót-
lega.
Allur sá brennisteinn, sem unninn verður í
þessari verksmiðju, verður fluttur út frá Húsa-<
vík.
Ef engin óhöpp koma fyrir, er gert ráð fyrir,
að verksmiðjan geti tekið til starfa í aprílmán-
uði næstkomandi.
Jón E. Vestdal.