Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Blaðsíða 75
75
ería, sem lifa á rótum jurtanna og mynda þar sérkenni-
leg æxli, safna þær köfnunarefni úr andrúmsloftinu, sem
notast þeim sjálfum til vaxtar, ennfremur þeim gróðri,
sem með þeim er ræktaður og eykur köfnunarefnisforða
jarðvegsins. Vanti réttar rótarbakteríur í jarðveginn, þarf
að smita hann eða fræ belgjurta þeirra, sem sá skal, með
viðeigandi bakteríugróðri um leið og sáð er. Smita skal
rétt áður en sáð er og smituðu fræi þarf að sá í þykk-
viðri eða að næturlagi og herfa strax niður. Smitun er
ekki nauðsynleg, hafi belgjurtir, sömu tegundar og þeirrar
sem sá skal, nýverið vaxið i jarðveginum og borið greinileg
rótaræxli. Fóðurbelgjurtir hafa mesta þýðingu í blöndu
með öðrum jurtum, svo sem grastegundum.
Fóðurbelgjurtirnar eru bæði fjölærar og einærar. Af
fjölærum tegundum er það einkum. hvítsmárinn, sem
getur haft mikla þýðingu í okkar varanlega graslendi og
sé hann notaður, er hæfilegt að í fræblöndunum séu 40%
af smárafræi. Hvítsmárafræi má líka sá í gróið land með
góðum árangri. Bezt er þá að sá snemma, um 20 kg. af
smárafræ á ha., hylja fræið með myldnum áburði eða
mold, herfa með ávinnsluherfi og valta. Smitun er
ekki nauðsynleg sé slæðingur af villtum smára í landinu.
Smárasléttur þarf að slá snemma, einkum. fyrstu árin.
Þær þola ekki mikinn köfnunarefnisáburð.
Einærar fóðurbelgjurtir, ertur og flækjur, gefa hér,
ræktaðar með höfrum, prýðilegt grænfóður. Sáðmagn
getur verið með ýmsu móti, t. d. þannig á ha.:
1. 100 kg. hafrar, 80 kg. Luddvicker (flækjutégund) eða
100 kg. venjuleg fóðurflækja.
2. 100 kg. hafrar, 100 kg. Botnia gráertur eða 150 kg.
norskar gráertur.
3. 100 kg. hafrar, 70 kg. Botnia gráertur og 30 kg. venju-
legar fóðurflækjur.
Venjulega þarf að smita ertu- og flækjufræið. Bezt er að
sá ekki fyrr en í júníbyrjun, þegar jörð er farin að hlýna.
ILLGRESI.
Eftir Ólaf Jónsson.
Illgresi nefnum við einu nafni allan óvelkominn gróður
í ræktuðu landi, sem veldur þar margvíslegu tjóni, tekur
næringu, vatn og vaxtarrými frá nytjajurtunum, skyggir