Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1941, Blaðsíða 89
89
af þeim hrök, með því að gefa þeim inni, eða breiða yfir
þær teppi í högunum.
14) Með því að gefa kúm vothey með þurrheyinu að
Yi—Ys leyti má fá kúna til að umsetja meira hey, og
halda betur á sér nyt en ella, og ættu allir kýreigendur
að verka nokkum hluta heyjanna sem vothey (sérstak-
lega hána) og gefa kúnum það.
15) Að haustinu er ágætt að geta p-efið grænfóður,.
hafragras, kál, o. fl. með síðustu beitinni og fyrst í inni-
stöðunni. Kúnni verður þá minna um fóðurskiptin.
16) Sé til smárahey eða vikka, og sérstaklega sé það-
verkað sem vothey, má spara fóðurbætisgjöf að mun, en
þar sem það er enn óvíða til, verður ekki frekar farið
út í það hér nú.
17) Þegar heyin hrekjast eða verkast illa, tapást úr þeim
næringarefni, en misjafnt, bæði að efnum til og magni,
eftir því hvernig hrakningurinn hefir verið. Sömuleiðis
getur tapast úr heyjunum bætiefni og sölt, þegar þau
hrekjast. Bóndinn þarf þess vegna að taka tillit til þess,
þegar hann fær sér fóðurbæti til að gefa með heyjunum,
hvernig þau hafa hrakist, og hvað muni hafa tapast úr
þeim.
JÚGURBÓLGA.
Eftir Jón Pálsson dýralækni.
Júgurbólga er illkvnjaður, hættulegur sjúkdómur, sem
orsakast af því að bakteríur komast í júgrið, áverkar,
kæling, ófullkomnar og harðhentar mjaltir geta einnig
valdið júgurbólgu. Það er sérstök ástæða til þess að benda
á að ófullkomnar mjaltir á þeim tíma er kýrin er að
verða geid orsaka oft júgurbólgu eftir burðinn. Það á
og verður alltaf að hreinsa kýrnar vel, sérstaklega þegar
þær eru að geldast. Beztu kýrnar þola oft sama og engan
geldstöðutíma,
Venjulega sýkist aðeins einn kirtill, stundum tveir eða
jafnvel allir, oftar afturkirtlarnir. Sjaldan verður júgur-
bólga að faraldri, en auðvitað geta júgurbólgubakteríurnar
borizt frá einum kirtli til annars og elnnig í fleiri kýr £
sama fjósinu, sérstaklega er hætt við því ef sóðalega er
að farið. Ef kýr hefir sýkzt af júgurbólgu, verður ávallt að