Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Blaðsíða 71
71
hendi á annan hátt. Þeir bændur sem styðjast við mikinn
og góðan útheysskap og ala búfénað í samræmi við það,
geta haft nægan áburð til viðhalds túnum og görðum
og jafnvel til nýræktar, en það eru tiltölulega fáir bænd-
ur, sem eru svo vel settir. Á öllum þorra býla skortir
áburð jafnvel þótt öllu sé vel til haga haldið. Úr því er
bætt með tilbúnum áburði. Skynsamleg not hans sam-
ræmast góðri hirðingu og fullkominni notkun hins heima-
fengna áburðar.
í tilbúnum áburði geta verið eitt eða fleiri af þeim verð-
mætu efnum, sem nytjajurtunum eru nauðsynleg. í sam-
ræmi við það er talað um köfnunarefnisáburð, fosfórsýru-
áburð, kalíáburð og um blandaðan eða algildan áburð.
Bændur þurfa að vita öeili á allmörgum tegundum af
tilbúnum áburði.
Köfnunarefnisáburður.
Kalksaltpétur. í honum eru 15%% af köfnunar-
efni og um 28% kalk. Megnið af köfnunareíninu, eða 14,5%
er fljótvirkt saltpéturköfnunarefni, en 1% er ammoníak.
Kalksaltpétur er því mjög hraðvirkur áburður og á vel
við í öllum þurrviðrasveitum og þegar þörf er á að áburð-
urinn verki sem fljótast. •
Kalkammonsaltpétur er fjórðungi sterkari en
Kalk.' Jtpétur, 20%% af köfnunarefni og 35% kolsúrt kalk.
Helmingurinn af köfnunarefnínu er saltpéturköfnunarefni,
en helmingurinn ammoníak. Kalkammonsaltpétur er lang-
virkari en Kalksaltpétur, og því heppilegri þegar þörf er
á að fá jafnar og öruggar verkanir um lengri tíma. Að
öðru jöfnu er því bezt að nota Kalkammonsaltpétur í
hinum votlendari sveitum.
Chilesaltpétur. í honum eru 16% af köfnunarefni.
Hann flyzt nú orðið sem hrein-kornótt vara, sem auðvelt
er að dreifa og nota. Um notkun og verkanir gildir hið
sama og um Kalksaltpétur.
Brennisteinssúrt ammoníak. í þeim áburði
eru 20,6% af köfnunarefni. Eins og nafnið bendir til, er
það ammoníak. Verkanir þess eru því seinni og nokkuð
minni heldur en verkanir saltpéturs. Brennisteinssúrt
ammoníak á bezt við kalkríkan jarðveg, því að þegar til
lengdar lætur eyðir það nokkuð kalkinu, sem er í jarð-