Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Blaðsíða 114
114
möguleikum til þess að verða byggingarlána eða bygging-
arstyrkja aðnjótandi.
Steinsteypa.
Hefjið aldrei byggingu húss, án þess að hafa aflað yður
fyrst allra nauðsynlegra íslenzkra byggingarefna, svo sem
malar og sands, grjóts, þuns torfs o. s. frv. Mölin og sand-
urinn verða ætíð að vera aðskilin og síðan blandað saman
í réttum hlutföllum, án þess er ómögulegt að fá góða
steypu.
Gætið þess að steypuefnið sé hreint, að það sé ekki
blandað mold og leir, móbergi, móhellu eða öðrum mjúk-
um og molanlegum efnum. Steypið ætíð prófstein úr
steypuefninu. Það er of mikil áhætta að byggja úr því
heilt hús að óreyndu.
Steypuefnin verða að vera af réttum komastærðum,
mölin hæfilega gróf og sandurinn hæfilega fíngerður. Ef
mölin er of gróf, leggst steypan illa í mótin og verður
holótt. Ef sandurinn er of grófur verður hún hrjúf,
sementið rennur brott með vatninu, þegar hún er hrærð
eða sett í mótin og steypan verður gisin og óþétt.
Ódýrastir verða þeir veggir, sem hlaðnir eru úr stein-
um. Steinasteypan verður þó að hafa farið fram áður
en byrjað er að byggja. Steinarnir eru steyptir í mót-
um. Steypublandan er 1 : 8 og ekki notað meira vatn
en svo að steypuefnið verði gegnrakt. Því er þjappað vel
í mótin með þar til gerðum áhöldum. Steinarnir eru teknir
úr mótunum 10—15 mínútum síðar.
Tvöfaldir steinveggir, steyptir að þurru torfi og í mót-
um, eru næstir hlöðnum steinveggjum að dýrleika. Hvor
veggur verður þá að vera 11 cm. að þykkt, en torfið í
miðjunni 18 cm. Torfið er lagt tvö.falt og á rönd og það
verður að vera gegnþurrt og má ekki vera hart, og ekki
sendið eða leirrunnið. Steypublanda í tvöföldum veggjum
er höfð 1 : 8 (1:3:5). — Það er nauðsynlegt að hagræða
steypuefninu vel í mótunum og að pjakka það og þjappa
þvi niður. Krókjárn barf að hafa til að rífa það upp, eftir
að hellt er úr hverri fötu, því annars vill mölin setjast
neðst og 1 lögum, sérstaklega ef menn af ógætni hafa
haft of mikið vatn í steypunni.