Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Blaðsíða 121
121
fram stofnsjóðstillag skv. 26. gr„ imz innstæðan nemur
kr. 300.00.
24. gr. Árgjald í varasjóð félags og aðra óskiptilega
tryggingarsjóði skal ákveða í samþykktum, eigi minna
samtals en svarar 1% af samanlagðri sölu aðkeyptra vara
og afurða. Fé má ekki greiða úr varasjóði, nema eftir til-
lögu félagsstjómar, í samráði við endurskoðendur og með
samþykki aðalfundar, enda sé tillögunni fylgjandi eigi
færri en % þeirra félagsmanna eða fulltrúa, sem atkvæðis-
rétt eiga á fundinum.
25. gr. Fé stofnsjóðs skal notað sem veltufé í þarfir fé-
lagsins, og skulu vextir lagðir við höfuðstólinn um hver
áramót.
Stofnsjóðseign hvers félagsmanns fellur til útborgunar:
a) við andlát hans,
b) við burtflutning af félagssvæði,
c) við gjaldþrot hans,
d) verði hann fátækrastyrksþurfi.
Þegar stofnsjóðseign félagsmanns verður meiri en svor
að nemi árlegri úttekt hans, eins og hún hefir verið að
meðaltali 5 næstliðin ár, má greiða það, sem umfram er,
niður að 300 kr„ enda hafi hann ekki skipt við félagið
skemur en 15 ár.
Aldrei má þó borga út stofnsjóðseign, fyrr en eigandi
hefir innt af hendi allar fjárhagslegar skuldbindingar, er
á honum hvila sem félagsmanni.
Ef eignatöp eða tekjuhalli hefir orðið hjá félagi og
tryggingarsjóðir þess nægja ekki til að greiða töpin eða
hallann, og hætta er á, að félagið verði að hætta störfum
af þeim orsökum, er félagsfundi eða fulltrúafundi heimilt
að ákveða, að stofnsjóðsinnstæður félagsmanna og ann-
ara, sem í stofnsjóði eiga, skuli notaðar til greiðslu á
töpunum eða hallanum.
Að öðru leyti er stofnsjóðsfé óuppsegjanlegt, og verður
ekki selt né af hendi látið á annan hátt, nema með sam-
þykki félagsstjórnar.
26. gr. Stjórnendur samvinnufélags mega ekki úthluta
tekjuafgangi fyrr en:
1. Fasteignir, áhöld og aðrar eignir félagsins hafa verið
afskrifaðar nægilega.