Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1942, Blaðsíða 122
122
2. Áskilin gjöld í óskiptilega sjóði félagsins hafa verið
greidd.
í félögum, sem hafa vörukaup sem verksvið, má ekki
greiða tekjuafgang út fyrr en minnst 3% af verði að-
keyptra vara, sem félagsmenn hafa keypt, hefir verið lagt
í stofnsjóð.
28. gr. Samvinnufélög hafa heimild til að stofna og starf-
rækja innlánsdeild, er tekur við innlögum frá félagsmönn-
um til ávöxtunar sem rekstrarfé. Um útborganir á innlög-
um fer eftir ákvæðum félagssamþykkta.
Til tryggingar fyrir fé því, sem lagt er í innlánsdeild, er
varasjóður félagsins og aðrar eignir þess, ásamt ábyrgð
félagsmanna.
44. gr. Þangað til fram hefir farið gagngerð endurskoðun
á löggjöfinni um tekjur sveitar- og bæjarsjóða, greiða
samvinnufélög gjöld til þeirra sem hér segir:
1. Skatt af lóðum og öðrum fasteignum, eftir því sem
lög mæla fyrir.
2. Útsvar af arði, sem leiðir af skiptum við utanfélags-
menn, eftir sömu reglum o'r kaupmenn á staðnum, sam-
kvæmt ákvörðun skattanefndar, byggðri á skýrslu, er hlut-
aðeigandi félag gefur henni. En vanræki félagið þetta
framtal, skal skattanefnd áætla tekjur af þessum við-
skiptum, og byggist útsvarið á því.
3. Skatt, allt að 2% af virðingarverði þeirra húsa, sem
félagið notar við starfrækslu sína. Þó skulu ekki þar með
talin hús, sem notuð eru aðallega til líknarstarfsemi eða
fræðslu, t. d. sjúkrahús, bókasöfn, skólar o. s. frv. Skatt-
urinn fellur jafnt á, hvort sem félagið á húseignina eða
tekur hana á leigu, og skal jafnan vera byggður á síðasta
fasteignamati.
Um gjöld til ríkissjóðs fer eftir almennum lögum.
BÚNAÐARRIT.
Búnaðarrit. Byrjaði að koma út 1887, og er nú gefið út
af Búnaðarfélagi íslands. Ritstjóri: Steingrímur Stein-
þórsson. Æfifélagar B. í. fá Búnaðarritið ókeypis.
Freyr, mánaðarblað um landbúnað. Útgefandi Búnaðar-
félag íslands. Ritstjóri: Árni G. Eylands. Árgjald 8
krónur.