Bræðrabandið - 01.06.1946, Blaðsíða 9
- 9 -
upprisna og brátt komandi Frelsara verða boðaður um allan
heim." Og ennfremur: "Mesta vöntunin í heiminum er skortur
á trúföstum mönnum, sem ekki vilja láta kaupa sig né selja.
Mönnum, sem innst í hjarta sínu eru sannir og heilagir, og
sem ekki eru hræddir við að nefna syndina réttu nafni.
Mönnum, sem samviskan er jafn réttstæð gagnvart skyldunum
eins og áttavitanálin bendir ætíð á norðurpólinn. Mönnum,
sem standa fast með því, sem rétt er, jafnvel þott himininn
falli saman."
A. Magnússon þýddi.
"Heykjavík, 1. máí 1946
Á hinurn fjölsótta fundi kvenna, sem haldinn var í
Reykjavík 15. f.m,, var svohljóðandi tillaga samþykkt í
einu hljóði:
"Almennur kvennafundur í Reykjavík, haldinn mánudaginn
"15. apríl 1946, skorar hér með á allar íslenskar konur
"að vinna af alefli gegn áfengisnautn.
TFundurinn lítur svo á, að stefna beri að tvöföldu
ynsrki, annars vegar sköpun heilbrigðs almenningsálits
"um þessi efni og hins vegar algerðu aðflutningsbanni
"áfengis.
"Fundurinn telur að stuðlað verði að háðum hliðum þessa
"máls með því að safna undirskriftum undir áskorun til
"Alþingis um þjóðaratkvöðagreiðslu um aðflutningsbann-
"eins fljótt og fært þyki.
Við undirritaðar, sem kosnar vorum á fundinum til
þess að hrinda máli þessu í framkvæma, leyfum okkur hér með
að beina til yðar fyrirspurn vun það, hvort félag yðar muni
vilja taka þátt í þeirri allsherjarbaráttu gegn áfengisböli
þjóðarinnar, sem fundurinn taldi knýjandi nauðsyn að hafin
yrði.
Ef þér viljið sinna þessari málaleitun, biðjum við
yðcr vinsamlegast um að kjósa fulltrúa til samstarfs við
okkur.
Við leyfum okkur að vænta heiðraðs svars yðar eins
fljótt og unnt er.
BRÆÐRABANDIÐ