Viljinn - 01.01.1947, Qupperneq 8
8
ÖELÖG TVEGGJA PILTA
Hinn frægi ameríski prestur, Gr, Talmadge, segir
frá eftirfarandi atburði í einni af prédikunum sínum:
Fyrir mörgum árurn stóðu tveir ungir piltar Yið dyr
leikhúss nokkurs í n New York.■ Þeir voru að hugsa um að
fara inn til þess að sjá siðspillandi lcik, sem mikið var
talað um á þeim tíma. Báðir þessir piltar voru frá góðum
og kristilegum heimilxun. Þeir vissu því að það var rangt
að fara inn og horfa á leik þennan. En þeir fóru samt.
Þegar þeir komu að dyrum leikhússins, stansaði annar þeirra
og hélt heimleiðis. En löngunin til að sjá leikinn hafði
enn ekki yfirgefið hann, og hann fór því í annað sinn á stað
í því skyni að fara í leikhúsið. En er hann kom að dyrxim
leikhússins, vantaði hann þó kjark til að fara inn. Er hann
hafði hugsað sig um litla stund, tók hann fasta ákvörðun og
fór rakleitt heim. Hinn pilturinn var þegar kominn þangað
inn. Þetta ákvað örlög þessarra tveggja pilta.
Sá, sem fór inn að sjá leikinn, féll eftir það í
hverja freistinguna á fætur annari. Og er hann þannig dróst
inn í hringiðu.syndar og ljéttúðar, sökk hann dýpra og dýpra.
í þessu aumkunarverða ástandi dó hann loks, án þess að nokk-
ur vonaretjarna. virtist lýsá upp hina dimmu leið hans. -
Hinn pilturinn stendur hér í dag og þakkar Guði,
sem hefur leyft honum að prédika frelsandi náð Guðs.
Eg er þeesi pilturi
LITLA MATTIE MAE V/IATT, hafði sparað saman 57 cent.
þegar hún var dáin, fannst þetta fé vafið innan í pappírsm-
miða og utan á var skrifað: Þetta á að hjálpa til að stækka
kirkjuna svo fleiri börn geti komið á sunnudagaskólann".
Þessi atburður var notaður til að safna fé til fyrirtækisins,
og eftir 5 ár ver 57 centa sjóðurinn orðinn að 250 þúsund
dollurum. Guð einn veit hve miklu fórn barnsins hefir komið
til le.ið.ar ti,l eflingar Guðs ríki.
VI L J I N N