Austurglugginn - 30.04.2010, Side 2
2 AUSTUR · GLUGGINN Föstudagur 30. apríl
Þarf þitt fyrirtæki að auglýsa? Auglýsingasími Austurgluggans er 477 1571 netfang auglysing@austurglugginn.is
Íslandsperlur| Um helgina verður
ferðasýningin Íslandsperlur haldin í
Perlunni í Reykjavík. Að sýningunni
standa markaðstofur landshlutanna
í ferðaþjónustu, Höfuðborgarstofa,
Ferðaþjónusta bænda, Opinn
landbúnaður og Beint frá býli.
Markaðsstofa Austurlands, ásamt
menningar- og ferðamálafulltrúum
sveitarfélaganna, kynna austfirskar
náttúruperlur og ferðaþjónustu
og er kynningin tengd sjávarsíð-
unni, hálendi og skógi og náttúrau
í handverki, hönnun og matvælum.
Austfirskar krásir taka einnig þátt í
kynningunni.
Byggðasamlag | Á aukaaðalfundi
Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi í
sl. viku var samþykkt að stofna sam-
eiginlegt byggðasamlag utan um
félagsþjónustu og þjónustu við fatl-
aða. Þjónustusvæði verða áfram tvö.
Málefni fatlaðra flytjast frá ríki til
sveitarfélaga um næstu áramót. Uppi
eru hugmyndir um að fleiri verkefni,
og þá til dæmis á sviði heilbrigðis- og
menntamála, verði seinna færð undir
byggðasamlagið.
Fíkniefni | Átta menn voru sl. helgi
teknir í Fjarðabyggð með fíkniefni.
Lögreglan á Eskifirði stöðvaði
mennina á Eskifirði, Reyðarfirði og
í Neskaupstað, ýmist á skemmti-
stöðum eða í bifreiðum. Efnin sem
fundust voru í litlum skömmtum og
voru sjö með amfetamín og einn með
kannabis. Jafnframt mun einn mann-
anna hafa verið vopnaður tveimur
hnífum, en beitti þeim ekki gegn
lögreglu.
Hoffell í slipp | Skip Loðnuvinnsl-
unnar á Fáskrúðsfirði, Hoffell, land-
aði á þriðjudag síðasta farmi sínum af
kolmunna á þessari vertíð. Kvótinn
er þar með búinn og fer skipið nú
í slipp á Akureyri. Næstu verkefni
Hoffellsins verða veiðar á Norður-
Íshafssíld og makríl.
Bæjarstýra Fjarðabyggðar, Helga Jónsdóttir, upp-
lýsti á þriðjudag að hún sækist ekki eftir endurráðn-
ingu í starfið á næsta kjörtímabili. Helga afhenti
bæjarráði bréf þar sem þetta kemur fram. Ráðning
hennar rennur út um miðjan júní nk. og hefur hún
starfað sem bæjarstýra frá árinu 2006.
Samkvæmt heimildum Austurgluggans hefur þetta
legið fyrir frá áramótum og var óskað eftir stað-
festingu frá bæjarstýrunni áður en kosningabarátta
vegna sveitarstjórnarkosninga seint í maí hefðist
fyrir alvöru. Frambjóðendur þeirra lista sem bjóða
fram í Fjarðabyggð hafa ýmist sagst vilja hafa Helgu
áfram í embætti eða ekki og ljóst að um það hafa
verið mjög skiptar skoðanir innan allra listanna.
Helga þykir að mörgu leyti hafa staðið sig mjög
vel í starfi bæjarstýru og nauðsynlegt þótti að fá
utanað komandi manneskju í starfið árið 2006, m.a.
til að styrkja sameiningarþáttinn í Fjarðabyggð.
Innsýn og þekking í stjórnsýslu er talinn hennar
höfuðkostur ásamt miklum myndugleik, en ókostur
hversu einráð hún þykir og að hún hafi hvorki náð
starfsfólki sveitarfélagsins saman né höfðað til
fólksins sem býr í sveitarfélaginu. Hún sé bæjarstjóri
stjórnsýslunnar en ekki bæjarstjóri fólksins.
Fjögur ár feykinóg
,,Þetta er ekki ný ákvörðun fyrir mig,“ sagði Helga
í samtali við Austurgluggann. ,,Ég réði mig í fjögur
ár og það hefði verið ný ákvörðun að halda áfram.
Þetta hefur verið lærdómsríkur og góður tími en
ég á mínar rætur og fjölskyldu fyrir sunnan. Ég
er þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í upp-
byggingunni hérna en nú ráða ýmsar persónulegar
ástæður því að mér finnst tímabært að snúa til
baka. Ég hef aldrei ráðstafað tíma mínum lengur
en nokkur ár í senn.“ Líklega má segja að Helga
Jónsdóttir hafi átt stóran þátt í að nútímavæða
sveitarfélagið og þó hún vilji ekki orða það þannig
þá segist hún hafa reynt að yfirfæra lærdóma af
langri reynslu inn í stjórnsýslu til Fjarðabyggðar
og vonandi til gagns.
Um það á hvaða leið Helga sé eftir að bæjarstýru-
starfi hennar lýkur, segist hún alltaf á kafi í þeim
verkefnum sem hún fæst við hverju sinni og hafi
því ekki hugsað mikið um hvað taki við. Spurð
hvaða verkefnum hún vilji helst ljúka áður en hún
hverfur úr starfi segir hún flest verkefnin taka
langan tíma í þróun og sem dæmi megi nefna tvö
sem hún hafi einmitt fundað um daginn sem við-
talið er tekið. ,,Annað er flutningur og endurgerð
Franska spítalans við Fáskrúðsfjörð og hitt verk-
efni með Þróunarfélaginu til að kanna nýjar leiðir
í almenningssamgöngum í samvinnu við dreif-
býlissveitarfélög í nágrannalöndum. Ég vona að
báðum þessum verkefnum ljúki farsællega þótt ég
hverfi á braut og að þau geti styrkt bæði atvinnu
og mannlíf hér.“
Helga segir engan vafa leika á að styrkur sveit-
arfélagsins verði betur nýttur með auknu samstarfi.
,,Því meiri sem samstaðan er, samhugurinn og
skynjunin á sameiginlegum hagsmunum þeim mun
meiri verður styrkur Austurlands í samskiptum
við aðra landshluta. Í þessu mega menn þó ekki
fara fram úr sjálfum sér. Frá því að ég sá gömlu
austfirsku hugmyndirnar frá miðri síðustu öld
um fylkin, sem Smári Geirsson hefur kynnt, hef
ég velt því fyrir mér hvað framkvæmd þeirra hefði
þýtt fyrir þjóðfélagsþróun á Íslandi. Með miklu
meiri sjálfsstjórnarrétti landshlutanna, sjálfstæð-
ari tekjuöflun og beinni ábyrgð, hefðu samskipti
landshlutanna kannski þróast með farsælli hætti
en raunin er.“
Sömu forsendur
En verður tilhneyging til að leita að bæjarstjóraefni
meðal heimamanna í Fjarðabyggð? Heimildamenn
Austurgluggans telja að sú verði raunin, en trauðla
verði þeir teknir af framboðslistunum þar sem
seint myndi nást samstaða innan sveitarfélagsins
um slíkt og það gæti ögrað sameiningarþáttum
Fjarðabyggðar verulega. Þó gæti það orðið nið-
urstaða samkomulags í meirihlutamyndun.
,,Ég held að ég eigi sem minnstar skoðanir að hafa
á því. Það verður verkefni nýrrar bæjarstjórnar að
velja eftirmann minn og ég vona og treysti að hún
taki þær ákvarðanir sem bestar eru í þágu íbúa
þessa sveitarfélags. Sameining sveitarfélaga er
ekkert áhlaupaverk og tekur fleiri kjörtímabil en
eitt þannig að mörg óleyst verkefni bíða þótt afar
margt hafi áunnist,“ segir Helga Jónsdóttir, bæj-
arstýra Fjarðabyggðar fram í júní.
Líklegast að nýr bæjarstjóri Fjarðabyggðar verði úr röðum heimamanna
Bæjarstýra lýkur störfum í júní
Helga Jónsdóttir tók við starfi bæjarstýru í Fjarðabyggð árið 2006. Hún lýkur störfum í júní nk. Mynd/SÁ.
Á fundi bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs 21. apríl, var tekið fyrir bréf frá Eftirlitsnefnd um fjármál
sveitarfélaga, en nefndin hefur verið með fjármál nokkurra sveitarfélaga til skoðunar eftir mikinn halla-
rekstur þeirra árið 2008 í kjölfar bankakreppunnar og falls íslensku krónunnar. Á fundi bæjarstjórn-
arinnar var eftirfarandi bókun gerð um málið: „Í ljósi hallareksturs á árinu 2008 hefur Eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga verið með rekstur sveitarfélagsins til athugunar. Með bréfi sínu þann
13. apríl sl. tilkynnir nefndin að hún muni ekki aðhafast frekar í málinu. Ákvörðunin byggir á þeim
gögnum sem sveitarfélagið hefur lagt fram þar sem m.a. er gert ráð fyrir viðsnúningi í rekstri og að
afgangur verði af rekstrinum. Eftirlitsnefndin muni þó áfram fylgjast með framvindu rekstrar og
fjárhagsáætlunar.”
Fljótsdalshérað
Eftirlitsnefnd aðhefst ekki frekar