Austurglugginn - 14.08.2008, Page 1
ISSN1670-3561
Fréttablað Austfirðinga
Verð í lausasölu kr. 350
Fimmtudagur 14. ágúst
32. tbl. - 7. árg. - 2008
ÞÚ ERT
Á GÓÐUM
STAÐ
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
Mjóifjörður
Neskaupstaður
FJARÐABYGGÐ fjardabyggd.is
Sunnudaginn 10. ágúst var haldinn markaður í Viðarsbúð
á Fáskrúðsfirði. Á boðstólnum var fjölbreyttur varningur af
ýmsu tagi svo sem handverk, nýupptekið grænmeti, brauð, síld,
prjónles og broddur.
Mynd: Albert Eiríksson
Hin árlega hátíð Héraðsbúa, Ormsteiti, er að hefjast. Umfangsmikil dag-
skrá hefur verið sett upp af skipuleggjendum hátíðarinnar. Dagskrána er að
finna í sérstökum bæklingi sem var dreift í hvert hús í fjórðungnum. Einn af
hápunktum Ormsteitis má fullyrða að sé hverfahátíðin á Vilhjálmsvelli þar
sem stórkarnivalhátíð verður sett upp. Allir íbúar Austurlands hafa verið
boðnir velkomnir. Nánar á bls. 3.
Markaðsdagur á FáskrúðsfirðiStórkarnival á Vilhjálmsvelli
Múlastofa á Vopnafirði var opnuð á laugardag. Sýningarhönnuðurinn, Björn G. Björnsson, leiðir hér aðstandendur Jóns Múla og Jónasar
Árnasona um sýninguna. Mynd: GG
Magni Fannberg, sem sagt var upp á
dögunum sem þjálfari 1. deildarliðs
Fjarðabyggðar og knattspyrnudeild
KFF hafa ekki náð samkomulagi um
starfslokagreiðslu vegna uppsagnar-
innar.
Magni gerði þriggja ára samning við
KFF í vetur. Hann lét hafa eftir sér
í fjölmiðlum að í samningnum séu
engin uppsagnarákvæði og því beri
KFF að greiða honum út samnings-
tímann. Samkvæmt heimildum
Austurgluggans er uppsagnarákvæði
í samningnum eftir sumarið 2009.
KFF þyrfti því í versta falli að greiða
Magna laun út sumarið 2009. Það
er hins vegar túlkunaratriði á samn-
ingnum hvort KFF þarf að borga
Magna áfram laun fái hann aðra
vinnu.
Stjörnulögfræðingur
Stjórn KFF hefur ráðið lögfræð-
inginn Vilhjálm H. Vilhjálmsson
til að sjá um samningsgerð fyrir sína
hönd. Bjarni Ólafur Birkisson, for-
maður KFF, segir samningaviðræður
standa yfir. “Það fer vonandi að skýr-
ast hvernig málin þróast. Við erum
að reyna að komast að niðurstöðu,”
segir Bjarni sem neitar að gefa upp
ástæður uppsagnar Magna. “Það er
eitthvað sem kemur fram þegar við
göngum frá málinu. Ástæður verða
líklegast gefnar út í samráði við
Magna,” segir Bjarni.
Bjarni segir að Elvar Jónsson og
David Hannah muni klára tímabilið
sem þjálfarar liðsins. Vilberg Marinó
Jónasson mun verða þeim innan
handar. “Við munum klára tíma-
bilið svona. Við náðum mikilvægum
stigum nú í síðustu leikjum og erum
með tryggari stöðu í deildinni. Eftir
tímabilið setjumst við niður og förum
yfir þjálfaramálin. Mikilvægast er að
sanka að sér stigum nú á seinni hluta
leiktímabilsins,” sagði Bjarni Ólafur.
Ekki náðist í Magna Fannberg við
gerð fréttarinnar.
Lögfræðihnútur hjá KFF