Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 8

Austurglugginn - 14.08.2008, Blaðsíða 8
8 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst Cathy Ann Josephson segist vera með sex húfur – eiginkona, myndlista- kona, handverkskona, gistihúsarek- andi, kvenfélagskona og vesturfara- sérfræðingur. Hún fluttist til Íslands fyrir fjórtán árum og vill hvergi ann- ars staðar vera en í Vopnaf irði. Hún hefur flutt tæplega þrjátíu sinnum á ævinni, missti manninn sem hún gift- ist fyrst á Vopnafirði úr krabbameini. „Við skulum ekki ræða um veðrið – það er ekki til neins,“ segir hún okkur. Austurglugginn heimsótti Cathy. Cathy Ann Josephson er 57 ára gamall Íslendingur, áður Vestur-Íslendingur. Hún er lítil og snaggaraleg. „Verið bara eins og heima hjá ykkur,“ segir hún þegar hún tekur á móti okkur og vísar til herbergisins. Cathy ólst upp í Minnesota í Bandaríkjunum en heimsótti Ísland fyrst árið 1994 til að vitja upprunans. „Þá voru liðin 100 ár síðan afi fluttist. Hann var tveggja ára þegar hann fór með foreldrum sínum frá Vopnafirði. Afkomendurnir í Minneapolis hitt- ust árlega og fóru út að borða. Okkur fannst það orðið leiðinlegt svo við ákváðum að koma til landsins. Afi giftist þrisvar og átti börn með öllum konunum svo við áttum skyldmenni um allt land.“ Cathy segir dýpst hafa verið á tengslunum við Vopnafjörð. „Pabbi fann bréf frá afa með nafni Friðriks Sigurjónssonar. Ég próf- aði að senda bréf á hann. Nokkrum vikum seinna hringdi djúpraddaður maður, barnabarn hans og alnafni. Ég segi stundum að ég hafi sent bréf á dáinn mann og hann fengið það. Við vorum 27 sem komum austur og okkur var hent út í Möðrudal. Við vissum ekki hvernig við ættum að komast til Vopnafjarðar en það kom rúta og sótti okkur. Í henni var Haukur, hálfbróðir Friðriks sem ég giftist síðan og hann skipulagði ferð- ina fyrir okkur. Þegar við vorum hjá kaupfélaginu kom til okkar maður og las með mér á ættartöflu. Hann fór að gráta. Haukur útskýrði að þetta væri stjúppabbi hans og afi hans og afi minn hefðu verið systkinabörn. Ég hafði pælt nógu lengi í íslensku til að skilja hvað var í gangi og sagði við Hauk „Þegiðu – þú truflar okkur.“ Sigurjón sagði mér að þau hefðu ekki vitað hvað varð um langömmu mína sem dó nokkrum árum eftir að við komum til Minnesota.“ Afi og amma Cathy voru íslensk en mamma hennar, frá Arkinsaw fylki, af írskum og bandarískum ættum. „Hún var íslenskari en hann. Hann vildi vera eins og venjulegt fólk en hún var meiri villimaður,“ segir Cathy og bætir við að fjöl- skyldan hafi haldið íslensk jól. „Afi og amma töluðu íslensku og pabbi getur bjargað sér á íslensku. Ég eyddi fyrstu árunum hér í að hlusta á fólkið tala og reyndi að grafa upp málfars- bækur. Ég þurfti þrjú eða fjögur ár áður en ég gat lesið bækur án þess að vera með orðabók.“ Heim í Refsstað Hún giftist síðan leiðsögumanninum Hauki. „Hann skynjaði hvernig mér leið úti í Bandaríkjunum og bauð mér að koma. Ég fór heim og það tók mig sex mánuði að henda, selja og gefa allt sem ég vildi ekki taka með mér. Ég kom aftur í mars árið 1995 og við Haukur giftum okkur í ágúst. Um haustið lenti bróðir minn í slysi og við fórum til Bandaríkjanna í ár til að hjálpa honum. Eins og flestir Íslendingar vann ég eins og skepna í frystihúsinu og þreif á elliheimilinu. Ég bjó ein í þrjú ár á Hámundarstöðum, sem eru út með firðinum á leiðinni til Bakkafjarðar. Þar byrjaði ég að reka gistihús til að fá félagsskap. Ég kynntist nýjum manni, Sverri Ásgrímssyni og við bjuggum fyrst í litlu húsi á Vopnafirði. Það hafði verið til sölu í heilt ár og seld- ist loksins. Sverrir missti vinnuna og við þurftum að fara. Hann var frá Þórshöfn svo við fluttum þangað í tíu mánuði áður en við komum aftur og keyptum Refsstað II. Mér fannst allt í lagi að vera á Þórshöfn en heimaslóð mín er á Vopnafirði. Langalangamma mín fæddist á Refsstað og er skyld þeim sem eiga jörðina, en ég vissi það ekki fyrr en eftir að ég keypti,“ segir Cathy og þylur upp fjölda vestur-íslenskra Vopnfirðinga og bendir í allar áttir. „Langafi var frá Hrafnsstöðum og langamma fæddist í Viðvík... við skulum hætta þessu.“ Áhuginn nægur vestra Cathy starfar á Vesturfaramiðstöð Austurlands í Kaupvangi á Vopnafirði. Þar var um helgina opnuð sýning tengd vesturferð- unum. „Ég er Vestur-Íslendingur svo ég á auðvelt með að tengja. Ég hafði grúskað töluvert í ættfræði og skrif- aði 100 ára sögu íslensku kirkjunnar í Minneapolis. Þegar ég kom til Íslands fann ég hversu miklu ég hafði safnað saman. Fyrir nokkrum árum byrj- aði ég að setja saman vesturfaraskrá frá Vopnafirði og ég er komin með manntöl og kirkjubækur.“ Hún segir Íslendinga í vesturheimi varðveita uppruna sinn vel. „Áhuginn er nægur. Ég vissi alltaf að afi væri frá Vopnafirði, amma frá þessum bæ og svo framvegis. Menn vilja ekki sleppa tengingunni. En það er erfiðast að selja þeim hugmyndina um að koma hingað og finna jörð- ina. Ég fór einu sinni með manni og konunni hans, sem er norsk og frönsk, inn að Grundarhól sem er innan við Grímsstaði á Fjöllum. Þau grétu þegar þau komu á stað- inn því þau höfðu heyrt svo mikið um staðinn. Ég fór líka með 89 ára gamalli vestur-íslenskri konu inn að Hofteigi. Hún vildi standa á sama stað og gamli torfbærinn var. Þar er bara gras í dag en hún stóð og horfði í kringum sig og hugsaði „já – þetta hefur afi séð þegar hann stóð í bæjardyrunum.“ Fólk fæð- ist með þessar tilfinningar. Þær eru ekki áunnar.“ Cathy hefur lent í ýmsu skrautlegu þegar hún hefur aðstoðað Vestur- Íslendinga í leit að upprunanum. „Ég fékk eitt sinn afkomanda Jóns Hrafnssonar. Ættarnafnið hafði breyst og var orðið Rafsson því mamma þeirra barnanna hafði látið þau skrifa það vitlaust. En mér fannst nafnið fyndið því mað- urinn vann sem rafvirki. Stundum kemur fólk og segir „við ætlum að finna ömmu okkar.“ Stundum get ég hjálpað því. Ég fékk einu sinni mann af norskum ættum. Hann sagði við mig. „Ég held að amma sé að sækja mig og vilji að ég finni hana – var hún kannski íslensk.“ Og ég svaraði: „Auðvitað var hún íslensk. Ég vissi það fyrir löngu og ég hélt að þú vissir það líka. Hann dó nokkrum árum síðar en hann fann hana. Þetta er tilfinning sem er til staðar.“ Pöddudagar Faðir Cathy býr í Minneapolis. „Hann er góður sölumaður og vísar vestur-íslensku fólki til mín. Cathy Ann Josephson „Bíð ekki eftir fólki sem segir alltaf nei“ Cathy við húsið á Refsstað II. „ Ég hef flutt 29 sinnum á ævinni, næst þegar ég flyt verður það á elliheimilið eða í kirkjugarðinn!“ Mynd: GG Cathy í Vesturfaramiðstöðinni. „Fólk fæðist með þessar tilf inningar. Þær eru ekki áunnar.“ Mynd: GG

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.