Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Page 10

Austurglugginn - 14.08.2008, Page 10
10 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst Árný Eiríksdóttir er yf ir Kaffihúsinu á Eskifirði sem opnaði í byrjun júní. Hún segir sumarið hafa gengið vel þrátt fyrir að hún kynni varla á kaffivélina þegar opnað var. „Við opnuðum á fimmtudeginum fyrir sjómannadagshelgina. Þegar klukkuna vantaði tvær mínútur í átta var enginn kominn en á slaginu átta fylltist allt,“ segir Árný. Kaffihúsið er rekið í nafni Tandrabergs sem til þessa hefur sérhæft sig í löndunum fiskiskipa. Húsið að Strandgötu 10 var keypt til að hýsa starfsmenn fyrir- tækisins. Þar var matsalur og eldhús og alltaf tveir starfsmenn sem sáu um matinn. „Við nýttum tækifærið til að bjóða upp á það sem allir töl- uðu um að vantaði. Ég stökk út í djúpu laugina því ég kunni varla að búa til kaffi. Kaffivélin kom daginn fyrir opnun en enginn starfsmaður með henni til að kenna okkur á hana eins og ég bjóst við. Stelpurnar tóku sér tíma og lærðu á hana í tíma fyrir opnunina.“ Árný segir Eskfirðinga hafa tekið vel á móti Kaffihúsinu. „Það eru allir mjög jákvæðir og lýst vel á þetta. Ferðamönnum líður vel hér, finnst staðurinn kósí og gaman á pallinum fyrir utan. Við höfum fengið töluvert af eldra fólki sem kann ekki á Cappuccino eða Swiss Mocca en finnst þetta spennandi. Þó það kaupi sér bara svart hefur það val og spyr.“ Auk Árnýjar eru þrjár stúlkur hjá henni í afgreiðslu. Hún segist ekki hafa ætlað að standa í henni sjálf en eigendur rekstrar verði að vera tilbúnir að hlaupa í ýmis verk. „Ég ætlaði að panta inn og sjá um rekst- urinn en það er betra að hafa nóg að gera. Vinnudagurinn er frá morgni til kvölds og maður er oft drullu- þreyttur þegar maður kemur heim. Þetta er ekki erfiðisvinna en svolítið stapp á stundum,“ segir Árný sem lengst af starfaði í frystihúsinu. Hún segir staðinn kominn til að vera en ætlar að prófa sig áfram með opn- unartíma og matseðil. „Við minnkum alla veganna ekki við okkur.“ GG Kaffihúsið á Eskifirði „Kunni varla að búa til kaffi“ Árný Eiríksdóttir: „Við höfum fengið töluvert af eldra fólki sem kann ekki á Cappuccino eða Swiss Mocca en f innst þetta spennandi. Þó það kaupi sér bara svart hefur það val og spyr.“ Mynd: GG Skógrækt ríkisins bauð í seinustu viku til vínsmökkunar í Hallormsstaðaskógi. Boðið var upp á birkivín frá Suðurlandsdeildinni. Það er Daninn Morten Leth sem forystu hefur haft í víngerðinni hjá Skógræktinni í Haukadal. „Þetta er birkivín úr Chateau Haukadalur. Við söfnuðum safa í apríl og maí og brugguðum átta gerðir af birkivíninu. Í fyrra gerðum við prufu með birki- síróp og vildum halda áfram í ár með birkivín og birkiís,“ sagði Morten. Styrkleiki vínsins er 6,5-13,9 pró- sent. Meðal gesta í vínsmökkuninni virtist mest ánægja með birkivín með léttum sítrónukeimi sem gengið gæti sem svaladrykkur. Þór Þorfinnsson, skógarvörður á Hallormsstað, fagnaði tilraunum manna til vinnslu afurða úr skóginum. „Fyrir tæpum tuttugu árum fóru menn af stað fyrir austan, söfnuðu birkisafa, sendu í mjólk- urstöðina á Egilsstöðum og reyndu að brugga. Þar gekk á ýmsu en ég held að menn hafi aðallega drukkið!“ GG Vínsmökkun í Hallormsstaðaskógi Bruggar birkivín Morten Leth, stoltur af framleiðslunni. Mynd: GG Jón Loftsson, skógræktarstjóri, skálar við gesti. Mynd: GG

x

Austurglugginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.