Austurglugginn - 14.08.2008, Side 14
14 AUSTUR · GLUGGINN Fimmtudagur 14. ágúst
Hljómsveitin Miri heldur í vikunni
tvenna kveðjutónleika. Ástæðan er að
meðlimir hljómsveitarinnar flytjast
með haustinu allir til Reykjavíkur.
Hjalti Jón Sverrisson, bassaleikari
hljómsveitarinnar, segir sveitina ætla
að taka upp breiðskífu í vetur og herja
á tónleikamarkaðinn. Upptökustjóri
plötunnar hefur unnið með fjölda
heimsþekktra listamanna.
Hljómsveitin hefur komist að sam-
komulagi við upptökustjórann
John Congleton, sem meðal ann-
ars hefur unnið með heimsþekktum
listamönnum eins og R. Kelly, The
Polyphonic Spree, Modest Mouse,
Marilyn Manson, Antony and the
Johnsons, Celine Dion og söngv-
aranum Bono úr U2, svo fáein dæmi
séu tekin. Hann er rúmlega þrítugur
Bandaríkjamaður, hefur verið til-
nefndur til Grammy verðlauna og
rekur eigin hljómsveit, The Paper
Chase.
„Hann hafði samband við okkur á
MySpace og sagðist hafa gaman af
tónlistinni. Við spjölluðum saman og
hann lýsti yfir að hann hefði áhuga
á að vinna með okkur,“ segir Hjalti
Jón. „Við stefnum að því að taka upp
plötuna í vetur, mögulega í stúdíóinu
hans í Texas. Við vinnum í að finna
stað- og dagsetningu sem henta
báðum aðilum. Við stefnum að því
að hann taki upp alla plötuna.“
Hjalti Jón segir hljómsveitina þurfa
að yfirgefa Austurland til að skapa
sér nafn auk þess sem hann vonast
til að sjóndeildarhringurinn víkki.
„Ég held það sé hollt fyrir hljóm-
sveitir að komast aðeins úr sínu
heimaumhverfi. Við fáum þannig
nýja sýn frá öðru fólki á okkur sem
hljómsveit. Eins gott og það er að
þekkja alla fyrir austan getur það
líka verið galli. Austurland er ekki
nógu stór vettvangur ef maður ætlar
sér stóra hluti í tónlistinni. Þar er
ágætis grunnaðstaða en ekki til að
taka upp stóra stúdíóplötu. Við
þurfum líka að fylgja plötunni eftir
til að skapa hljómsveitinni nafn. Við
ætlum okkur að komast inn í flóruna
í Reykjavík en ekki vera á hliðarlín-
unni eins og gerist með hljómsveitir
utan af landi.“ Fyrri tónleikarnir
verða í tjaldinu við Café Nielsen
í kvöld klukkan níu og þar spilar
hljómsveitin Dætur Satans með.
Á laugardag spilar hljómsveitin á
Seyðisfirði við Angró á Seyðisfirði
klukkan 15:30. Í tilkynningu frá
sveitinni segir að ekkert kosti inn á
tónleikana en það kosti út af þeim.
„Það er að segja þegar fólk fer af tón-
leikunum ber því að borga upphæð
sem er í samræmi við upplifun þess
á þeim.“ Hjalti segir þetta orðalag
sett fram í gríni, ákveðið hafi verið
að hafa frítt á tónleikana en frjáls
framlög séu vel þegin. „Það er dýrt
að taka upp plötu.“
Hann segir hljómsveitina fyrst og
fremst vilja þakka heimaslóðum fyrir
sig - í bili. GG
Miri kveður Austurland
- Heimsþekktur upp-
tökustjóri tekur upp
plötu sveitarinnar
Takk fyrir í bili. Óttar Brjánn Eyþórsson, gítarleikari, Ívar Pétur Kjartansson, trommuleikari
og Hjalti Jón Sverrisson, bassaleikari Miri. Mynd: GG
Fjarðabyggð tapaði á þriðjudagskvöld
fyrir ÍBV 0-1 í 1. deild karla í knatt-
spyrnu. Augustine Nsumba skoraði eina
mark leiksins á 52. mínútu.
Nsumba tók boltann viðstöðu-
laust á lofti og afgreiddi hann upp
í fjærhornið eftir að David Hannah
hafði mistekist að skalla boltann
almennilega frá markinu. ÍBV herti
tökin á leiknum í seinni hálfleik og
Fjarðabyggð fékk fá alvöru færi.
Framan af leik átti Fjarðabyggð í
fullu tré við efsta lið deildarinnar.
Besta færi liðsins fékk Stefán Þór
Eysteinsson en Albert Sævarsson
varði skot hans glæsilega. Leikmenn
Fjarðabyggðar börðust vel gegn
aðgangshörðu og líkamlega sterku
Eyjaliði.
David Hannah, þjálfari Fjarðabyggðar,
var ánægður með baráttu leikmanna
sinna. „Mér fannst lítill munur á
liðunum og við verðskulduðum að
minnsta kosti eitt stig. Mér finnst
viðhorf leikmannanna vera orðið allt
annað. ÍBV vinnur líklega deildina
en strákarnir sönnuðu fyrir mér í
kvöld að þeir eru fullt eins góðir og
leikmenn annarra liða.“
Hannah sagðist hafa unnið með
líkamlegt ástand og þol leikmanna
á seinustu æfingum. Hann sagðist
hvorki geta né vilja svara hvort það
hefði verið í ólagi framan af tíma-
bilinu. „Við sáum í kvöld lið sem
hljóp í 90 mínútur. Við höfum unnið
með líkamlegt ástand leikmanna á
seinustu æfingum og þeir hafa tekið
því vel. Hraðinn á æfingunum hefur
verið góður og við fengið átta stig
af seinustu tólf mögulegum. Ég er
ánægður með frammistöðuna í kvöld
en ekki það að tapa. En ef leikmenn-
irnir sýna svona baráttu í hverjum
leik hef ég engar áhyggjur af þeim.
ÍBV skoraði heppnismark en fengu
utan þess fá færi og síst betri en við.“
Fjarðabyggð mætir Leikni Reykjavík
á laugardag. GG
1. deild karla
„Viðhorf leik-
manna allt annað“
Í loftköstum. Sveinbjörn Jónasson með boltann. Mynd: GG
Snær heims-
meistari
Snær Seljan Þóroddsson, glímu-
maður frá Reyðarfirði, varð um
helgina heimsmeistari í glímu.
Snær sigraði í -81 kg flokki karla
með fimm vinninga, fullt hús.
Þetta var fyrsta heimsmeistara-
mótið í íslenskri glímu sem fram
fór í Hróarskeldu í Danmörku.
GG
Höttur
í úrslit
Höttur tryggði sér í seinustu viku
sæti í úrslitakeppni 1. deildar
kvenna í knattspyrnu þegar liðið
lagði Sindra 1-2 á Hornafirði.
Sigríður Baxter skoraði sigurmark
Hattar. Lejla Cardaclija jafn-
aði fyrir Sindra eftir að Elísabet
Sara Emilsdóttir kom Hetti yfir.
Völsungur fylgir Hetti í úrslita-
keppnina, spurningin er hvort liðið
vinnur riðilinn. GG