Austurglugginn


Austurglugginn - 14.08.2008, Qupperneq 15

Austurglugginn - 14.08.2008, Qupperneq 15
 Fimmtudagur 14. ágúst AUSTUR · GLUGGINN 15 Höttur vann mikilvægan 1-2 sigur á Tindastóli í 2. deild karla í knatt- spyrnu í seinustu viku. Tómas Arnar Emilsson kom Hetti yfir en Sauðárkróksmenn jöfnuðu á loka- mínútu fyrri hálfleiks. Sigurmark Hattar skoraði Þórarinn Máni Borgþórsson tíu mínútum fyrir leiks- lok. Freyr Guðlaugsson, sem Höttur fékk lánaðan frá Fylki, lék sinn fyrsta leik fyrir félagið. Höttur hefur með misjöfnu gengi í sumar dregist inn í þéttan hóp liða í deildinni sem eru í fallhættu en eftir sigurinn munar sjö stigum á Hetti, sem er í 6. sæti með 19 stig og neðsta liðinu. Höttur tekur á móti Aftureldingu á Vilhjálmsvelli klukkan 14:00 á laug- ardag. GG Lið Hugins er komið í úrslitakeppni þriðju deildar karla í knattspyrnu og lið Sindra vantar eitt stig til að gull- tryggja sig inn. Leikur Leiknis og Sindra á Fáskrúðsfirði réði miklu um fram- tíð liðanna í riðlinum. Með sigri hefði Leiknir náð Sindra að stigum í öðru sætinu, sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppninni. En Hornfirðingar, sem komu úr 2. deild í fyrra, sýndu styrk sinn og unnu 1-2 með mörkum Kristins Þórs Guðlaugssonar og Emir Murtic, sitt í hvorum hálf- leik. Uche Asika jafnaði fyrir Leikni. Sindri hefur átján stig í öðru sæti og leik til góða á bæði Hugin og Leikni en Leiknir hefur 12 stig í þriðja sæti. Huginn hefur tuttugu stig í efsta sætinu. Birgir Hákon Jóhannsson, Friðjón Gunnlaugsson og Brynjar Skúlason skoruðu mörkin í 2-3 sigri á Dalvík/Reyni þar sem Huginn lenti tvisvar undir. Næstseinasta umferð riðilsins fer fram um helgina, Sindri heimsækir Dalvík/Reyni og Spyrnir tekur á móti Leikni á sunnudag klukkan 19:00. GG Í sumar var tekinn í notkun níu holu golfvöllur í landi Kollaleiru í Reyðarf irði. Félagar í Golfklúbbi Fjarðabyggðar hafa byggt upp völl- inn í sjálfboðavinnu. Félagar í klúbbnum ætla að halda áfram og byggja upp fyrsta átján holu golfvöll- inn á Austurlandi. „Þetta er þriðja svæðið sem við höfum haft augastað á,“ segir Sigurjón Baldursson, formaður klúbbsins. „Við horfðum fyrst inn í Grænafell en síðan voru stórar hugmyndir um völl á Hólmum utan við álverið. Síðan kom þetta til þegar búskap var hætt á Kollaleiru. Okkur finnst þetta besta svæðið, það er nánast við bæjardyrnar og það hefur sýnt sig í því að það laðar að börn og unglinga. Það hefur myndast mikill golfáhugi á svæðinu meðal yngri iðkenda sem ekki var fyrir.“ Klúbburinn var stofnaður árið 2004 undir nafni Golfklúbbs Reyðarfjarðar en nafninu var breytt fyrir tveimur árum. Vallargerðin hófst í fyrra þegar gerðar voru sex holur en þremur var bætt við í sumarbyrjun. Úthlutun svæðisins er til bráðabirgða en þegar hún hefur verið staðfest verður haldið áfram með uppbygginguna. „Við stefnum upp í átján holu völl í framtíðinni,“ segir Sigurjón. „Við ætlum að byggja níu holur upp á austursvæðinu og endurgera þessar eldri innan einhverra ára. Með þessu yrði til fyrsti átján holu golfvöll- urinn á Austurlandi og það er ekki fyrirsjáanlegt að slíkur völlur verði byggður annars staðar. Heilbrigð skynsemi segir okkur að það hlýtur að vera hlutfallslega ódýrara að reka hverja braut á stærri velli.“ Völlurinn var byggður upp í sjálf- boðavinnu og fyrir félagsgjöld klúbb- meðlima. Sigurjón er ánægður með aðsóknina, þar sem upp í þrjá- tíu manns eru á vellinum í einu á góðum dögum, og jákvæð viðbrögð Reyðfirðinga. „Við höfðum frítt inn á völlinn í ár því við viljum hlúa að nýliðuninni með að gefa fólki kost á að prófa sig áfram án þess að eyða miklum peningum. Völlurinn var byggður upp í sjálfboðavinnu og í klúbbnum er öflugur og sterkur kjarni sem er tilbúinn að leggja á sig vinnu. Viðbrögð bæjarbúa hafa aðallega verið undrun yfir því að það skuli vera kominn níu holu golfvöllur við bæjardyrnar á svo skömmum tíma.“ GG 3. deild karla Huginn og Sindri í úrslitakeppni Golfklúbbur Fjarðabyggðar Stefna á átján holu völl Sigurjón Baldursson púttar á nýja vellinum. Mynd: GG Kristinn Þór Guðlaugsson nær valdi á boltanum með Ingvar Rafn Stefánsson í bakinu. Mynd: GG 2. deild karla Nauðsyn- legur sigur Þórarinn Máni Borgþórsson skoraði sigurmark Hattar. Óliver braggast Óliver Bjarki Ingvarsson, þjálf- ari Spyrnis og markvörður Hattar, mætti á sína fyrstu knattspyrnuæf- ingu í átta mánuði í seinustu viku. Óliver sleit krossbönd í hné um jólin. Í frétt á heimasíðu rekstrar- félags Hattar segir að ekki sé búist við að Óliver spili neitt í sumar. Hann klári tímabilið sem þjálf- ari Spyrnis. Rajko maður umferðarinnar Srdjan Rajkovic var valinn leik- maður 15. umferðar 1. deildar karla á vefmiðlinum fotbolti.net. Rajko varði mark Fjarðabyggðar gegn KS/Leifri í leik sem Fjarðabyggð vann 0-1. Hann hefur samt fengið á sig fleiri mörk en í fyrra. „Við höfum verið að fá á okkur mörk á síðustu mínútu fyrri hálfleiks og síðustu mínútu seinni hálfleiks og stundum höfum við komið kæru- lausir inn í leiki. Í fyrra vorum við mjög góðir varnarlega og fengum á okkur 17 mörk. Við misstum tvo mjög góða menn af miðjunni, Halldór Hermann ( Jónsson) og Jón Gunnar (Eysteinsson). Þess vegna hefur kannski verið mikið bil milli varnarlínu og sóknarlínu og þess vegna höfum við fengið 26 mörk á okkur í fimmtán leikjum í sumar.“

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.