Austurglugginn - 14.08.2008, Page 16
Verslið þar sem
úrvalið er…
…allt í einni ferð
Opið
mánud. - föstud. 9-19
laugardaga 10-18
sunnudaga 12-18 EGILSSTÖÐUM
EGILSSTÖÐUM
Tóti segir
Kjaftæði! Ormurinn
heldur sig fyrir
neðan brú.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
M
I
32
03
6
0
3/
20
06
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is
Umboðsmenn í Fjarðabyggð
// TM Neskaupstað
Hafnarbraut 6
740 Neskaupstaður
sími 477 1735
// Sparisjóður Norðfjarðar
Búðareyri 2
730 Reyðarfjörður
sími 470 1100
Á dögunum var Austurglugganum
boðið í siglingu frá Atlavík á fljóts-
ferjunni Lagarfljótsorminum.
Lagarfljótsormurinn siglir útsýnis-
ferðir um Lagarfljót flest kvöld yf ir
sumartímann. Auk þess er hægt að
halda veislur um borð samkvæmt
samkomulagi.
Ferjan sigldi frá Atlavík klukkan
níu um kvöldið á einu af þessum
fallegu sumarkvöldum. Stuttu áður
en siglt var frá landi þandi Alfreð
Steinar Rafnsson skipstjóri skipslúð-
urinn þannig að glumdi í öllum
Hallormsstað. Nokkrir ferðamenn
hrukku við og ákváðu að bætast í hóp
bátsgesta. Þegar stuttur tími var lið-
inn af siglingunni kom í ljós að um
skemmtisiglingu er að ræða.
Jón Arngrímsson tónlistarmaður
og kona hans Arna Chistiansen
voru eins konar gleðistjórar ferð-
arinnar. Jón sagði frá staðháttum
og skemmtisögur úr sveitinni auk
þess sem þau hjón sungu og spiluðu
austfirsk lög. Börnin sem voru áber-
andi um borð tóku fullan þátt í
gleðinni. Sannkallaður hápunktur
unga fólksins var þegar dansaður var
hókí pókí og farið í færeyskan hring-
dans sem Arna kenndi og stjórn-
aði af stakri snilld. Stórmerkilegt
er hversu vel hjónin náðu til
barnanna og gerðu þeim ferðina
með Lagarfljótsorminum ógleyman-
lega. Alfreð Steinar Rafnsson skip-
stjóri segir hafa verið ágætt að gera
í sumar. Góður farþegafjöldi hefði
verið þótt sumar væri nokkuð stutt
í ár. “Við leggjum mikið upp úr því
að gestir okkar skemmti sér vel um
borð. Það tekst yfirleitt vel upp, enda
eru þau Jón og Arna frábær. Börnin
eru stór hluti farþeganna og þau virð-
ast gleyma sér um borð í gleðinni.
Það er líka mikið sport að setjast í
skipstjórastólinn hjá mér og fá tekna
af sér mynd með skipstjórahúfuna.
Langoftast kemur það fyrir að við
sjáum Lagarfljótsorminn á dýptar-
mælinum, þá verður heitt í hamsi
hérna í skipstjóraklefanum,” segir
Alfreð.
Lagarfljótsorminum
bregður fyrir á dýptarmæli
Það er heilmikið sport að setjast í skipstjórastól-
inn hjá Alfreð og setja upp skipstjórahúfuna.
Börnin voru með sín eigin skemmtiatriði með aðstoð Jóns og Örnu.
Húsnæði
Til leigu 125 fermetra hæð í Hlíð-
unum í Reykjavík. Póstnr. 105.
Laus frá 1. september. Fjöldi skóla
í næsta nágrenni. Upplýsingar í
síma 869-1942. Ragnhildur.
Íbúð óskast!
Einhleypur 27 ára karlmaður
óskar eftir að leigja 2ja - 3ja
herbergja íbúð, á Reyðarfirði/
Eskifirði, á viðráðanlegu verði.
Er reyklaus og reglusamur.
Skilvísum greiðslum heitið. Vin-
samlegast hafið samband við Ólaf
Helga í síma 846-5552.
Smáauglýsingar