Austurglugginn


Austurglugginn - 05.12.2019, Qupperneq 4

Austurglugginn - 05.12.2019, Qupperneq 4
4 Fimmtudagur 5. desember AUSTUR · GLUGGINN Margir virðast líta svo á að byggðastefna snúist um að halda þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins á sama stað: að fólki fækki ekki úti á landi. Kannski eru stóru mistökin í byggðamálunum í gegnum áratugina þau að vera sífellt í vörn en ekki í sókn. Það má með sanni segja að lífið á Íslandi hafi breyst hratt á síðustu áratugum. Við höfum fylgt alþjóðlegri þróun sem felur í sér að borgir hafa stækkað og þeim fækkað sem búa í dreifbýli. Við þessu hafa ríkisstjórnir hvers tíma reynt að sporna við með sérstakri byggðastefnu. Það hefur þó ekki gengið betur en svo að 84% landsmanna búa nú á svæðinu sem við getum afmarkað með Hvítá í vestri og Hvítá í austri. Framsókn hefur ætíð lagt mikla áherslu á að byggðir geti blómstrað um allt land og er eini flokkurinn sem hefur flutt stofnanir ríkisins frá höfuðborgarsvæðinu út á land. Sókn en ekki vörn En hvað meinum við þegar við tölum um að fara úr vörn í sókn? Jú, það er ljóst að æviskeið fólks hefur breyst mjög og á eftir að taka enn meiri breytingum samfara fjórðu iðnbyltingunni. Það er ekki lengur svo að við hugsum ákvarðanir um búsetu og starfsvettvang sem klappaðar í stein. Við erum hreyfanlegri en við vorum, sækjum skóla víða um heim, setjumst að um stund eða höldum heim aftur. Þessum breytta veruleika verðum við að taka mið af þegar við tölum um byggðamál. Við verðum að skapa aðstæður til að fólk geti búið og starfað um allt land, ekki til að halda í fólk, heldur til að ná í fólk. Ljósið á Brekku Það var einkar ánægjulegt að heimsækja Sólbrekku í Mjóafirði í tilefni þess að þessi fagri fjörður var loks tengdur með ljósleiðara og er því einn af síðustu stöðunum á landinu til að fá slíka tengingu. Fjarskipti í Mjóafirði hafa verið með afbrigðum erfið og því stór dagur þegar „ljósið“ var komið. 99,9% Það var árið 2013 að annar undirritaðra, þá þingmaður, skrifaði grein sem bar yfirskriftina Ljós í fjós þar sem hugmyndir um stórátak í ljósleiðaravæðingu landsins voru reifaðar. Það er einkar ánægjulegt að sjá fyrir endann á einstöku verkefni á heimsvísu: 99,9% heimila og fyrirtækja verði komið með háhraðaljósleiðaratengingu árið 2021 í gegnum verkefnið Ísland ljóstengt. Það er ekki bara einstakur árangur í heiminum heldur hefur verið áhugavert að sjá Verkamannaflokkinn breska lofa álíka tengingum og nánast skotinn niður fyrir svo óraunhæfar hugmyndir! Ísland tækifæranna Góð fjarskipti eru líkt og samgöngur einn af mikilvægustu þáttunum til að stuðla að blómlegri byggð og sterkri um allt land. Ísland ljóstengt stuðlar að auknum lífsgæðum íbúa landsbyggðarinnar en það er ekki síður mikilvægt að horfa til þess að verkefnið veitir fólki tækifæri til að setjast að um allt land en vera í góðu og öruggu sambandi við allan heiminn. Hvort sem er Mjóafjörð eða Montreal, Þórshöfn eða Kaupmannahöfn. Byltingin í ljósleiðaravæðingu landsins er undirstöðuþáttur í Íslandi tækifæranna. Við bjóðum Mjófirðinga hjartanlega velkomna í gott samband. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra Jón Björn Hákonarson, formaður fjarskiptaráðs Austurglugginn - Fréttablað Austurlands // Kaupvangur 6, 700 Egilsstaðir // S: 477-1750 // 696 6110 • Ritstjórn: Gunnar Gunnarsson ritstjóri og áb.m: gunnar@austurfrett.is • Blaðamenn: Benedikt Karl Gröndal, Jens Einarsson frett@austurglugginn.is • Auglýsingar: Stefán Bogi Sveinsson: auglysing@austurglugginn.is • Áskriftir: Stefán Bogi Sveinsson: askrift@austurglugginn.is • Útgefandi: Útgáfufélag Austurlands ehf. • Umbrot og prentun: Héraðsprent Um óbærilegan léttleika jólatónlistar Það var viðeigandi að fá tilvitnun í Skrögg úr sögu Dickens „Draumur á jólanótt,“ um að meðtaka anda jólanna og varðveita hann, í fyrsta glugganum á jóladagatalinu. Þrátt fyrir tilvitnunina er þátttaka í #Whamageddon líklegri. Leikurinn #Whamageddon gengur í stuttu máli út á að forðast að heyra lagið „Last Christmas“ með Wham spilað á tímabilinu frá 1. – 24. desember. Til að gera árangur í leiknum mögulegan, án þess að flytja inn í Grýluhelli uppi á fjöllum, telja aðrar útgáfur en sú upphaflega ekki með. Ábreiðurnar eru fjölmargar, meðal annars er lagið til á íslensku. Jólalög eru undarlegt fyrirbrigði. Í spilun fer tónlist sem alla jafna myndi ekki heyrast árið um kring – og þá erum við ekki bara að tala um ítölsku slagarana sem Björgvin Halldórsson setti í jólalagabúning hér um árið. Jólatónlistin er fjölbreytt, sum er klassísk og hátíðleg, önnur er klisjukennd popptónlist sem fengi aldrei spilun nema fyrir að í lagið er bætt við bjöllum og orðinu „jól.“ Sumir elska þau, byrja að spila þau um miðjan nóvember, helst fyrir alla í kringum sig og fjölmenna á hvers konar jólatónleika. Aðrir hatast við þau. Langþreyttir fjölskyldufeður flýja föndurdaga yngstu barnanna svo jólatónarnir glymji ekki í höfðum þeirra næstu daga eða vikur. Jólatónlistin er hluti af markaðsvæðingu jólanna. Tónlistarmenn sjá sér leik á borði að gefa út diska og setja upp tónleika undir merkjum jólanna. Hún er líka þáttur af hefðunum sem við höldum svo sterkt í. Við vitum hvaða árstími er runninn upp þegar Jólahjól og Last Christmas glymja til skiptis úr útvörpunum. Í hinum vestræna heimi er hefð fyrir jólasálminum Heims um ból. Hann er sunginn á heimilum þegar jólin eru í gengin í garð, spilaður í messum, sunginn síðastur á jólaböllum þegar börn, foreldrar og jólasveinar eru komin með nóg og vilja komast aftur heim til sín. Í Austurríki má heimsækja litla kapellu sem sagt er að lagið hafi verið samið í. Mörgum ferðalöngum þykir hátíðleg stund að koma þangað inn. Skröggur í sögu Dickens þoldi ekki jólin, áleit þau húmbúkk og lokaði sig af. Svo fór þó að lokum að hann sannfærðist og meðtók anda jólanna. Það á kannski líka við um jólalaga-skrögga nútímans. Þeir eiga sér meira að segja sína uppáhalds útgáfu af Last Christmas – þótt þeir leggi sig fram um að forðast frumútgáfuna. GG Leiðari Sigfús Vilhjálmsson, bóndi í Mjóafirði, Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, Sigurður Ingi Jóhannsson og Jón Björn Hákonarson kátir í Mjóafirði síðasta föstuag. Mynd: GG Aðsend grein Úr vörn í sókn með ljósi í fjós

x

Austurglugginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.