Austurglugginn


Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 16

Austurglugginn - 05.12.2019, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 5. desember AUSTUR · GLUGGINN Þann 17. apríl vorið 1919 strandaði breski togarinn Clyne Castle frá Grimsby á Bakkafjöru í Öræfum. Veður var gott og skipið strandaði á flóði. Þrettán manna áhöfn komst næstum þurrum fótum í land. Skipsverjar voru fluttir til Hafnar í Hornafirði og þaðan sjóleiðis til Seyðisfjarðar. Komust þeir að lokum heilir á höldnu til síns heimalands. Björgunarskipið Geir gerði tilraun til að ná skipinu á flot en tókst ekki. Skipsströnd voru algeng á sandræmunni um sunnanvert landið á meðan útlendir stunduðu enn fiskveiðar við strendur landsins. Öræfingar og Suðursveitingar töluðu á árum áður um góð strönd og minna góð strönd, eins og lesa má um í bók Þórbergs Þórðarsonar, Í Suðursveit. Það sem gerir strand Clyne Castle sögulegter að bjartsýnir menn austur á fjörðum keyptu skipið þar sem það lá stráheilt í sandinum og töldu lítið mál að koma því á flot. Það tókst þó ekki. Flakið liggur ennþá í sandinum og sú öld sem liðin er frá strandinu hefur sett hrjúft mark á skipið. Munaði litlu Austfirðingarnir bjartsýnu sem sáu tækifæri í að bjarga Clyne Castle voru þeir Jóhann Hansson, sem rak vélsmiðju á Seyðisfirði og Valdór Bóasson, kaupmaður og útgerðarmaður frá Hrúteyri við Reyðarfjörð. Báðir heiðarlegir og vel liðnir dugnaðar menn. Á fimm ára tímabili, frá 1919- 1923, reyndu þeir í fjögur sumur að ná skipin á flot. Samkvæmt Morgunblaðinu 18. Janúar 2003 var ekkert aðhafst sumarið 1922, en árið eftir munaði hársbreidd að þeim félögum tækist ætlunarverk sitt. Mogginn segir svo frá: „Dráttarskip var komið á staðinn. Allt var klárt, bara eftir að kippa síðasta spölinn og þá myndi Clyne Castle aftur kljúfa öldur Atlantshafsins. Skipverjar voru búnir að kveðja björgunarmenn og veifa Öræfingum í síðasta sinn, um stund að minnsta kosti að því er þeir héldu. Búið var að koma út akkeri og setja spilvír í það til að hjálpa við dráttinn. Vélar skipsins voru gangsettar og skrúfan fór að snúast. Dráttarskipið fór að toga, en á örlagastundu slitnaði spilvírinn, flæktist í skrúfu togarans og allt var unnið fyrir gýg. Clyne Castle bar aftur upp í fjöru og hefur verið þar síðan.“ Þegar hér var komið sögu voru fjármunir björgunarmanna á þrotum. Að auki höfðu hinar árangurslausu tilraunir tekið sinn toll af andlegu þreki og björgunarstarfinu var hætt. Af dagbókum má sjá að ýmislegt hjálpaðist að við að tefja framgang björgunarinnar, en þó einkum veðrið, sem var sérlega leiðinlegt sumarið 1923. Mörg dagsverk fóru í súginn vegna roks og sjógangs. Afar líklegt má telja að Clyne Castle hefði náðst á flot ef veðurguðirnir hefðu verið björguninni hliðhollari. Strand og hrakningar Fleira volk hlaust af björgunar- tilraunum Austfirðinganna. Ísafold birti frétt um málið 15. September 1919 undir fyrirsögninni Strand og hrakningar. Þar segir meðal annars: „…Það [Clyne Castle] var síðan keypt af nokkrum Austfirðingum o- fl., er hafa verið við strandið í sumar við tilraunir að koma því á flot, sem einnig hefir mistekist. Síðan hafa þeir unnið úr því og flutt burt það, er fémætt var. Þar með var einnig vélasmiður Gissur Filíppsson héðan úr Reykjavík. Fékk hann fyrir stuttu lítinn mótorbát af Austfjörðum [ Jenný 8 tonna mótorbátur í eigu Valdórs Bóassonar], er var við strandstaðinn, til þess að flytja sig þaðan og út á Síðufjörur. Er þangað kom vildu bátsmenn, sem voru aðeins þrír, eigi setja hann á land, þar sem þeir óttuðust að þeir ef til vill kæmnst ekki út aftur. Fékk hann þá hjá þeim bátkorn, er þeir höfðu aftaní, til þess að fara einn í upp í fjörurnar og skolaði honum upp. Komst hann til bygða og er nú kominn hingað. En það er af mótorbátnum að segja, að hann lenti í mestu hrakningum, því að á skall stormur, er hann hélt austur, og kom hann eigi fram. Um sama leyti var hingað símað austan úr Skaftafellssýslu, til sýslumanns Gísla Sveinssonar alþingismanns, að mannlaus mótorbátur væri rekinn upp á Fossfjöru þar í sýslunni, tómur en lítið skemdur. Þótti þegar líklegt, að þetta væri austanbáturinn, og skömmu seinna fékk eigandi hans, Valdór Bóasson á Reyðarfirði, fregn um það símleiðis, að mennirnir væru komnir heilir á húfi til Englands, höfðu komist af í brezkan botnvörpung.“ Ekkert spurðist til skipverjanna af Jenný í rúman mánuð, þrátt fyrir loftskeyta- og símasamband milli Íslands og Englands, og voru þeir taldir af. Þeim var að vonum vel fagnað þegar hið sanna kom í ljós. Til minningar um strandið Í ágúst síðastliðnum voru sett upp tvö skilti við áningarstað vestan og upp með Kvíá í Öræfum. Annað skiltið er með kortum af skipsströndum og raflýsingu á bæjum í Öræfum, gert eftir heimildum sem Kvískerjabræður söfnuðu, og hitt með upplýsingum um strand togarans Clyne Castle. Það eru afkomendur Valdórs Bóassonar sem standa að verkefninu til minningar um hann og aðra björgunarmenn. Einnig um þá fjölmörgu sjómenn sem enduðu sína síðustu sjóferð á miðunum suðaustur af landinu. Ólafía Herborg Jóhannsdóttir, talsmaður verkefnisins, segir að tilgangurinn með skiltunum sé kannski ekki síst sá að gefa afkomendum þeirra sem misst hafa ættingja og forfeður í sjóslysum tækifæri til að minnast þeirra á fallegum stað. Einstaklingar og fyrirtæki hafa stutt við verkefnið. Kvískerjasjóður veitti styrk upp á kr. 500.000 og Menningamálanefnd Hornafjarðar kr. 100.000. Fyrirtæki eru m.a.: Fellabakarí í Fellum, Nettó Hornafirði, Stuðlastál ehf. Reykjanesbæ og VÖK Baths. JE Til minningar um strand Jenný SU 327, 8 tonna mótorbátur í eigu Valdórs Bóassonar. Kortið sem gert var eftir gögnum Kvískerjabræðra og sýnir hin ýmsu strönd sem orðið hafa í Öræfasveit. Aðeins tvö flök eru sjáanleg og er Clyne Castle annað þeirra. Clyne Castle í Bakkafjöru 1923, en þá munaði litlu að skipið næðist á flot.

x

Austurglugginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurglugginn
https://timarit.is/publication/1687

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.