Nesfréttir - 01.08.2021, Page 15
Nesfrétt ir 15
Þorkell var kosinn
sjálfboðaliði ársins af GSÍ
Á árlegum formannafundi GSÍ sem
nú var haldinn á Akureyri í framhaldi
af Íslandsmótinu í golfi var m.a. veitt
viðurkenning fyrir sjálfboðaliða
ársins innan golfhreyfingarnar.
Sjálfboðaliðastarf er á undanhaldi í
golfi sem og í öðrum íþróttagreinum
og er það miður.
Nesklúbburinn hefur hinsvegar
verið afar lukkulegur með framlag
félagsmanna til sjálfboðaliðastarfa og
verður seint fullþakkað fyrir öll þau
störf sem unnin eru af fólki sem gefur
klúbbnum tíma sinn og vinnu. Að taka
einn út fyrir sviga af öllum þeim sem leggja okkur hönd á plóg er erfitt val og
svo sannarlega ekki gert til að hylla einum umfram aðra.
Seltirningurinn Þorkell Helgason, meðlimur í Nesklúbbnum fékk viðurkenningu
sem sjálfboðaliði ársins hjá Golfsambandi Íslands. Þessi viðurkenning var
veitt í fyrsta sinn árið 2014 og Þorkell sjöundi sjálfboðaliðinn sem fær þessa
viðurkenningu. Hann er svo sannarlega vel að þessari viðurkenningu kominn
eins og allir aðrir sjálfboðaliðar. Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ, afhenti
viðurkenninguna á formannafundi GSÍ sem fram fór á Jaðarsvelli á Akureyri og
sagði við það tilefni eftirfarandi: "Þorkell Helgason er maður með gullhjarta sem
hefur unnið sjálfboðaliðastörf í þágu Nesklúbbsins undanfarna fjóra áratugi.
Hann hefur setið í flestum nefndum klúbbsins, þó lengst af í vallarnefnd, samfellt
í 14 ár. Frá árinu 1993 hefur Þorkell lyft grettistaki hvað varðar endurnýjun
vélarflota klúbbsins - ásamt því að leggja línurnar fyrir það ásigkomulag
vallarins sem hefur haldist frá þeim tíma. Þorkell sat í stjórn Nesklúbbsins á
árunum 1993-2005. Frá þeim tíma hefur Þorkell ávallt verið boðinn og búinn að
hlaupa í öll störf fyrir klúbbinn. Hann fór fyrir fögrum hópi sjálfboðaliða sem
nýverið endurgerði golfskála Nesklúbbsins ásamt því að byggja útigeymslur.
Þorkell er hinn eini sanni "alt mulig mand" sem ómetanlegt er að hafa innan
sinna raða. Því miður er aðeins til eitt eintak af þessum einstaka manni sem er
ávallt tilbúinn að leggja hönd á plóginn fyrir Nesklúbbinn."
Skráning í fermingarfræðslu Seltjarnarneskirkju vegna
ferminga vorsins 2022 fer fram í safnaðarheimili
kirkjunnar mánudaginn 30. ágúst kl. 17-19.
Fermingarfræðslan hefst í september.
Fermingardagar vorsins eru eftirfarandi:
- Pálmasunnudagur 10. apríl kl. 13.
- Sumardagurinn fyrsti 21. apríl kl. 11.
- Laugardagurinn 23. apríl kl. 11
Skráning í fermingarfræðslu
Seltjarnarneskirkju fer
fram 30. ágúst
Afgreiðslutími:
Mán: 11-16
Þri-fös: 11-18
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
TRYGGÐU
GRUNNINN!
Korkjógadýnur eru góður grunnur
Umhverfisvænar, sterkar, fallegar.
Grunnpakkin frá Virdian
Pakkinn sem við mælum með að þú takir inn daglega til að halda góðri
heilsu. Omega olía, fjölvítamín og meltingargerlar. Kíktu á úrvalið.
Notalegur og fallegur fatnaður
Lífrænn og einstaklega fallega hannaður fatnaður fyrir jóga og lífið.