Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 39
Opið bréf til Alþingis. Kæru þingmenn, -konur og -kvár. Notkun vopna hefur aukist hér á landi síðustu ár; hnífaburður er almennur í ákveðnum hópum, skammbyssum hefur fjölgað mikið og nú eru hálf- og alsjálfvirk skot- vopn farin að finnast í húsleitum og jafnvel verið að munda slík vopn í einhverjum tilfellum. Lögreglu- yfirvöld hafa miklar áhyggjur enda eru lögreglumenn í miðju þessarar þróunar og stíga inn í aðstæður sem sífellt verða varasamari. Sú staðreynd að hér á landi skulu yfir höfuð vera til hálfsjálfvirk og sjálfvirk vopn er fáránleg. Hvað hefur herlaus þjóð með ríka veiði- hefð að gera við slík vopn? Slík vopn eru hönnuð til að drepa fólk á skilvirkan hátt en ekki villt dýr í náttúrunni og við þurfum þau ekki. Þarna komið þið sterk inn, kæra þingfólk. Í vopnalögum er að finna ákvæði um að lögreglustjóri getur heimilað einstaklingi að eiga og varðveita skotvopn sem hefur ótvírætt söfn- unargildi af „sérstökum ástæðum“. Einnig má eiga takmarkað magn skotfæra fyrir slík vopn, enda hafi vopnin ótvírætt söfnunargildi. Sjálfvirk vopn (hríðskotabyssur) falla hér undir. Mér finnst þetta ákvæði fáránlegt og mögulega stór- hættulegt. Fíkniefni eru ólögleg og það má því ekki safna þeim. Barnaklám er ólöglegt og má ekki safna því. List- inn er lengri. En vopn sem hönnuð eru til að drepa fjölda fólks á mjög skömmum tíma? Jú, það má safna þeim. Af hverju? Af því að þau hafa tilfinningagildi fyrir safnarann? Getur einhver rökstutt þetta? Þeir sem sinna öryggismálum á fjölförnum og opnum vinnu- stöðum eru þessa dagana að endur- skoða hjá sér öryggismálin í kjölfar nýlegra frétta af meintri vopna- söfnun tveggja einstaklinga. Í dag skiptir ekki máli hver niðurstaðan af rannsókn lögreglu verður. Allir sem fylgjast með fréttum finna að það eru að eiga sér stað þjóðfélagslegar brey tingar er kemur að vopnaeign og -notkun hér á landi. Viljum við að íslenskir vinnustaðir fari að kenna starfs- fólki sínu að þekkja skothvelli úr fjarlægð til að hægt sé að bregðast tímanlega við? Það styttist í það að óbreyttu. Flestar skotárásir af þessu tagi taka u.þ.b. 90-180 sek- úndur og tala fallinna á þeim tíma getur skipt tugum á stórum vinnu- stað eða á atburði. Byssusafnarar eiga sumir hundr- uð vopna, mörg þannig að þau geta valdið skelfilegum skaða á mjög skömmum tíma. Það má ekki gleyma að byssusafnarar eru venju- legar manneskjur. Byssusafnari getur lent í fjárhagsörðugleikum, hann eða hún getur þróað með sér fíknivanda, geðræn vandamál, heilabilanir eða annað, sem veldur því að viðkomandi ætti ekki að vera með vopnabúr í sinni vörslu. Hefðbundið eftirlit með söfn- urum, leyfisveitingar, vottorð og annað slíkt er ekki nóg. Nýlegir atburðir sanna þetta; skotárás á bíl borgarstjóra, maður skaut ölv- aður úr skammbyssum á Stokks- eyri (hald lagt á 90 skotvopn), árás á Egilsstöðum þar sem viðkomandi var vopnaður m.a. skammbyssu, morð á Blönduósi og f leiri dæmi sem ekki verða rakin hér. Í þessu samhengi er oft talað um Þegar áhugamál styðja við fjöldamorð Eyþór Víðisson löggæslu- og ör- yggisfræðingur hversu örugglega byssusafnarar geyma vopn sín. Ég hef unnið sem sérfræðingur í öryggismálum í ára- tugi og ég get sagt það með mikilli vissu að það er ekkert rými svo öruggt að ekki sé hægt að brjótast inn í það. Svo er líka hægt að neyða fólk til að opna læst rými, nú eða gabba það. Það er gott að rifja upp þá reglu að besta leiðin til að stýra áhættu er að eyða henni. Að þessi vopn skuli vera til hér á landi er óþarfi. Það styttist í fyrstu hóp-skot- árásina hér á landi. 5, 10 eða 15 ár? Ég veit það ekki, en öll rök benda til þess að það styttist. Þegar slík árás verður gerð þá skiptir öllu máli að hún sé ekki gerð með sjálfvirkum vopnum. Það er erfitt að stýra vilja fólks til voðaverka en ég vil frekar sjá slíka árás gerða með hefðbundnum veiðiriff li en ekki t.d. sjálfvirkum AR-15 sem skýtur 45 kúlum á mínútu og getur borið 30 skota magasín. Þingfólk, nú er það í ykkar hönd- um að reyna að koma í veg fyrir fjöldamorð. Breytum vopnalögum og bönnum byssusöfnun. Það má kaupa söfnin af þessu fólki á sann- gjörnu verði, farga vopnunum og koma í veg fyrir atburði eins og við lesum um í öðrum löndum. Ástralir gerðu þetta eftir skotárás í Port Arthur árið 1996 þar sem 35 létust. Ekkert í líkingu við það hefur komið upp þar síðan. Komum í veg fyrir hugsanlegt f jöldamorð á Íslandi. Þið eruð í dauðafæri að koma í veg fyrir harmleik af þessu tagi. Nú er bolt- inn hjá ykkur. n Jafnvægisvog FKA sýnir svart á hvítu hver staðan er á jafnrétti meðal stjórnenda í íslensku atvinnulífi. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum fyrirtækja verði 40/60 árið 2027. Til þess að það gerist þarf að grípa tafarlaust til aðgerða. Er fyrirtækið þitt á réttri leið? Breytum þessu strax! Dagskrá ráðstefnu Ávarp Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Erum við að beita úreltum aðferðum? Dr. Ásta Dís Óladóttir, dósent í stjórnun og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands Jákvæð fyrirtækjamenning í flugtaki Birgir Jónsson, forstjóri PLAY Verum meðvituð um hið ómeðvitaða Ásta Fjeldsted, forstjóri Festi Allskyns orð Bragi Valdimar Skúlason, íslensku-, tónlistar-, markaðs- og sjónvarps- manneskja Eliza Reid forsetafrú flytur ávarp og veitir viðurkenningar Jafnvægisvogarinnar árið 2022 Kynnir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir MIÐVIKUDAGINN 12. OKTÓBER KL. 12–13:20 — Í BEINNI ÚTSENDINGU Á WWW.RUV.IS SKRÁÐU ÞIG Á JAFNVAEGISVOGIN.IS TIL AÐ HORFA Á RÁÐSTEFNUNA Katrín Jakobsdóttir Ásta Fjeldsted Eliza Reid Bragi Valdimar Skúlason Dr. Ásta Dís Óladóttir Birgir Jónsson JAFNVÆGISVOGIN 2022 STAFRÆN RÁÐSTEFNA JAFNRÉTTI ER ÁKVÖRÐUN JAFNVÆGISVOG 2022 VIÐURKENNING MIÐVIKUDAGUR 12. október 2022 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.