Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 40
Íslenska kvennalandsliðið
er úr leik í undankeppni HM
2023 eftir 1-4 tap gegn Portú-
gal í framlengdum leik í gær.
Íslenska liðið vaknaði til lífs-
ins eftir að hafa misst mann af
velli í upphafi seinni hálfleiks
en þreyttir fætur Stelpnanna
okkar héldu ekki í við Portú-
gali í framlengingunni.
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Frækin barátta íslenska
kvennalandsliðsins eftir að hafa
lent manni undir verðskuldaði ekki
jafn stórt tap og raun bar vitni þegar
Portúgal vann 4-1 sigur á Íslandi
í gærkvöld. Ísland missti mann af
velli í upphafi seinni hálf leiks og
lenti um leið marki undir en náði
að jafna leikinn og koma sér í fram-
lengingu. Þar skildi liðsmunurinn
að og gengu Portúgalir á lagið.
Portúgal fer því í lokakeppni HM í
fyrsta sinn en Stelpurnar okkar sitja
eftir með sárt ennið.
Þegar líða tók á framlenginguna
færði íslenska liðið sig framar á
völlinn sem skildi eftir stór pláss
fyrir Portúgali að sækja í og tókst
heimakonum að fegra úrslitin með
góðum skyndisóknum þegar líða
tók á framlenginguna.
Eftir vonbrigðin í síðustu undan-
keppni komst Ísland enn nær því
að komast í lokakeppni HM í fyrsta
sinn en líkt og síðast tókst ekki að
taka lokaskrefið sem er að komast
inn á HM. Óvíst er hvort að mikil
leikmannavelta verði í liðinu fyrir
næsta verkefni en næst tekur við
undankeppni EM 2025 sem hefst á
næsta ári.
Þorsteinn Halldórsson gerði eina
breytingu frá síðasta leik. Selma Sól
Magnúsdóttir kom inn í stað Svövu
Rósar Guðmundsdóttur. Með því
fór Þorsteinn aftur í leikaðferð
sem reyndist vel í 45 mínútur gegn
Hollendingum þegar Íslandi gekk
betur að loka á sóknarlotur Hol-
lands. Þá náði Sara Björk Gunn-
arsdóttir sér af f lensu sem var að
hrjá hana og var á sínum stað á
miðjunni.
Fyrri hálfleikurinn var jafn þrátt
fyrir að það vantaði meiri ró í sókn-
araðgerðir íslenska liðsins. Íslenska
liðið sat aftarlega á vellinum og
leyfði Portúgal að vera með boltann
án þess að Portúgal tækist að skapa
sér mörg færi. Að sama skapi áttu
Stelpurnar okkar erfitt með tengja
saman sóknir og komast í góð færi
með bitlausum sóknaraðgerðum
og var staðan því markalaus í fyrri
hálfleik.
Upphafsmínútur seinni hálf-
leiks voru örlagaríkar. Einn besti
kvendómari heims, Stéphanie
Frappart, var á flautunni og dæmdi
mark af Sveindísi Jane Jónsdóttur
á 49. mínútu leiksins eftir að hafa
skoðað myndbandsupptökur og
fundið brot í aðdraganda marks-
ins. Mínútu síðar var Frappart aftur
komin í skjáinn eftir að hafa dæmt
vítaspyrnu á Áslaugu Mundu Gunn-
laugsdóttur og vísað bakverðinum
af velli og stóð hún við dóminn eftir
að hafa skoðað hann nánar. Carole
Costa fór á vítapunktinn og skoraði
af miklu öryggi sem setti leikinn í
uppnám fyrir íslenska liðið.
Bakslagið virtist ef la íslenska
liðið sem átti sinn besta kafla stuttu
seinna og jafnaði Glódís Perla Vig-
gósdóttir metin með skalla fjórum
mínútum eftir að Portúgal komst
yfir með góðu marki. Íslenska liðið
hélt áfram að sækja en þegar líða
tók á seinni hálf leik færðu Stelp-
urnar okkar sig aftar á völlinn og
Portúgal náði stjórn á leiknum.
Þrátt fyrir mikla pressu Portúgals
fékk Ísland besta færið til að bæta
við marki en skot Sveindísar Jane
fór fram hjá markinu.
Það þurfti því að grípa til fram-
lengingar og hún var rétt farin af
stað þegar Portúgal komst aftur yfir.
Eftir fast leikatriði hjá Íslandi sóttu
Portúgalir hratt upp völlinn í yfir-
tölu og Diana Silva skoraði fram hjá
Söndru Sigurðardóttur.
Þreyttir fætur íslenska liðsins
reyndu að færa liðið framar á völl-
inn en við það opnaðist varnarlínan
upp á gátt og bættu Tatiana Pinto
og Francisca Nazareth við mörkum
áður en lokaflautið gall. n
HM-draumurinn rann út í sandinn
Svekkelsið í Portúgal var mikið eftir hetjulega baráttu íslenska liðsins í
Porto í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Íslensku stelp-
urnar þökkuðu
þeim tæplega
200 stuðnings-
mönnum sem
lögðu leið sína
á leikinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Þetta var aldrei rautt
spjald, hún er ekki viljandi að toga
hana niður,“ sagði Þorsteinn Hall-
dórsson, þjálfari kvennalandsliðsins,
svekktur eftir að íslenska landsliðinu
mistókst að tryggja sér farseðil á
Heimsmeistaramótið í Ástralíu og
Nýja-Sjálandi á næsta ári.
Íslenska liðið tapaði 4-1 í fram-
lengdum leik en í fyrri hálf leik
átti sér stað röð umdeildra atvika.
Stéphanie Frappart tók þá mark af
íslenska liðinu sem virtist löglegt.
Skömmu síðar rak hún Áslaugu
Mundu Gunnlaugsdóttur af velli og
dæmdi vítaspyrnu sem kom Portú-
Fátt hægt að segja til að hughreysta
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Þetta er ömurleg til-
finning,“ sagði svekkt og sár Agla
María Albertsdóttir eftir að hafa
upplifað það að sjá HM-drauminn
fara út um gluggann í Portúgal í
gær. Um rauða spjaldið á Áslaugu
Mundu hafði Agla þetta að segja:
„Ég horfði á þetta af bekknum, víti
og rautt spjald finnst mér harður
dómur. Þetta er ekki viljandi hjá
henni, þetta er rosalega svekkj-
andi,“ sagði Agla sem kom inn með
ágætan kraft í leikinn.
„Ég komst í færi sem hefði getað
breytt leiknum. Þetta er hrikalega
svekkjandi, þetta gerist ekki meira
svekkjandi í raun. Það gáfu allar allt
í þennan leik, það gat enginn gefið
meira.“
Umspilið f yrir HM er mjög
umdeilt þar sem einn leikur sker
úr um það hvort liðið fer á loka-
mótið og þá fékk Portúgal heima-
leik. „Þetta er galið fyrirkomulag,
að vera svona ofarlega og fá ekki
heimaleik. Það er enginn afsökun
en það skiptir miklu máli, þær sem
eru með fleiri stig ættu að fá heima-
leik að mínu mati,“ sagði Agla
María um svekkelsið sem fylgir því
að horfa á drauminn fara út um
gluggann í Portúgal. n
Allar stelpurnar gáfu allt í leikinn en
það dugði því miður ekki til
Svekktur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
gal á bragðið. „Maður var viss um að
dómarinn myndi dæma þetta mark
af í VAR,“ sagði Þorsteinn um markið
sem tekið var af Sveindísi Jane Jóns-
dóttir.
„Við vorum í vandræðum í fyrri
hálfleik að halda í boltann, við feng-
um samt sénsa til að gera eitthvað.
Við náðum að skapa fín færi.“
Þorsteinn átti erfitt með að finna
orð til að hughreysta niðurbrotna
leikmenn. „Það er lítið sem ég get
sagt til að hughreysta þær, draumur-
inn þeirra var að fara á HM og hann
rætist ekkert. Ég get lítið sagt til að
hughreysta liðið. Næsta verkefni er
í febrúar, þetta hefur verið strembið
ár og leikmenn þurfa frí.“ n
12 Íþróttir 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 12. október 2022 MIÐVIKUDAGUR