Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 26
 Kannski ættum við öll að gera þetta, að merkja jólagjaf- irnar sem við gefum með nöfn- um okkar sjálfra? Það er nú eitthvað til þess að íhuga. Arndís Jóhanna María Einarsdóttir jme @frettabladid.is MATARBÚÐIN NÁNDIN matarbudin.is Gefðu einstaka plastlausa matargjafarkörfu með vörum frá íslenskum smáframleiðendum, beint frá býli og Urta Islandica Austurgata 47 - Hafnarörður - Básvegur 10 - Reykjanesbær SÆLKERA GJAFAKÖRFUR Sendu okkur fyrirspurn og við hjálpum þér við að setja saman fallega plastlausa gjafakörfu matarbudin@matarbudin.is Arndís Þórarinsdóttir rifjar upp nytsamar jólagjafir sem Kópavogsbær gaf starfsfólki sínu. Önnur hefur nýst í snyrtimennskuna á meðan hin hefur verið ómissandi í ferðalögin. Arndís Þórarinsdóttir starfar sem rithöfundur og þýðandi en á meðan hún var enn þá á almenn- um vinnumarkaði vann hún lengst af sem deildarstjóri á Bókasafni Kópavogs. „Þar var ég í tíu góð ár, en hætti fyrir fjórum árum,“ segir Arndís. „Þetta var skemmtilegt starf í stóru samfélagi lesenda, en eftir því sem frá líður sakna ég meira hins nána samfélags samstarfs- fólksins. Vinnufélagar mynda oft alveg einstök tengsl. Þar fara ólíkir einstaklingar sem verja drjúgum hluta vikunnar saman, hvernig sem dagsformið er. Samstarfsfólkið fæst við úrlausn alls konar vanda- mála saman og samgleðst þegar vel gengur. Mér fannst ég eiginlega fyrst kunna að meta þennan góða félagsskap til fulls þegar ég var hætt og fann söknuðinn. Sem betur fer kem ég oft á safnið og hitti mína gömlu félaga,“ segir Arndís. Snyrtilegt starfsfólk á nýju ári Arndís segir að Kópavogsbær hafi haft þann háttinn á að gefa starfs- fólki sínu jólagjafir. „Sú gjöf sem ég nota mest er forláta naglasett sem inniheldur skæri, naglaklippur, þjalir og hvers kyns tól sem ég kann ekki alveg að nefna. Þetta er augljóslega mjög vel heppnuð gjöf því öll þurfum við að sinna einhverri naglaumhirðu. Settið er í haganlegum umbúðum sem fara vel í baðskápnum og bæj- arfélagið fékk væntanlega svolítið snyrtilegri starfsmenn á nýju ári. Þetta var, myndi ég segja, stöngin inn í vinnustaðajólagjöfum,“ segir Arndís og hlær. Geysihagleg tuðra Eftirminnilegasta gjöfin var samt mögulega, að sögn Arndísar, forláta íþróttataska á hjólum sem hún fékk fyrstu jólin sem hún vann fyrir bæinn. „Ég hóf störf að hausti svo það kom mér í opna skjöldu að stærsti pakkinn undir jólatrénu það árið væri frá nýja vinnuveitandanum. Upp úr pakkanum kom þessi geysihaglega tuðra, sem hefur dröslast með okkur fjölskyldunni í flestar sumarbústaða ferðir síðustu fimmtán ár, kirfilega merkt Kópavogsbæ. Þá hugsa ég fallega til bæjarstjórnarinnar þarna fyrir hrun, árið eftir fengum við svo kerti og spil, enda stemmningin svolítið önnur jólin 2008.“ Hlýjar tilfinningar kvikna „Mér finnst þetta raunar mjög skemmtilegt, að gjafirnar séu merktar bæjarfélaginu. Oft vilja fyrirtæki auglýsa sig og sinn varning með því að nota vöru- merki sín sem víðast, en hagur sveitarfélagsins af því að merkja naglasettið fannst mér ekki alveg augljós. Mögulega var það til þess að kveikja þessar hlýju tilfinningar í brjósti þiggjandans öllum þessum árum síðar. Kannski ættum við öll að gera þetta, að merkja jólagjafirnar sem við gefum með nöfnum okkar sjálfra? Það er nú eitthvað til þess að íhuga,“ stingur Arndís upp á. Ný bók fyrir allan aldur Arndís er starfandi rithöfundur og gaf nýverið út stórskemmti- lega bók sem ber hinn heillandi titil Kollhnís. „Hún gerist raunar í Kópavogi. Kannski það sé til marks um að Kópavogs-merkingin á naglasettinu hafi með góðum árangri talað til undirmeðvitundar minnar? Kollhnís er um stálpaðan strák sem heitir Álfur og fjölskylduna hans. Álfur gengur í skóla og æfir fimleika, en mestar áhyggjur hefur hann af því að fjölskyldan hans sé öll einhvern veginn á skjön; allt frá litla bróður sem kann ekki að segja nafnið sitt, til móðursysturinnar sem enginn í fjölskyldunni talar lengur við. Sagan fjallar um allan þann vandræðagang sem fylgir því að fullorðnast og átta sig á því að heimurinn er ekki jafneinfaldur og maður hélt. Ætli bókin sé ekki fyrir lesendur svona ellefu ára og eldri? Mér finnst í það minnsta óþarfi að setja aldurshámark á hana,“ segir Arndís, sem bætir við að sér hafi orðið það ljóst í störfum sínum á Bókasafni Kópavogs að hún eigi það sameiginlegt með mörgum öðrum fullorðnum lesendum að lesa fjölskyldubækur sér til gleði og ánægju. n Stöngin inn í vinnustaðajólagjöfum Arndís með tuðruna góðu sem er kirfilega merkt Kópavogsbæ og vel snyrtar neglur í þokkabót. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI jme@frettabladid.is Það hitta ekki allar jólagjafir í mark þegar kemur að fyrirtækjagjöfum og í þetta sinn var skotið langt út fyrir markið. Kannski er hugsunar- leysi um að kenna, en sagan sem hér fer á eftir ber vitni um það hversu mikilvægt það er að velja gjöf sem endurspeglar starfsmann, vinnu- veitanda og sambandið þar á milli. Hugmyndin að baki gjöfinni var án efa falleg, en í röngu samhengi getur ein lítil gjöf orðið að einhverju öðru, jafnvel móðgun. Jólakertið eftirminnilega Rut starfar í dag sem umsjónar- kennari í Álftamýrarskóla. Hún er leikskólakennari að mennt og starf- aði áður á leikskólanum Granda- borg og leikskóla Seltjarnarness. Hún lýsir sér sem 38 ára gleðipinna, miklum femínista og manneskju sem er almennt umhugað um rétt- læti á öllum sviðum lífsins. Á þeim tíma sem hún starfaði á leikskólanum Grandaborg og leikskóla Seltjarnarness, sem voru nú allmörg ár, hlutu hún og samstarfsfólk hennar þónokkrar jólagjafir eins og gengur og gerist á vinnustöðum kringum jólin. „Sú eftirminnilegasta var klár- lega jólakerti frá Hekla Ísland sem Reykjavíkurborg færði starfsfólki í leikskólanum Grandaborg eitt árið, líklega kringum 2010 eða stuttu eftir það,“ segir Rut. Bannað að kveikja á kertinu Rut segir að það eftirminnilegasta við þessa annars fallegu jóla- gjöf hafi ekki verið kertið sjálft endilega, heldur sú staðreynd að öllu starfsfólki leikskólans, sem taldi um 25-30 starfsmenn, var gefið þetta eina kerti, saman. „Það kjánalegasta við þetta allt er að það er stranglega bannað að kveikja á kertum í leikskólum,“ segir Rut og hlær. Það var því ómögulegt að kveikja á kertinu í vinnunni. Svekkt og hissa yfir gjöfinni Rut segir að hún og samstarfsfólk hennar hafi fengið að njóta þessa fallega kertis á kaffistofunni í einhvern tíma. „Að sjálfsögðu var þó slökkt á því,“ segir Rut. Þau sam- starfsfélagarnir veltu því margoft fyrir sér hvað hefði vakað fyrir Reykjavíkurborg með þessari jóla- gjöf. Hvort sá eða sú sem sá fyrir sér að þetta væri góð hugmynd að gjöf fyrir leikskólastarfsfólk, sæi kannski fyrir sér að starfsmenn skiptust á að taka kertið heim með sér og kveikja á því þar, því ekki mátti það í vinnunni. „Viðbrögð starfsfólks almennt leyndu sér ekki og var fólk nokkuð svekkt og hissa yfir þessari gjöf. En á sama tíma var gert óspart grín að vinnuveitendum starfsmanna sem augljóslega þekktu ekki sínar eigin reglur um bann við kertum á vinnustaðnum,“ segir Rut. Víðförult kerti Kertið fór þó ekki til spillis. „Já. Brandarinn endaði svo þannig að hópur starfsfólks neitaði að láta Reykjavíkurborg hafa sig að fífli og skiptist því á því að taka kertið heim til sín og kveikja á því. En sá hlær best sem síðast hlær og að mínu mati er það án efa jólagjafa- nefnd Reykjavíkurborgar sem þarna hefur líklega orðið að ósk sinni,“ segir Rut og glottir. n Óheppileg jólagjöf Rut minnist sérstaklega jólanna þegar starfsfólk leikskólans fékk kerti í jólagjöf frá Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 14 kynningarblað 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFYRIRTÆKJAGJAFIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.