Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 12.10.2022, Blaðsíða 8
olafur@frettabladid.is Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að hagvöxtur hér á landi verði 5,1 prósent í ár, 2,9 prósent á næsta ári, 2,6 prósent 2024 og 2,4 prósent 2025. Í spá sjóðsins til lengri tíma er því spáð að áfram dragi úr hagvexti hér á landi árin 2026 og 2027. Þessi hagvaxtarspá er talsvert undir þeirri spá sem Seðlabanki Íslands kynnti í síðustu viku, en bankinn reiknar með 5,9 prósenta hagvexti í ár en svo dragi úr hag- vexti á næsta ári. Spá Íslandsbanka er enn bjartsýnni, en bankinn spáir 6,8 prósenta hagvexti á árinu. Þá spáir Alþjóðagjaldey ris- sjóðurinn því að ársverðbólgan hér mælist 8,4 prósent og lækki hægt á komandi árum. Þannig verði verð- bólgan á næsta ári 6,7 prósent, 4,1 prósent 2024 og 2,7 prósent 2025. Samkvæmt þessu fer verðbólga ekki niður í 2,5 prósenta verðbólgumark- mið Seðlabankans fyrr árið 2026. Sjóður inn telur að sk uldir íslenska ríkisins fari lækkandi, úr tæpum 75 prósentum af landsfram- leiðslu í byrjun þessa árs og undir 50 prósent 2027. Einnig telur sjóðurinn að draga muni úr viðskiptahalla og jafnvægi komast á utanríkisvið- skipti Íslands árið 2024. A lþjóðag ja ldey r issjóðu r inn reiknar með að gengi krónunnar muni lækka um fimm prósent fram til 2027. n Það er samt eitthvað notalegt við það að vita að hverju notand- inn gengur þegar hann endurnýjar ThinkPad vélina sína. Björn Gunnar Birgisson Samkvæmt þessu fer verðbólga ekki niður í 2,5 prósenta verð- bólgumarkmið Seðla- bankans fyrr árið 2026. Erfitt er að gera sér í hugar- lund heiminn án einkatölva sem við berum með okkur hverja stund, hvert sem við förum. Fartölvur, spjald- tölvur, snjallsímar, jafnvel snjallúr – nánast öll okkar eru með eitt slíkt tæki eða fleiri við höndina allar okkar vökustundir. Eitt þeirra fyrirtækja sem gerði sig gildandi á tölvumarkaði þegar einkatölvur voru að ryðja sér rúms fyrir um fjórum áratugum var IBM, fyrst með IBM PC tölvuna. Þann 5. október árið 1992 fæddist svo fyrsta ThinkPad fartölvan, sem var fyrsta raunverulega ferðatölvan frá IBM og breytti leiknum. Tölvan hét ThinkPad 700c. Hönnuðir IBM horfðu til hins japanska Bento nestisbox þegar þessi klassíska vél var hönnuð, sem vann yfir 300 verð- laun á tveimur mánuðum. ThinkPadinn varð strax stöðu- tákn og hefur þjónað á fjarlægustu stöðum heimsins ásamt ótal ferðum út í geim. ThinkPad hönnunin sam- einar form og notagildi á einstakan hátt ásamt því að bæta upplifun notandans með áherslu á gæði. 30 árum síðar eru nýjustu vélarnar enn auðþekkjanlegar sem hin einstaka ThinkPad fartölva, jafnvel þótt IBM- nafnið sé löngu horfið af henni. Nú eru það vélar frá Lenovo sem bera ThinkPad-merkið. Ættarsvipurinn leynir sér hins vegar ekki Björn Gunnar Birgisson, vöru- stjóri ThinkPad hjá Origo, segir margt hafa breyst síðan fyrsta ThinkPad tölvan var kynnt til leiks. „Það er búið að vera ótrúlega gaman að fylgjast með tækniþróun síðustu ára, vinna með f lottasta framleiðandanum og sjá fartölvur þróast úr rúmlega 3 kg vélum í 1 kg á meðan afköst hafa rúmlega 200 faldast.“ 30 ár eru langur tími í tölvuheim- inum þar sem lögmál Moore lifir góðu lífi og hafa verið framleiddar um 200 milljón ThinkPad fartölvur á þeim tíma. Fyrstu vélarnar kost- uðu nánast bílverð en það hefur aldeilis breyst. Björn Gunnar, sem hefur starfað ThinkPad fagnar þrjátíu ára afmæli magdalena@frettabladid.is  Dave Stewart, framkvæmdastjóri Travelshift, segir að fyrirtækinu hafi tekist að leysa vandamál í ferðaþjónustunni sem ekkert annað fyrirtæki hafi náð að leysa. „Sú lausn er tengiferðin. Það er að segja þú getur bókað allt sem þú vilt bóka á einum stað. Hvort sem það er flug, bílaleigubílar, hótel eða jafnvel veitingastaðir,“ segir Dave. Travelshift er móðurfélag Guide to Iceland, Guide to Europe og Guide to Philippines. Árið 2021 hjá Travelshift ein- kenndist af Covid heimsfaraldri og áframhaldandi fjárfestingu í hug- búnaðarþróun og hugverkarétt- indum. Fyrirtækið sá smám saman aukningu í bókunum árið 2021 frá Covid-lægðunum 2020. Dave bætir við að ástæðan fyrir því að hann tók við starfi forstjóra Travelshift hafi verið sú að hann sá mikil tækifæri og vaxtarmöguleika í fyrirtækinu. „Fyrirtækið hefur haldið áfram að fjárfesta í hugbúnaðarþróun til að ná söluvexti á alþjóðavísu. Nafni félagsins var breytt í Travelshift úr Guide to Iceland til að endurspegla áframhaldandi umskipti þess úr markaðstorgi sem markaðssetur og endurselur íslenska ferðaþjónustu, í ferðatæknifyrirtæki sem hefur þróað alþjóðlega lausn,“ segir Dave. „Sem hluti af þessari stefnu hefur nú verið hleypt af stokkunum vef- síðunni guidetoeurope.com þar sem ferðamenn geta bókað frí alls staðar í Evrópu. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar árið 2021 verði að veruleika á þessu ári þar sem við kynnum Guide to Europe og gerum ráð fyrir að geta byggt á þekkingu fyrirtækisins til að ná umtalsverð- um vexti á evrópskum markaði,“ segir Dave enn fremur. Dave bendir einnig á að horfur fyrir Guide to the Philippines, sem er sameiginlegt verkefni með Philippine Airlines, séu nokkuð bjartar þar sem Filippseyjar eru nú að opna landamæri sín fyrir ferða- mönnum í kjölfar mjög strangra Covid-takmarkana sem settar voru árið 2020. n Hafa leyst stórt vandamál í ferðaþjónustunni ThinkPad 700c sem meðal annars var hægt að spila Microsoft Solitaire kapal í. Björn Gunn­ ar, vörustjóri ThinkPad, árið 2010 með ThinkPad far­ tölvu. Takið eftir IBM rúllukraga­ peysunni. Dave Stewart, framkvæmdastjóri Travelshift. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrirtækið hefur haldið áfram að fjár- festa í hugbúnaðar- þróun til að ná sölu- vexti á alþjóðavísu. Ólafur Arnarson olafur @frettabladid.is Nokkrir áfangar úr sögu ThinkPad n 1992 Fyrsti ThinkPadinn lítur dagsins ljós n 1993 Fyrsti ThinkPadinn fer út í geim n 2004 Fingarfaraskanni kemur til sögunnar á Think­ Pad n 2005 Lenovo kaupir Think­ Pad og kynnir hann sem spjaldtölvu n 2008 ThinkPad úr kol­ trefjum kemur til sögunnar n 2012 ThinkPad X1 Carbon með mikla vinnslugetu kynntur n 2015 Meira en 100 milljón ThinkPadar seldir frá upp­ hafi n 2022 ThinkPad Z úr endur­ unnu áli með vegan „leðri“ kynntur sem vörustjóri ThinkPad í rúmlega 20 ár, segir ferðalagið hafa verið magnað og flestir átti sig ekki á því hversu mikið frelsi ThinkPad hafi veitt notendum. „Hönnuðir ThinkPad halda í jap- anskar hefðir í bland við hátækni morgundagsins og hafa verið leið- andi þegar kemur að innleiðingu nýjunga. Það er samt eitthvað notalegt við það að vita að hverju notandinn gengur þegar hann endurnýjar ThinkPad vélina sína. Hágæðavara og frábær árangur í þjónustu hefur skilað sér í yfir 50 prósenta markaðshlutdeild á fyrir- tækjamarkaði enda segi ég alltaf að allir eigi skilið að fá ThinkPad,“ segir Björn að lokum. n Minni hagvexti spáð á þessu ári Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir minni hagvexti hér á landi í ár en Seðlabanki Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 8 Fréttir 12. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 12. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.