Fréttablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 12
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRI: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason
tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hinsegin
fólk sem
ferðast til
þessa lands
getur átt
yfir höfði
sér sjö ára
fangelsi ef
það verður
uppvíst að
kynhneigð
sinni.
Þjóðinni
hefur
vegnað
vel þegar
grunngildi
Sjálfstæðis-
flokksins
hafa fengið
að vísa veg-
inn áfram.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
benediktboas@frettabladid.is
Stjörnuleikur í Danaveldi
Fréttamaður frá RÚV hefur
staðið vaktina fyrir ríkis-
miðilinn í Danmörku svo eftir
hefur verið tekið og um hefur
verið rætt. Hefur hann mætt
með sixpensara á höfði og
forsíður dönsku blaðanna og
frætt landsmenn um að Danir
mæti á kjörstað þegar þeir eru
opnaðir en þegar kjörstöðum
sé lokað sé ekki lengur hægt að
kjósa. Sagt frá útgönguspám og
sýnt dönskukunnáttu. Jafn-
vel fundið Íslending sem mátti
kjósa. Þá hefur hann reynt að
útskýra í beinni útsendingu
hvað gerist nú, sem er sígild
spurning við þessar aðstæður.
Stjarna er fædd.
Krónur og aurar
Einkareknir fjölmiðlar á Íslandi
fá ekki milljarða í forgjöf eins
og RÚV og þurfa að passa sína
aura, að maður tali nú ekki um
heilu krónurnar. RÚV er ekki í
þeirri stöðu og getur sent fólk
utan eins og það vill. Jafnvel
þótt engin ástæða sé til. Stofn-
unin hefur fylgst með f lestum
kosningum með útsendara á
staðnum til að taka púlsinn á
fólkinu. Jafnvel þó að það tali
ekki tungumálið. Þau hafa sent
fólk til Frakklands í ár til að
taka viðtöl á ensku. Og nú á að
senda vinnuflokk á HM í Katar
þar sem Ísland er alls ekki að
taka þátt. n
� 13. NÓVEMBER � KL. 17.00 � SILFURBERG
íísssssllleeeeennnnndddiinnnnnguuuuurrr íí
ULUWATU HOFI
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu
karla hefst í Katar eftir sautján
daga, en undirbúningur þess hefur
kostað mörg þúsund erlenda verka-
menn lífið, enda hafa vinnuskil-
yrðin verið langt undir þeim öryggisviðmiðum
sem þykja sjálfsögð í Evrópu.
Engu að síður hafa forkólfar heimsknatt-
spyrnunnar geð í sér til að blása til glæsilegustu
fótboltaveislu síðari áratuga í þessu landi aftur-
halds sem ber enga virðingu fyrir mannslífum
og mannréttindum.
Mannvirðingu og umburðarlyndi skal um
stundarsakir vera komið fyrir í skugganum af
glæsilegum íþróttamannvirkjum sem kosta
allt að þrjátíu milljarða króna, sem nemur lík-
lega fjórföldum samanlögðum kostnaði við öll
heimsmeistaramótin hingað til.
Það er raunalegt að vinsælustu íþróttagrein
í heimi skuli vera valinn staður í ofbeldisríki
af því tagi sem Katar er. Það er skammarlegt
að knattspyrnuforystan í heiminum verðlauni
stjórnvöld í landi sem er uppfullt af eitruðum
fordómum – og eiga enga samleið með þeim
lýðræðisþjóðum sem trúa á skoðanafrelsi og
jafnrétti.
Í tilviki heimamanna liggur dauðarefsing við
samkynhneigð. Hinsegin fólk sem ferðast til
þessa lands getur átt yfir höfði sér sjö ára fang-
elsi ef það verður uppvíst að kynhneigð sinni.
Öll kyntjáning á götum úti er bönnuð.
Meira að segja gagnkynhneigt fólk, sem á að
heita það eina rétta samkvæmt kreddutrúnni í
landinu, má hvorki sýna ástúð á almannafæri né
deila hótelherbergi ef það er ógift. Og konur sem
koma til landsins verða að gjöra svo vel að hylja
axlir sínar og klæðast síðum pilsum svo þær
misbjóði ekki heimamönnum.
Á næstu vikum ætlar heimsbyggðin að gefa
afslátt af þeim mannréttindum sem barist hefur
verið fyrir með kjafti og klóm í svo að segja
mannsaldur. Á öllum þeim fótboltadögum sem
fram undan eru munu stórir hópar í frjálsum
samfélögum þessarar jarðar vera áminntir um
það að á tyllidögum helstu og ríkustu íþrótta-
greinar mannkyns er allt í lagi að loka augunum
fyrir harðsvíruðustu tegund af hinseginfóbíu
sem þekkist á þessari heimskringlu okkar.
Hvað hefðu íslensk knattspyrnuyfirvöld gert
ef Heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu
hefði verið valinn staður í Katar? Hefðu þau
skilið lesbíurnar í liðinu eftir heima?
Og hvað gerist í Katar næstu daga? Frægt er
þegar Megan Rapinoe hljóp upp í stúku á síðasta
HM kvenna og kyssti konuna sína eftir leik. Er
von til þess að eitthvað sambærilegt gerist á HM
karla í Katar? n
HM í fóbíu
Nú göngum við Sjálfstæðisfólk senn til kosninga
um formann og annað forystufólk í Sjálfstæðis-
f lokknum á landsfundi um næstu helgi.
Við alla þá sem trúa á frelsi einstaklingsins, jöfn
tækifæri, að verðleika og framtak skuli verðlauna
en um leið skuli okkar minnstu bræðrum og
systrum hjálpað til sjálfshjálpar vil ég segja: Við
viljum fá þig í starfið, við viljum eiga við þig samtal
og við viljum sannfæra þig um að Sjálfstæðis-
f lokkurinn sé f lokkurinn fyrir þig.
Ég lofa því stoltur, að þetta mun verða leiðar-
stefið í öllum mínum störfum nái ég kjöri sem
formaður á landsfundi Sjálfstæðisflokksins.
Þjóðinni vegnar vel þegar grunngildin vísa veginn
Þjóðinni hefur vegnað vel þegar grunngildi Sjálf-
stæðisflokksins hafa fengið að vísa veginn áfram.
Við sem deilum þessari lífssýn höfum langtum
meira sem sameinar okkur heldur en sundrar. Það
er mitt einlæga markmið að opna f lokkinn, leiða
saman ólík sjónarhorn sem byggja þó oft á sömu
gildunum og blása Sjálfstæðisfólki aftur von í
brjóst um að bjartir tímar séu fram undan.
Mín sýn er að Sjálfstæðisflokkurinn verði á ný
fjöldahreyfing okkar sem deilum sameiginlegum
gildum þó að okkur kunni að greina á í einstökum
málum.
Verum óhrædd, látum vaða
Stjórnmálaflokkar eru ekkert annað en fólkið
sem er í þeim og þess vegna skora ég á þig, sem
hefur verið að velta fyrir þér að sækja fund, heyra í
kjörnum fulltrúa okkar eða með öðrum hætti hafa
samband, að láta slag standa.
Sömuleiðis skora ég á allt Sjálfstæðisfólk sem
langar og vill tala máli sjálfstæðisstefnunnar á
kaffistofunni, fjölskylduboðum eða öðrum sam-
komum að láta vaða.
Við höfum ekkert að óttast, við höfum góðan
málstað að verja og við megum vera stolt af þeirri
lífssýn sem við höfum. n
Komdu fagnandi!
Guðlaugur Þór
Þórðarson
ráðherra og fram-
bjóðandi til for-
manns Sjálfstæðis-
flokksins
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR