Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 13
Þorsteinn Pálsson n Af Kögunarhóli Ríkisstjórn Katrínar Jakobs- dóttur tók á dögunum þá einstæðu ákvörðun að flytja skuldbindingar ríkissjóðs frá framtíðar skattborg- urum til framtíðar eldri borgara. Um er að ræða átján ára gamla áhættu vegna ríkisábyrgðar á útlánum Íbúðalánasjóðs, sem nú heitir ÍL-sjóður. Hrunið jók á vand- ann og síðan hefur verið aukið við hann með reglulegu millibili, þar á meðal af núverandi ríkisstjórn. Freistandi er að meta þessa stóru aðgerð út frá algengum pólitískum viðmiðum. Hver var aðdragandi og undir- búningur aðgerðarinnar? Hvernig standast rökin? Hvar liggur aðgerðin á skalanum frá hægri til vinstri? Og á hvaða siðferðilega grunni byggir hún? Undirbúningurinn Vandinn hefur verið skýr frá því að skýrsla um stöðu sjóðsins var birt 2013. Frá þeim tíma hafa ríkisstjórnir vanrækt að mestu þá afdráttarlausu árlegu lagaskyldu að gera tillögur um að koma jafn- vægi á fjárhag ríkisábyrgðarsjóðs. Allt fram á síðasta ár hafa að auki verið teknar ákvarðanir, sem hafa þyngt ríkisábyrgðarvandann. Viðræðutilboði ríkisstjórnar- innar til lífeyrissjóða fylgdi sú ákvörðun að niðurstaðan yrði ákveðin með lögum ef ekki semd- ist. Þetta gæti verið nauðung, sem leiðir til ógildingar samninga. Ekki er að sjá að lögfræðileg athugun hafi farið fram á þessu áhættuat- riði. Álitaefni er hvort stjórnar- menn lífeyrissjóða gerist sekir um umboðssvik semji þeir um atriði, sem leiða til skerðinga á lífeyris- réttindum. Ekki er að sjá að þessi lagalega óvissa hafi verið könnuð. Niðurstaðan sýnir níu ára sam- felld frávik frá ábyrgri fjármála- stjórn og allsendis ófullnægjandi mat á alvarlegum lögfræðilegum álitaefnum. Rökin Helstu rökin fyrir aðgerðinni eru þau að spara eigi 150 milljarða króna. Ríkisstjórnin ætlar eldri borgurum að borga brúsann fyrir skattborgara. Það er yfirfærsla á skuldbindingum en ekki sparn- aður. Önnur rök eru þau að heimilt sé að víkja stjórnarskrárvörðum eignarréttindum til hliðar með vísan í neyðarlögin frá 2008. Ríkis- stjórnin fellir þessi rök sjálf með því að afneita með öllu að neyðar- ástand ríki. Þá færir ríkisstjórnin fram þau rök að aðgerðin hafi verið nauð- synleg af því að hún vilji ekki binda framtíðarkynslóðum bagga. Þessi rök standast ekki af þeirri einföldu ástæðu að aðgerðin felur í sér að baggarnir eru fluttir frá framtíðar skattborgurum til fram- tíðar eldri borgara. Niðurstaðan er sú að því fer fjarri að röksemdafærslan standist þær kröfur, sem eðlilegt er að gera til ríkisstjórnar. Vinstri og hægri Þótt eignarrétturinn fari ekki lengur fyrir brjóstið á öðrum en hörðustu sósíalistum er afstaða til hans enn helsta viðmið um það hvort menn liggja til vinstri eða hægri í pólitík. Aðgerðin er reist á þeirri hugsun að víkja megi eignarrétti einstakl- inga til hliðar að geðþótta til þess að bæta stöðu ríkissjóðs. Afstaðan til möguleika sjálf- stæðrar millistéttar til sparnaðar og fjárhagslegrar fyrirhyggju er annað viðmið í þessu samhengi. Þetta borgaralega markmið víkur fyrir þörfum ríkissjóðs. Niðurstaðan er sú að aðgerðin liggur að þessu leyti verulega langt til vinstri. Siðfræði og sanngirni Þrátt fyrir framansagt getum við hugsað okkur að aðgerðin standist bæði almenn lög og stjórnarskrár- vernd eignarréttinda. En þá er spurningin: Væri hún að gefnum þeim forsendum sanngjörn og sið- ferðilega réttmæt? Hver er munurinn á ábyrgð skattborgara og eldri borgara? Eldri borgarar eru færri og bera því þyngri bagga hver og einn. Rétt- indi þeirra skerðast hlutfallslega jafnt. Skattborgararnir eru fleiri. Þeir tekjulægri borga hlutfallslega minna og fyrirtækin bera sína bagga. Að þessu virtu er ljóst að meiri sanngirni felst í því að skattborg- arar greiði fyrir þessar vanrækslu- syndir en eldri borgarar. Aðgerðin víkur því með afger- andi hætti frá almennum siðferði- legum hugmyndum um réttlæti. Ábyrg fjármálastjórn Lög um ríkisábyrgðir kveða á um að ríkisstjórn beri að gera árlega tillögu um aðgerðir til að koma jafnvægi á fjárhag ríkisábyrgða- sjóðs ef nauðsyn krefur. Þó að þetta hafi að miklu leyti verið vanrækt í níu ár er réttast að byggja ábyrga fjármálastjórn áfram á eðlilegri og réttlátri hugs- un gildandi laga. Engin rök standa til að breyta þeirri leikreglu. Hitt á ekkert skylt við ábyrgð að færa vandann yfir á eldri borgara. n Frá skattborgurum til eldri borgara Réttindi eru mikilvæg fötluðu fólki og þegar forskeytinu for er skeytt fyrir framan orðið réttindi breytist orðið skemmtilega og getur virkað bæði jákvætt og neikvætt en þá er það skýrt sem réttur umfram aðra. Í orðabók er réttur skilgreindur sem eitthvað sem einhverjum ber með réttu (að lögum, samningi eða hefð) og fær í kjölfarið til þess réttindi. Orðið forréttindi er hins vegar skýrt sem réttindi umfram aðra. Í aldanna og áranna rás hafa rétt- indi ólíkra hópa í samfélaginu verið mismunandi, þetta á til dæmis við um fólk með mismunandi litaraft, mismunandi trúarbrögð, fatlað fólk og ófatlað. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) er alþjóðlegur mannréttindasamn- ingur sem ætlað er að verja og efla réttindi og virðingu fatlaðs fólks. Aðildarríki viðurkenna að fatlað fólk hefur ekki hlotið sömu tækifæri og réttindi til jafns við aðra, og ber að vinna að þeim. Íslensk stjórnvöld undirrituðu samninginn árið 2007, fullgiltu hann 2016 en hafa enn ekki lögfest hann. Alþingi samþykkti vorið 2019 þingsályktunartillögu sextán þing- manna um að ríkisstjórninni yrði falið að undirbúa lögfestingu SRFF og að frumvarpið skuli lagt fyrir Alþingi eigi síðar en 13. desember 2020. Það varð hins vegar ekki að veruleika en lögfesting samnings- ins myndi tryggja að fatlað fólk á Íslandi gæti byggt rétt sinn á samn- ingnum með beinum hætti. Það yrði mikil réttarbót. Í örfáum tilvikum eru birtingar- myndir í menningunni jákvæðar og kallast á við forréttindi. Í goðafræði, en það voru trúarbrögð norrænna og germanskra manna, fórnaði Óðinn, sem var æðsti guðinn, öðru auga til að njóta þeirra forréttinda að fá visku í staðinn. Nafn hans samanstendur af liðunum óð og inn, þar sem fyrri hlutinn táknar vit og sál, jafnvel orku og lífskraft. Annað dæmi, sem þó er tvíbent að taka fyrir, þar sem fötlun er álit- in forréttindi, er hin geysivinsæla kvikmynd Forrest Gump. Þar virð- ist samnefnd aðalsöguhetja vera heppin með eindæmum. Á það að öllu jöfnu við um fatlað fólk? Lang- f lestir myndu svara því neitandi. Gump virðist vera seinfær og það er tilviljunum háð hvernig ævi hans þróast þó gæfurík sé. Höfundar láta þó söguhetjuna sýna tilfinningar, gleði og sorg – auk þess sem þetta er þroskasaga. Sem dæmi um staðal- ímyndir af fólki með þroskahömlun er að það sé alltaf glaðlynt, sem er vitaskuld rangt. Tom Hanks fór með hlutverk Gump en aðeins 3% fatlaðra leikara fá hlutverk í sjónvarpi og kvik- myndum, jafnvel þótt hlutverkið eigi að túlka veruleika fatlaðs fólks. Ófatlað fólk fær frekar hlutverkin og það þó fatlað fólk sé um 15% mannkyns. Sem dæmi um jákvæða þróun má þó nefna þættina Með okkar augum, sem fólk með þroska- hömlun stýrir. Enn er þó langt í land og í samn- ingi Sameinuðu þjóðanna er árétt- að að fatlað fólk sé eftir sem áður „hindrað í að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra og stendur frammi fyrir því að mannréttindi þess eru brotin alls staðar í heiminum.“ Með lögfestingu samningsins öðlast fatlað fólk sjálfsögð réttindi – ekki forréttindi heldur réttindi til jafns við aðra. n For-réttindi – Við eigum öll jafnan rétt til sjálfstæðs lífs Unnur H. Jóhannsdóttir blaðamaður Enn er þó langt í land og í samningi Sam- einuðu þjóðanna er áréttað að fatlað fólk sé eftir sem áður hindrað í að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra og stendur frammi fyrir því að mannréttindi þess eru brotin alls staðar í heiminum. Ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um vélhjól og bíla. Saga Harley-Davidson-mótorhjóla á Íslandi frá 1917 til okkar daga. A M E R Í S K A G O Ð S Ö G N I N LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is FIMMTUDAGUR 3. nóvember 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.