Fréttablaðið - 03.11.2022, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 3. nóvember 2022
Moldin í fataskápnum
speglar moldina í sköpuninni
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er einn af meðlimum Svikaskálda og hefur bæði í samvinnu
við þær og sjálf gefið út fjölda ljóðabóka og skáldverka. Hún kann að meta falleg föt úr
góðum efnum og vekur ávallt athygli fyrir einstaklega fallegan og ljóðrænan fatastíl. 2
Skáldið Ragnheiður Harpa segir fátt jafnast á við falleg föt úr góðum efnum. Fötin segir hún vera eitt tjáningarform af fjölmörgum sem okkur standa til boða
og vera einstakan spegil inn í sálarlífið. Hún er sammála Sigurði Pálssyni um að það sé mikilvægt fyrir sjálfið að klæða sig á hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Skærir litir hafa verið áberandi í
haust. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Dæmigerðir haustlitir í fatatískunni
eru sinnepsgulur, rauður, mosa-
grænn og brúnn. En samkvæmt,
Vogue er það ekki raunin í haust. Á
tískuvikunni í Kaupmannahöfn í
vor var mikið um litagleði og skærir
litir voru áberandi. Þar mátti sjá
allt frá appelsínugulum og skær-
grænum fötum til hefðbundnari
haustlita. Tískuspekúlantarnir hjá
Vogue segja að þó að tískan fæðist
á sýningarpöllunum lifni hún ekki
við fyrr en hún sést á götum úti. Það
er spurning hvort skærir haustlitir
hafi skilað sér til Íslands í ár eða
hvort fólk haldi sig við hefðbundn-
ari haustliti, eða svartan klæðnað
sem virðist vera einkennislitur
Íslendinga þegar kólna fer í veðri.
Danir leggja línurnar
Sæblár litur hefur einnig verið að
ryðja sér til rúms á tískupöllunum
undanfarin misseri og er farinn að
sjást í götutískunni í Kaupmanna-
höfn og víðar. Áhrifavaldar í höfuð-
stað Danmerkur hafa látið sjá sig í
bláum fötum frá toppi til táar við
ýmis tækifæri núna í haust og hefur
það smitað út frá sér til almennings.
Sama má segja um appelsínugulan
lit og skærgrænan. Þessir litir hafa
allir ratað frá tískupöllunum til
almennings. Það væri gaman ef
Íslendingar tækju Danina sér til
fyrirmyndar og klæddust björtum
litum á dimmum haust- og vetrar-
dögum. n
Skærir haustlitir
QUICK CALM
Vellíðan - skerpa
Fæst í Fjarðarkaup, www.celsus.is
FLJÓTVIRKT
FRÁBÆR
MEÐMÆLI