Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 20
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL.IS Sendingin komin Söngkonan Taylor Swift sem er 32 ára hefur breyst úr því að vera kántrí-söngkona í heimsfræga poppstjörnu með yfir 60 milljónir hlust- enda á Spotify og heimsmet á vinsældalistum heimsins. elin@frettabladid.is Taylor Swift er fyrsti tónlistarmað- ur sögunnar sem nær því að eiga öll lögin í tíu efstu sætum banda- ríska smáskífulistans. Þar tekur hún fram úr Drake sem átti fyrra metið en þar á undan voru það Bítlarnir sem áttu átta af tíu vin- sælustu lögunum árið 1964. Taylor er að koma inn á plötumarkaðinn eins og stormsveipur eftir tveggja ára hlé. Hún nýtti sér samfélags- miðla eins og Instagram og TikTok til að byggja upp spenning fyrir útkomu plötunnar sem tókst með eindæmum vel. Aðdáendur hennar eru kallaðir „Swifties“. Það er nýja breiðskífan, Mid- nights, sem hefur náð þessum gríðarlegu vinsældum. Aðdáendur biðu einmitt mjög spenntir eftir því að platan kæmi á markað í október. Stjarna Taylor hefur risið hratt að undanförnu en hún gaf út sína fyrstu hljómplötu aðeins 16 ára. Á sama tíma hefur listamaður- inn prófað ýmsar tónlistarstefnur auk þess sem fatastíll hennar hefur verið fjölbreyttur. Þannig hefur hún tengt saman tónlist og klæða- burð. Rauður varalitur er eitt af sérkennum hennar. Í viðtali sem tekið var við hana í Teen Vogue segist Taylor ekki hafa verið mjög smekkleg í klæðavali á menntaskólaárunum. Hún nefnir þó ógleymanleg dress, kjól frá Oscar de la Renta sem hún klædd- ist á Met Gala árið 2014. Hún segir að gamaldags klassískt útlit henti sér vel og hún lítur meðal annars til Audrey Hepburn til að fá inn- blástur. Þá finnst henni skemmti- legt að blanda saman ólíkum fata- stílum. Þegar Vogue spurði hvað væri í mestu uppáhaldi, svaraði hún: „Flíkur með háu mitti.“ Hafði áhuga á kántrí Taylor fæddist í West Reading í Pennsylvaníu í desember 1989. Hún flutti til Nashville aðeins fjórtán ára með fjölskyldu sinni til að láta drauma um að verða kántrí-söngkona rætast. Árið 2004 skrifaði hún undir samning við Sony/ATV Music Publishing og Big Machine Records árið 2005. Hún hefur selt yfir 200 milljónir platna á heimsvísu og er í f lokki þeirra mest seldu í heiminum. Hún hefur hlotið ellefu Grammy-verðlaun ásamt fjölda annarra verðlauna og viðurkenninga. Hún hefur verið á lista Rolling Stone yfir 100 bestu textahöfunda heims. Swift hefur verið einlægur talsmaður fyrir réttindum listamanna og vald- eflingu kvenna. Tónlist hennar er sögð hafa haft áhrif á tónsköpun margra söngvara og lagahöfunda. Sjálf var hún nefnd eftir söngva- skáldinu James Taylor. Skapar nýja sögu í listaheiminum Taylor Swift er að slá öll heimsmet og hefur selt flestar hljómplötur allra tónlistarmanna í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Taylor Swift fékk heiðurs- doktorsnafnbót við háskólann í New York í maí. Heiðruð í New York-háskóla Í maí á þessu ári fékk Taylor heiðursdoktorsnafnbót við New York-háskóla fyrir framlag hennar til lista. Það er mikill heiður og Taylor flutti áhrifamikla ræðu sem þúsundir útskriftarnema fögnuðu ákaft. Sjálf er hún ekki háskólagengin. Nýja platan, Mid- nights, toppaði eigið met Taylor Swift sem hún sló fyrir fimm árum með Reputation og hún er að skipu- leggja risastórt tónleikaferðalag í fyrsta skipti í fimm ár næsta vor sem nefnist The Eras Tour. Fyrir fimm árum náði Reputation sölumeti í Bandaríkjunum í hefð- bundinni plötusölu með 1,216 milljónum eintaka seldum. Midnights toppaði þetta met á aðeins fjórum dögum. Inn og út af samfélagsmiðlum Með nýju plötunni kom Taylor sterk inn í samfélagsmiðlana en kannski muna einhverjir eftir því þegar hún lenti í deilum við Kim Kardashian og Kanye West árið 2016 með þeim afleiðingum að hún hætti að koma fram opinberlega og fór í frí á samfélagsmiðlum. Fjar- vera hennar var mikið áfall fyrir aðdáendur sem höfðu fylgst með henni. Deilur Taylor og Kanye eru sagðar ná allt aftur til ársins 2009 þegar hún var á sviði á MTV Video Music Awards að taka á móti verð- launum fyrir myndband sitt You Belong with Me. Þegar Taylor var að þakka fyrir sig stökk Kanye West upp á sviðið, greip hljóðnemann og sagði að það væri Beyoncé sem ætti besta myndband allra tíma. Deilur þeirra undu upp á sig og standa trúlega enn. Viðvera Swift á samfélags- miðlum minnkaði einnig áður en Reputation kom út en þá eyddi hún öllum færslum sínum á sam- félagsmiðlum. En hún er komin á fullt aftur og er sögð ótrú- lega klár markaðs- maður. Með- fram plötunni setti Taylor á markað vörulínu eins og hettupeysur og mismunandi litar vínylplötur sem safnarar þurfa örugglega að eignast. Á útgáfudegi plötunnar seldust 500 þúsund eintök en það er þrisvar sinnum meira en platan Harry’s House með Harry Styles seldist alla fyrstu vikuna í sölu. Vínylplötur hafa verið mjög vinsælar en talað er um að konur séu 34% kaupanda þeirra en 55% aðdáenda söng- konunnar eru konur á aldrinum 13–34 ára. Tay- lor hefur náð einstaklega góðum árangri í að tjá sig í gegnum ýmsar tegundir af lagasmíðum, hún er sögu- maður sem jafnframt er skapandi listamaður. n Taylor hefur fengið óteljandi verðlaun og viður- kenningar á ferli sínum sem hófst þegar hún var sextán ára. Rauði vara- liturinn hefur lengi verið sérkenni Taylor Swift. 4 kynningarblað A L LT 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.