Fréttablaðið - 03.11.2022, Síða 32

Fréttablaðið - 03.11.2022, Síða 32
BÆKUR Gratíana Höfundur: Benný Sif Ísleifsdóttir Útgefandi: Mál og menning Fjöldi síðna: 351 Brynhildur Björnsdóttir Benný Sif Ísleifsdóttir heillaði les- endur með skáldsögunni Hansdæt- ur sem kom út árið 2020 og lýsti lífs- baráttunni í vestfirsku sjávarþorpi kringum aldamótin 1900. Hún dró þar upp ljóslifandi myndir af harðri lífsbaráttu og grimmilegri misskipt- ingu í samfélagi sem ferðast mjög mishratt á vit framtíðar og aukinna lífsþæginda og skapaði eftirminni- legar persónur. Svo eftirminnilegar að f ljótlega tóku að heyrast áköll um framhald, lesendur vildu vita meira um Hansdæturnar, einkum þó Gratíönu. Hér verður Benný við þeim áköllum og Gratíana segir frá örlagaári í lífi samnefndrar persónu. Við hittum Gratíönu aftur nokkr- um árum eftir að fyrri bókinni lauk þar sem ekkert hefur þokast henni í vil. En örlögin grípa í taumana og f ljótlega er Gratíana komin til Reykjavíkur og þaðan ferðast hún víða um land, hún situr hest í fyrsta sinn, lærir að synda, kynnist ástinni og fær að njóta þekkingar sinnar og greindar. Við kynnumst lífinu í myndarlegum torf bæjum, fínu hóteli í Reykjavík, kvennaskóla á Norðurlandi og kaupmannsheim- ili á Austurlandi, gerólíkum lifn- aðarháttum í sama landi þar sem blandast saman hokur og híalín, grábrún fortíð og lit- rík framtíð. Misskipting og forneskja Lýsingarnar á líf- inu annars vegar í torf bæ og hins vegar á fínu hóteli í Reykjavík eða rík- mannlegu kaup- m a n n s h e i m i l i úti á landi eru heillandi og slá- andi, á innbúi, lifnaðarháttum og daglegu líf i sem draga upp sterka mynd af íslensku sam- félagi fyrir 120 árum, misskipt- ingunni, forn- eskjunni sem leið hægt undir lok við hlið nútímans sem æðir áfram. Þetta kristallast til dæmis í ólíkum aðbúnaði til að kasta af sér vatni og fleiru, annars vegar er boðið upp á f lórinn í fjósinu og hins vegar vat nssaler ni með öllu til- hey randi og það er hress- andi að þessi sjálfsagði hluti af daglegu lífi sé til umfjöllunar í sögulegri skáld- sögu. Konurnar eru sem fyrr aðalper- sónurnar og eru einnig vel dregnar upp og heillandi, nema nálgunin við Sigurlaugu sem fær ekki skilning í sögunni sem kona í gríðarlega erfiðri lífsaðstöðu á þess- um tíma sem þráir samneyti og ást eins og aðrir. Gratíana er líka venjulegri í þessari bók en hinni fyrri, hugsar meira um nýja kjóla og vonbiðla en verkalýðsbaráttu, ritstörf og kven- réttindi. Þó er gefið í skyn í bókarlok að hún muni taka upp þann þráð og því má alveg vonast eftir einni bók í viðbót um Gratíönu og fjölskyldu hennar úr Bótarbugtinni. Enginn eftirbátur fyrri bókar Bókin lýsir stórum örlögum og djúpum sorgum og minnir á íslensk bókmenntastórvirki frá því um miðbik síðustu aldar sem lýsa sömu tímum, eftir höfunda eins og Guðrúnu frá Lundi og Halldór Lax- ness. Fyrst og fremst er hún þó lipur aflestrar, framvindan spennandi og persónusköpunin heillandi. Gratíana er sannarlega enginn eftirbátur fyrri bókarinnar og mjög ánægjulegt að endurnýja kynnin við bæði persónur og sögusvið sem er bæði svo nærri okkur og fjarri. n NIÐURSTAÐA: Afskaplega vel skrifuð og skemmtileg bók sem varpar lifandi ljósi á ástir og örlög kringum aldamótin næstsíðustu. Ástir og örlög um næstsíðustu aldamót Bókin lýsir stórum örlögum og djúpum sorgum og minnir á íslensk bókmennta- stórvirki frá því um miðbik síðustu aldar. Brynhildur Björnsdóttir Sunna Dís Másdóttir rithöfundur skoðar gamlar minningar í fyrstu ljóðabók sinni, Plómur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sunna Dís Másdóttir hefur sent frá sér sína fyrstu ljóða- bók, Plómur. Bókin fjallar um endurminningar, sambönd og nýjar upplifanir en í henni tekst Sunna á við tímabil sem hún upplifði sem unglingur þegar hún bjó í Svíþjóð. ragnarjon@frettabladid.is Þrátt fyrir að Plómur sé fyrsta ljóða- bók Sunnu Dísar er hún langt frá því að vera byrjendahöfundur þar sem hún hefur áður tekið þátt í þremur ljóðabókum og skáldsögunni Olíu með ljóðakollektívinu Svikaskáld- um sem var meðal annars tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaun- anna 2021. Um viðfangsefni bókarinnar segir hún að minningar frá fyrri tíð séu helsti innblásturinn. „Ég flutti sem sagt til Svíþjóðar þegar ég var fimmtán ára og byrjaði í sænskum menntaskóla tveimur vikum síðar, alveg ótalandi, og bjó síðan þar úti í fjögur ár. Þetta eru ljóð sem eiga sér fyrir- myndir  úr gömlum dagbókum frá mér,“ segir Sunna Dís sem hitti blaðamann í Gröndalshúsi í Grjóta- þorpinu en þar er aðsetur Svika- skálda. Að mat i Su n nu D í s a r er bókin  ferðalag aftur í tímann og tilraun til þess að endurvekja þessa dvöl sem hafði mikil áhrif á á hana. „Kjarninn í þessari bók er sam- band við vinkonu sem var svo erfitt að skilgreina á sínum tíma. Þegar maður er unglingur og að fóta sig í nýju landi og nýju tungumáli og nýrri vináttu og nýjum sam- böndum. Ég er í raun ekki enn viss um það hvernig ég myndi skilgreina þetta samband en þessi ljóðabók er kannski tilraun til þess að takast á við það,“ segir hún. Ungar en stórar tilfinningar Tíminn sem Sunna Dís tekst á við er tími sem margir lesendur ættu að kannast við úr eigin lífi. Þegar hver dagur virðist byrja og enda heila ævi og stórar tilfinningar geta f lækst fyrir skilningi manns á ver- öldinni. „Mig langaði að fara alveg inn í unglingadramatíkina með þessari bók,“ segir Sunnar Dís sem á í sam- ræðu við sitt fyrra sjálf í bókinni. „Þetta eru svo miklar og stórar til- finningar og það er allt svo ofboðs- lega viðkvæmt á þessum tíma og mér finnst svo mikil fegurð í því. Þannig langaði mig ekki bara að yrkja um þennan tíma og þessar upplifanir frá mínum sjónarhóli núna tuttugu árum seinna. Mig langaði frekar að fara beint inn í kvikuna þar sem allt er bæði það besta sem getur komið fyrir þig og hrikalega þrúgandi um leið. Það er svo frjór staður til að vera á.“ Sjálfsprottin náttúra Frjósemi er stór partur af bókinni en ljóðin eru mörg hver uppfull af náttúru sem sprettur og hverf- ist um ljóðmælandann og teiknar upp sterkar myndir af umhverfinu. Sunna Dís segir að náttúran í bók- inni sé að vissu leyti sjálfsprottin. „Bókin kom bara þannig til mín,“ segir hún. „Þetta er efni sem ég er búin að bera með mér lengi og hafði í raun aldrei almennilega fundið leiðina að því eða hvað ég vildi gera við það. Fyrsta ljóðið sem ég skrifaði heitir Mold þar sem hrúga af plóm- um er að rotna. Það varð inngangur- inn að þessu öllu saman. Stundum bíður maður bara eftir einhverjum glugga sem opnast.“ Sunna Dís segir að náttúran hafi þannig læðst inn um þennan opna glugga. „Þegar hún var komin þá fann ég að þetta var umhverfið sem ég vildi vera í,“ segir hún. „Því það að f lytja á milli landa, jafnvel þó að það sé ekki meira framandi staður  en Skandinavía, stækkar og víkkar heiminn svo mikið. Að kynnast nýjum hlutum. Eins og fyrsta skiptið sem ég sá epla- tré í blóma þá stóð ég á öndinni. Ég hafði auðvitað séð myndir og teikningar af þeim og vissi að þau blómstruðu en þegar ég sá það átti ég í raun ekki til orð yfir hvað það var fallegt.“ Skáldaðar minningar Sunna Dís segir að fyrir henni sé skáldskapur langáhugaverðasta leiðin til að takast á við minningar eins og þessar. „Ég las um daginn að þegar maður skrifar um minningar þá sé sannleikurinn í raun tilfinningin eða tryggðin við upplifun mann- eskjunnar sem var þá. Það er satt. Alveg sama hvort maður hafi gleymt einhverju nákvæmu um tímasetn- ingar eða jafnvel að maður hafi upplifað eitthvað á allt annan hátt heldur en manneskjan sem maður var með á þeirri stundu. Mér finnst þetta svo mikill kjarni. Það er það sem ég er að vinna með í þessari bók.“ n Minningar sem bera ávöxt Þetta eru svo miklar og stórar tilfinningar og það er allt svo ofboðs- lega viðkvæmt á þess- um tíma og mér finnst svo mikil fegurð í því. Sunna Dís Másdóttir Pétur Ben tónlistarmaður segir lesendum Fréttablaðsins frá listinni sem breytti lífi hans, laginu Ebony and Ivory með Paul McCartney og Stevie Wonder. „Þegar maður er sjö ára þá veit maður ekkert hver maður er eða hvað maður vill gera. Ég eignaðist vasadiskó sem ég held mögulega að ég hafi fengið þegar ég þurfti að vera á spítala nokkrum árum áður. Það var ekki endilega mikið af tón- list keypt á heimilinu en mamma hlustaði á ABBA og Billy Joel.“ Pétur segir fjölskyldunni svo hafa borist hvalreki þegar þau fengu að eiga kassettur vinar for- eldra hans. „Ég fór í gegnum kassetturnar, fann þessa kassettu og varð svona ástfanginn af þessu lagi, Ebony and Ivory. Ég held að það hafi haft bara alveg djúpstæð áhrif á mig. Ég hafði ekki hugmynd um hvað hvorki ebony né ivory þýddi. Það hefur örugglega einhver útskýrt fyrir mér hvað þetta þýddi, annars vegar nóturnar á píanóinu og hins vegar væri þetta líka vísun í ein- hvers konar kynþáttaerjur. Tilraun til að slökkva einhverja elda og græða sár. Mér finnst þetta bara mjög fallegt lag enn þann dag í dag. Það er eflaust hægt að segja að þetta sé einhvers konar naíf hugsun en mér finnst það ekki, mér finnst það bara fallegt. Ég er með einhverja minningu af því að ganga um hverfið um kvöld og hlusta á þetta lag í heyrnar- tólum og uppgötva þá í leiðinni þennan hljóðræna heim. Að vera í einhverri svona hljóðs-væru. Þetta var mikil opinberun á margan hátt.“ n n Listin sem breytti lífi mínu 24 Menning 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 3. nóvember 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.