Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 6

Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 6
fótspor Meistarans, þegar þeir verja miklu af tíma sínum og kröftum til að lina hinar líkamlegu þjáningar mannanna. Til þess að framkvæma þetta ætlunarverk, reka þeir 62 heilsuhæli og sjúkrahús, sem til eru í mörgum ólíkum löndum, og í við- bót við þessar stofnanir höfum vér 64 lækningastofur og ininni stofnan- ir, sem standa í sambandi við kristni- boðsstöðvar vorar. Hér um bil þús- und útlærðir læknar og sex þúsund hjúkrunarkonur og aðstoðarmenn starfa við áðurnefndar stofnanir. Tala þeirra sjúklinga, sem þar fengu lækn- ishjálp og hjúkrun árið 1938 var nær því 700,000. Læknar þeir, sem eru Aðvenistar, fá hina beztu menntun, sem lækna- vísindin geta í té látið. Miklum hluta kristniboðanna, sem sendir eru út, eru einnig kenndar nokkrar hinar mikilvægustu aðferðir við að stunda sjúklinga og líkna þjáðum, áður en þeir fara út á kristniboðsakurinn. Fyrir nokkru síðan var frá nokkrum amerískum útvarpsstöðvum útvarpað ræðu um lækningastarf vort, sem vér ætlum að tilfæra hér ofurlítið af. Ræðuna hélt einn af leiðtogum Baptista: „Sjöunda dags Aðventistar hafa framkvæmt mikið lækningastarf alls staðar úti um heiminn .... Þeir hafa farið út, ekki sem ofstækismenn í trú og kenningum, heldur sem sannir kristniboðslæknar, sem hafa fært sér í nyt hinar beztu uppfinn- ingar læknisvísindanna og handlækn- ingafræðinnar, og sameinað þetta hinu auðmjúka lunderni Jesvi frá Nazaret. Þeir feta óþreytandi i fót- spor hans, sem gekk um kring og gerði gott. Undir öllum kringumstæð- um leitast þeir við að sameina heil- brigði líkamans og velferð sálarinn- ar. Guð blessi þá.“ Fyrir hér um bil þremur árum síðan var ég á ey nokkurri sunnantil í Kyrrahafinu, þar sem búa um 7000 manns. Tveimur árum áður var ástandið meðal þessa fólks svo ótta- legt, að yfirvöldin álitu að það ætti enga viðreisnarvon. Þetta fólk var veikt, óþrifalegt, og sokkið niður í hræðilegustu lesti. Með samþykki stj órnarinnar lögðu sj ö innfæddir kristnir kennarar af stað frá Salómonseyjunum vit til þessarar eyj- ar til að búa meðal fólksins þar. Þessir innfæddu menn voru gerbreytt- ir orðnir fyrir áhrif fagnaðarerindis- ins, og nú fóru þeir að boða þess- um eyjaskeggjum með kenningu og dæmi sínu betri lifnað. og fengu þá til að líta þrifalega vit, og læra góða siði. Arangurinn varð sá, að eftir tvö ár var þetta fólk orðið laust við alla ósiði sína og lesti, og líkamlegir sjúk- dómar þeirra hurfu. Þeir kynntust líka fagnaðarboð- skapnum. Þeim var birtur vegurinn til Krists, og þeir tóku á móti hon- um sem persónulegum Frelsara frá synd. Og nú fara þessir menn, sem svo dásamleg breyting hefir orðið á. til annarra eyja sem kristniboðar. Svona mikill er máttur fagnaðar- erindisins, þegar hann birtist í ein- faldleik og trú. Og þetta er árang- urinn af að flytja boðskap hjálpræð- isins í öllum löndum. Framh. á bls. 6. 4

x

Í fótspor Meistarans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Í fótspor Meistarans
https://timarit.is/publication/1727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.