Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 22

Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Blaðsíða 22
Frá Vestur-Afríku. Galdralæknir með hjáguði sina. frá barnæsku, hafa gengið Guði á hönd, og eru nú ágætir kristnir inenn. Sumir þeirra eru orðnir sem stólpar í musteri Guðs, og leggja nú jafn- mikið kapp á að hjálpa öðrum, eins og áður að eyðileggja þá undir for- ustu Satans og til að afla sér fjár. Slíkir menn hafa nú mikil áhrif. Aft- urhvarf þeirra er umtalsefni fólks í skógarhéruðunum á margra mílna svæði umhverfis þá, og af þessu leiðir, að beiðnir koma til vor frá þorpum og héruðum um að senda æfða kennara þangað, sem einnig geta hjálpað fólkinu til að skilja, hvernig vald hjátrúarinnar verður brotið á bak aftur, og óttanum út- rj7mt. Mörgum slíkum hjálparbeiðnum höfum vér til þessa ekki getað svar- að, af því oss hefir vantað hin nauð- synlegu hjálparmeðul. Munið það, að oftast eru það hinir innfœddu, sem biðja oss um að koma og kenna sér. Það eru þeir sem eru frumkvöðlar að því. Og vér, sem höfum ljósið, dirfumst ekki að synja um það þeim, sem ennþá sitja í myrkri, en langar til að fá hlutdeild í ljósi því, sem vér getum fært þeim. Látum oss hjálpa þeim. A. C. Vine, Nígería. 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* Sjáið, sjáið ástar undur, alheims Drottinn fyrir oss sætir Iasti. lemstri’ og kvölum, loks er negldur sýkn á kr'oss. Fyrir oss hans dýra dreyra dropinn síðsti út þar rann. Flýt þjer, maður, hugar hrærður, höndla dýpsta kærleikann. Hver leit ástar undur meiri eða’ í neinu þessu lík? Hve nær birtist mannheim mæddum miskunn fyr á jörðu slík? Þessi náð er þín, ef viltu: þigðu, njóttu, býður hann beygðum, hryggum, særðum, sjúkum. Sjáið dýpsta kærleikann! 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4» 4* 4* 4* 4* 4* 4* 4* 20

x

Í fótspor Meistarans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Í fótspor Meistarans
https://timarit.is/publication/1727

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.