Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Síða 7
Sýnishorn af innfæddum Afríkumönnum. Til
rinstri sést stúlka frá Naidi, en til hægri er
hópur afrikanskra barna, sem bíður eftir að
verða ljósmyndaður.
Hvar er bróðir þinn?
Áður en ég fór út á kristniboðsak-
urinn, hafði ég allan hugann á því
að ávinna sálir fyrir Guð heima á
fósturjörð niinni. Sjaldan hugsaði ég
til þeirra miljóna í heiðingjalöndun-
urn, sem liía í andlegu myrkri, og
þarfnast hjálpar bæði í líkamlegum
og andlegum efnum, og ennfremur
kristilegrar samúðar og kærleika. En
svo kom sá dagur, að orð Drott-
ins við Kain: „Hvar er bróðir þinn?“
hrifu mig svo, að mér fór að skilj-
ast það, að það var ekki sú þjóð
ein, sem ég starfaði á meðal, er var
bræður mínir og systur, heldur og'
fólkið í hinum fjarlægu heiðingja-
löndum.
Þegar ég í dag starfa sem kristni-
boði í Sierra Leone, Vestur-Afríku,
hljómar sama spurningin í eyrum
mér: „Hvar er bróðir þinní’“ og
knýr mig til að hjálpa af fremsta
megni þjáðum bræðrum mínum, hvar
sem þeir verða á vegi mínum.
Þegar hið dásamlega fagnaðarer-
indi hjálpræðisins hefir hreinsað þessa
hörundsdökku menn bæði innvortis
og útvortis, svo að andlit þeirra
ljóma af gleði og þakklæti, finnst
kristniboðanum hann hafa fengið
nægileg laun fyrir það, sem hann
hefir lagt í sölurnar fyrir velferð
þeirra.
Afríkumenn sjálfir hafa líka lært