Í fótspor Meistarans - 01.06.1939, Page 8
að fórna til hjálpar meðbræðrum sín-
um. Vér höfum hóp göfuglyndra inn-
fæddra Afríkumanna, sannra Guðs-
þjóna, sem inna af hendi ágætt starf.
Margir frelsast frá djöfladýrkun og
hræðilegri hjátrú; margir eru leiddir
úr myrkrinu inn í hið dásamlega ljós
fagnaðarerindis Krists. I stað þess að
láta skottulæknana pína sig og kvelja,
mánuðum og árum saman, til einkis
annars en að flýta fyrir dauðanum,
fær nú þetta fólk sökum þessa kristi-
lega styrktarstari's, nauðsynlega lækn-
ishjálp, og samtímis er sáluhjálpar-
vonin kveikt í hjörtum þess.
Það hefir óumræðilega blessun í
för með sér að rétta bágstöddum
bróður hjálparhönd, þó að hann búi
fjarri oss. Ég gleðst nú við að hugsa
um það, að margir eru til á ættjörð
minni, sem finna til ábyrgðar þeirrar,
er á þeim hvílir. og eru fúsir til að
hjálpa þjáðum meðbræðrum, jafnt í
fjarlægum löndum sem heima.
S. Broberg, Sierra Leone.
F AGN AÐ ARERINDIÐ
TIL ALLS HEIMSINS.
Framh. af bls. 4.
Frásögn innlends manns.
Meðan ég dvaldi í trúboðsheim-
sókn fyrir nokkrum dögum síðan,
hitti ég fyrverandi Múhameðstrúar-
mann, sem nú trúir á sannan Guð.
Við töluðum um mátt Guðs. Hann
sagði: „Ég þakka Guði fyrir þann
boðskap, sem fólk þitt hefir flutt hing-
að út til vor. Þegar ég var fylgjandi
Múhameð, átti ég son, en hann dó.
Prestarnir sögðu mér að ég skyldi
færa dánum foreldrum mínum fórnir.
Eg gerði það. og eftir að ég hafði
borgað prestunum ríflega. sögðu þeir
við mig, að ég mundi aldrei missa
barn framar. Nokkrum árum síðar
eignaðist ég annan son. Þá fórnaði
ég geit og svíni, og færði prestinum
að gjöf peninga, hrísgrjón og fugla,
og gaf hann mér í staðinn litla snúru,
sem ég átti að binda um hönd konu
minnar. En ég missti nú samt sem
áður þennan son. Þá ákvað ég að
reyna hinn sanna Guð. Kennarinn
sagði, að ég ætti að trúa á Guð, og
ég fór að sækja kirkju. Ári síðar ól
kona mín tvíbura, son og dóttur.
Ég fór með börnin til kirkju. og
kennarinn bað fyrir þeim. Ekki færði
ég einn einasta eyri í fórnargjöf, en
ég reiddi mig á Guð, og bað hann
hjálpar. Nú á ég sex börn, og ég
hefi ákveðið að „búa í húsi Drottins
langa æfi.“
Það eru mai’gar þúsundir í Afríku
nú, sem hafa séð og reynt kraft
fagnaðarboðskaparins, og þeir lyfta
höndum sínum og hjörtum til hæða
í innilegri bæn: „Komið hingað og
hjálpið oss.“ Vilt þú ekki hlusta á þá
með samúð, og gera oss mögulegt
að verða við beiðni þeirra.
T. R. Harding, Sierra Leone.
6
Sjúklingar á Xgoma-sjúkrahúsinu í Ruanda,
Afríku.