Flug : málgagn Flugmálafélags Íslands - 01.03.1939, Side 13
Grund í Eyjafirði. Stórar grasflatir, fremur
harðar, ca. 150x600 m.
Melgerðismelar. Mjög góðir, sléttir og harðir
ca.600x600 m.
Möðruvellir í Eyjafirði. GóS nýrækt og hörS
ca. 400x400 m.
Akureyri. Tún Jakobs Karlssonar. Hart en
ekki vel slétt.
Eiðar á Fljótsdalshéraði. Sandflatir við Lag-
arfljót, blautar, ekki nothæfar nema í mikilli
þurkatíS.
Eydalir í Breiðdal. Melar vestan viS bæinn,
sléttir, alisæmilegir. Mætti þar gera flugvöll ca.
400x400 m.
Breiðdalsvík. Sandflatir sem yfir flæðir í stór-
straumum, nægilega harðir, ca. 400x700 m.
Krossbær Hornafirði. Gróin sandflöt, hörð en
svolítið hnjóskótt og með grunnum rásum. Á
sandflötum sunnan Hornafjarðar, gegnt þorp-
inu í Höfn mun heppilegasti lendingarstaður-
inn í Hornafirði.
Skógasandur. Viðáttumikill, harður og slétt-
ur og auðvellt að gera þarna góðan flugvöll.
Lent var vestast á sandinum.
Þegar leiðangursmenn voru komnir til Akur-
eyrar, og höfðu kynnst hinum mörgu nothæfu
lendingarstöðum á flugleiðinni frá Reykjavík,
settu þeir sig í samband við Björn Eiríksson
flugmann, sem næsta dag kom við annan
mann, Albert Jóhannsson, á Bláfuglinum, sem
einnig er tveggja manna flugvél með 90 ha.
hreyfli.
Fylgdust þessar tvær flugvélar að austur og
suður um land til Reykjavíkur. Var þetta mjög
heppileg ráðstöfun, þar eð þessar tvær vélar
hafa mjög mismunandi hæfileika til lendingar
og einnig við að hefja sig til flugs.
Bláfuglinn, sem flaug beinni leið, eyddi ben-
zíni og smurningsolíu í hringflug þetta fyrir
um 60 krónur.
Mætti það benda til þess, að ómaksins sé
vert, að leita uppi nothæfa lendingarstaði fyr-
ir landflugvélar á okkar hlutfallslega stóra
og strjálbýla landi, og koma síðan á vel skipu-
lögðu og hóflegu landflugi, þar sem kostnaði
öllum yrði stilt í hóf og hann sniðinn eftir f jár-
hagslegri getu og þörf slíkra samgangna.
Guðbrandur Magnússon.
FLUGFÉLAO AKUREVRAR
Það var stofnað í júnímánuði 1937, með 25
þús. króna höfuðstól. Formaður félagsins er
Vilhjálmur Þór.
í aprílmánuði 1938 keypti félagið nýja ame-
ríska fjögra farþega flugvéþsem nefnistWaco,
fylgdu henni bátar, hjól og skíði. Sakir skorts
á flugvöllum, hefir hún aðeins verið notuð sem
sjóflugvél til þessa.
Með flugvél þessari hefir verið starfrækt
farþegaflug síðan 2. maí s. 1. En Agnar Kofoed
Hansen flugmaður hefir stýrt flugvélinni.
Skal hér skýrt frá starfsemi Flugfélags Ak-
ureyrar. í fyrsta lagi frá sumarstarfinu og
síðan frá vetrarstarfinu til febrúarloka.
Sumarflugið. 2. maí til 30. sept.
Eftirspurn eftir flugi var meiri en félagið
gat fullnægt.
Með farþega var flogið á 27 staði víðsvegar
um landið, en af þessum lendingarstöðum eru
þrjú stöðuvötn, Þingvallavatn, Vesturhóps-
vatn og Miklavatn í Fljótum.
Á þessum tíma flutti flugvélin 750 farþega,
rúma 50 þús. flugkílómetra. Alls voru flogin
385 flug, og leysti flugvélin af hendi 99,3%
af þeim verkefnum, sem hún hafði tekið að
sér.
Milli Reykjavíkur og Akureyrar var flogið
60 sinnum, en til Siglufjarðar 61 sinni.
FLVCt
11