Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 110
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun Torg ehf.
dReifing Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
ÞÍN ÚTIVIST
ÞÍN ÁNÆGJA
icewear.is
ERTU AÐ
FLYTJA?
Ég hitti Hjálmar Jónsson skáld frá
Bólu á dögunum á fundi í Félagi
beiskra gamalmenna (FBG). Egill
Skallagrímsson, Hallgrímur Péturs-
son, Jóhannes Birkiland, Gissur jarl
Þorvaldsson, Davíð Oddsson og
fleiri eru virkir í félaginu, auk mín.
Við hittumst reglulega og ræðum
óréttlæti og dómhörku heimsins.
Við erum sammála um að hafa
verið vanmetnir og ekki fengið
tækifæri í lífinu.
Hjálmar var beiskur útí Skag-
firðinga. „Þeir sökuðu mig um
sauðaþjófnað og hröktu mig frá
Bólu. Ég endaði ævina eins og
niðursetningur.“
„Þetta er ekkert skárra í dag,“
sagði Davíð. „Ég var hrakinn úr
Seðlabankanum eins og hver annar
óreiðumaður. Enginn les lengur
Reykjavíkurbréfið mitt nema
félagar í Sósíalistaflokknum sem
hæðast að mér.“ Hallgrímur Péturs-
son tautaði dapurlega: „Ég lauk
lífshlaupinu eignalaus í Ferstiklu á
Hvalfjarðarströnd. Nú er farið að
syngja Bubba Morthens í jarðarför-
um í staðinn fyrir „Blómstrið eina“.
Gissur stundi þungan og sagði: „Ég
kom Íslandi undir Noregskonung
enda sá ég fyrir væntanlegan
olíuauð Norðmanna. Íslendingar
klúðruðu því og kenna mér um
ófarir sínar gagnvart Dönum.“
„Heimur versnandi fer,“ sagði
ég. Verum þakklátir fyrir netið þar
sem við getum náð fram hefndum.“
Birkiland mælti: „Enginn les okkur
lengur. „Harmsaga ævi minnar“
er öllum gleymd.“ „Enginn man
lengur eftir mér,“ sagði Egill. „Fólk
heldur að ég hafi stofnað gos-
drykkjaverksmiðju.“ Hjálmar
hnyklaði brýnnar og fór með
þennan seinnipart: „Hæg er leið
til helvítis,/ hallar undan fæti.“/
Fundurinn samsinnti þessu með
lófataki. n
Beiskir karlar
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
NOTHING (R)
NÝTT
Í NÓVEMBER
tolvutek.is
54.990
Ný kynslóð örgjörva
Verð frá
NOTHING
ear (stick)
23.990