Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 10
Þar sem þetta er svo einföld breyting og tæknilega ekki flókin, þá fannst mér algjör- lega ástæðulaust að bíða með þetta. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdótt- ir, þingmaður Viðreisnar Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2023 Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á sviði heilsueflingar og forvarna. Áherslur við styrkveitingu fyrir árið 2023 verða eftirfarandi: • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu. • Aðgerðir sem miða að því að efla félagsfærni. • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu. • Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir. • Verkefni sem tengjast kynheilbrigði. • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu. Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum: • Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi • Þingsályktun um lýðheilsustefnu til ársins 2030 • Stefna í áfengis- og vímuvörnum til 2020 • Stefna í geðheilbrigðismálum til 2030 • Stjórnarsáttmála um bætta lýðheilsu, aukna velsæld og jafnt aðgengi. Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang: • Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu. • Verkefni með eigin fjármögnun og/eða annað mótframlag. • Verkefni sem ekki eru unnin eingöngu af stofnunum á föstum fjárlögum. Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu. Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2022. Sótt er um á nýju vefsvæði Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.is Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins. Nánari upplýsingar á vef embættis landlæknis. Embætti landlæknis - Katrínartúni 2 - 105 Reykjavík - Sími 510 1900 lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS TRYGGÐU ÞÉR GISTINGU Í TÍMA! SKÍÐAFRÍ TIL ÍTALÍU DINNA OG HELGI TAKA VEL Á MÓTI YKKUR Í ÍTÖLSKU ÖLPUNUM VERÐ FRÁ 148.900 KR Á MANN M.V 3 FULLORÐNA 21. - 28. JANÚAR 2023 INNIFALIÐ ER FLUG, GISTING, FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN ERTU MEÐ HÓP? SENDU OKKUR FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS kristinnhaukur@frettabladid.is MENNING Félag heyrnarlausra stendur nú fyrir útgáfu fyrstu barnabókanna á íslensku táknmáli. Félagið vonast til þess að þær verði sýndar í öllum leikskólum landsins. „Það vantar efni fyrir heyrnar­ laus börn á þeirra eigin móðurmáli. Textað efni er ekki það sama. Tákn­ málið er móðurmálið,“ segir Laila Arnþórsdóttir, ráðgjafi hjá félaginu. Það er dagskrárgerðarmaðurinn Sindri Jóhannsson sem tekur efnið upp, klippir það, vinnur og segir söguna á afar lifandi og líf legan hátt. Tvær bækur hafa þegar verið þýddar og birtar á YouTube. Ann­ ars vegar bókin Pabbi minn og hins vegar bókin I Love You, Stinky Face, sem hefur ekki verið þýdd á íslensku enn þá. „Það væri mjög gaman að sjá þessa lifandi túlkun hans Sindra í leikskólum fyrir öll börn í landinu. Margir eiga erfitt með að tala og skilja, til dæmis innflytjendur, en þetta efni er mjög auðskiljanlegt,“ segir Laila. Sindri segir að þegar sé búið að velja næstu bækur, en söfnun sé einnig í gangi hjá fyrirtækjum og stofnunum til þess að fjármagna útgáfuna. Takmarkið er sett á 2,4 milljónir króna. Til að byrja með verði horft til efnis fyrir börn á aldr­ inum 0 til 8 ára. „Þetta er fyrir börn sem eru nýbyrjuð að læra táknmál. En einn­ ig fyrir fullorðið fólk sem vill æfa sig,“ segir Sindri. Laila segir að heyrnarlaus börn á þessum aldri séu um tíu í dag, en þeim sé að fjölga hratt því að bæst hefur við heyrnarlaust fólk á flótta frá Úkraínu. n Félag heyrnarlausra gefur út fyrstu barnabækurnar á íslensku táknmáli Sindri túlkar barnabókina Pabbi minn. MYND/FÉLAG HEYRNARLAUSRA Þingmaður Viðreisnar hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sorgarleyfi vegna maka­ missis. Hún segir fókus­ punktinn á börnunum og að taka utan um og styðja þær fjölskyldur þar sem móðir eða faðir deyr frá börnum sínum. erlamaria@frettabladid.is ALÞINGI Þorbjörg Sigríður Gunn­ laugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um sorgarleyfi vegna makamissis. Að sögn Þorbjargar er frumvarpið útvíkkun á lögum sem samþykkt voru í sumar, um sorgarleyfi í kjöl­ far barnsmissis. „Þau lög fólu í sér mjög mikilvægt nýmæli um sorgarleyfi fyrir for­ eldra sem misst hafa barn og líka í þeim tilvikum þar sem um er að ræða andvana fæðingar. Það sem ég er að leggja til núna er útvíkkun á því að það sé veitt sorgarleyfi fyrir eftirlifandi foreldri í kjölfar þess að barn missi foreldri sitt. Þá er eftir­ lifandi foreldri í þeirri erfiðu stöðu að þurfa bæði að glíma við sorgina yfir að hafa misst maka og það stóra og þunga verkefni að vera til staðar fyrir barn eða börn sín í kjölfar þess,“ segir Þorbjörg. Hugmyndin og fókuspunkturinn sé á börnin og að taka utan um og styðja um þær fjölskyldur þar sem móðir eða faðir deyr frá börnum sínum. „Þetta eru sorglega mörg börn á litla Íslandi sem á hverju ári standa frammi fyrir þeim veruleika að missa foreldri sitt. Þetta eru rúm­ lega eitt hundrað börn á ári,“ segir Þorbjörg. Að sögn Þorbjargar ríkti þverpóli­ tísk sátt um frumvarpið um sorgar­ leyfi vegna barnsmissis, sem sam­ þykkt var á Alþingi um miðjan júní, þar sem þingmenn hafi sýnt mikinn samhug þegar málið var afgreitt. „Ég held að allir foreldrar geti tengt við þann harm og þá sáru sorg að missa barn, og allir geti skilið að þetta er eitthvað sem hefur þannig áhrif á lífið að það þurfi einfaldlega svigrúm og jafnvel leyfi frá vinnu­ markaði,“ segir hún. Þorbjörg segist bjartsýn á að hún fái að f lytja frumvarpið á Alþingi fyrir jól og bindur vonir við að það geti orðið að lögum sem fyrst. „Þar sem þetta er svo einföld breyting og tæknilega ekki f lókin, þá fannst mér algjörlega ástæðu­ laust að bíða með þetta. Þetta er ekki mál sem allir f lokkar geta ekki sammælst um,“ segir Þorbjörg. „Hugsunin um að það séu hund­ rað börn á Íslandi sem upplifa þetta á hverju einasta ári... þá finnst mér þetta falleg skilaboð til þessara fjöl­ skyldna frá samfélaginu að segja: Við viljum vera til staðar og ætlum að vera til staðar.“ n Foreldri sem eftir lifir fái leyfi til að glíma við sorgina 8 Fréttir 5. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.