Fréttablaðið - 05.11.2022, Blaðsíða 49
Umsjón með starfinu hafa Hildur J. Ragnars
dóttir (hildur@vinnvinn.is) og Margrét
Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is).
Fyrsta verslun Domino’s Pizza á Íslandi var
opnuð þann 16. ágúst 1993 að Grensásvegi 11
í Reykjavík og fyrirtækið hefur vaxið ört síðan
þá. Í dag rekur Domino’s Pizza 23 verslanir
hér á landi. Ellefu þeirra eru í Reykjavík, ein
í Garðabæ, Mosfellsbæ, Akureyri, Akranesi
og á Selfossi og tvær í Kópavogi, Hafnarfirði
og Reykjanesbæ. Domino’s er leiðandi
fyrirtæki á veitingamarkaði og hjá félaginu
starfa um 500 manns. Lögð er áhersla á að
vera úrvals vinnustaður, ekki síst fyrir ungt
fólk, og fræðslu ásamt því gefa starfsfólki
tækifæri á að þróast áfram í starfi. Margir
af lykilstjórnendum félagins í dag hófu störf
sem almennir starfsmenn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Sérfræðingur á fjármálasviði
Domino’s á Íslandi leitar að jákvæðum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á
fjármálasviði fyrirtækisins og tengdum félögum. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir
metnaðarfullan einstakling.
Starfssvið:
• Almenn bókhaldsstörf og skráning reikninga.
• Afstemmingar af lánadrottna og bankareikninga.
• Virðisaukaskattskil og aðrar afstemmingar fjárhagsbókhalds.
• Þátttaka í mánaðarlegum uppgjörum og aðstoð með uppgjörsskýrslur.
• Upplýsingagjöf og skýrslugerð.
• Greiningar í Power BI.
• Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði.
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi. Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
• Þekking og reynsla af bókhaldsstörfum er kostur.
• Greiningarhæfni og góð tölvukunnátta þ.m.t Excel og reynsla af notkun viðskipta- og
upplýsingakerfisins Navision er kostur.
• Þekking á Power BI er kostur.
• Nákvæmni, metnaður og ögun í vinnubrögðum.
• Góðir samskipta- og samvinnuhæfileikar.
• Gott vald á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvars dóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Garðar Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Í dag eru IKEA verslanir rúmlega 446 talsins í
yfir 60 löndum með um 231.000 starfs menn.
Þar af starfar um 470 manna fjölbreyttur,
drífandi og jákvæður hópur fólks við fjölbreytt
og skapandi störf á Íslandi. Við störfum í
lifandi, hröðu og skapandi umhverfi þar sem
framþróun, nýsköpun og jákvæðni er höfð að
leiðarljósi.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Markaðsstjóri
IKEA á Íslandi óskar eftir að ráða öflugan og hugmyndaríkan markaðsstjóra. Viðkomandi þarf að
geta starfað sjálfstætt sem og í teymi við að leysa fjölbreytt verkefni. Mikilvægt er að viðkomandi
sé opinn fyrir breytingum og hafi gott auga fyrir nýjungum. Markaðsstjóri er hluti af yfirstjórn
fyrirtækisins og vinnur í nánu samstarfi við aðrar deildir innan fyrirtækisins.
Verkefna- og ábyrgðarsvið:
• Daglegur rekstur og stjórnun markaðsdeildar.
• Mótun á stefnu og markmiðum markaðsdeildar.
• Ábyrgð á markaðsstefnu og samræmingu við framtíðarsýn fyrirtækisins.
• Umsjón með birtingum á markaðsefni.
• Samstarf við auglýsingastofur í samræmi við markmið fyrirtækisins á heimsvísu.
• Ábyrgð og umsjón með stafrænni þróun tengdri markaðsmálum, t.d. á vef og appi.
• Markaðsstjóri er hluti af „Commercial team“ fyrirtækisins.
• Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði markaðsfræði, framhaldsmenntun í markaðsfræði er kostur.
• Árangursrík reynsla af markaðsmálum og markaðssetningu.
• Leiðtogahæfni, framúrskarandi samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót.
• Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hópi.
• Frumkvæði, fagleg vinnubrögð og metnaður til að ná árangri.
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
ATVINNUBLAÐIÐ 7LAUGARDAGUR 5. nóvember 2022