Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Page 19

Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Page 19
17 Vatnsleysanleg vítamín eru eða þíamín (1,3 mg), B2 eða ríbóflavín (1,4 mg), níasín eða "níkótinik-”sýra (17 mg), Bg eða pyrídoxín (1,6 mg), B12 eSa "cynaeobalamín, cycobemín" (3,0 microg), fólasín (400 microg), pantóþensýra (10 mg). Hér eru upp talin þau vítamín af B-flokknum sem koma við sögu sjúkdóma í fólki, þó sumt sé enn á huldu um verkanir þeirra. Eins og fram kemur á töflunni er hæfilegur skammtur af þessum vítamínum í venjulegu fæði haust og vor 1977 - 78 nema helst fólasínsýru og pentóþensýru. Nokkur vafi mun þó vera á því hvað mikið þarf af slíku. C-vítamín: 74 - 79 mg (RS: 45 mg) Það verður að telja að mjög vel sé séð fyrir C-vítamíni ef dagskammturinn er um 45 mg, en hin mikla sítrusávaxtaneysla gefur börnum milli 60-70 mg á dag og síðan bætist vítamín- notkun enn ofan á þennan skammt. Öðru máli gegnir í rannsókn- inni frá 1938 -40. Þá var víðast hvar töluvert mikill hörgull á C-vítamíni og einnig á þýðingarmiklum B-vítamínum eins og þíamíni (B-^) . Fyrir stríð eða 1938 -39 sáust ekki ávextir á borðum á íslandi, nema rétt um stórhátíðir. Kalk: 1004 - 1188 mg (RS: 1000 - 1200 mg) Sú dagsþörf sem hér er ráðlögð er í hærra lagi og allmiklu hærri heldur en ráðlagt er í nýlegri töflu frá FAO/WHO. Liklegt er að hérlendis verði kröfur að vera í hærra lagi vegna þess að jarðvegur er yfirleitt kalkfátækur. Samkvæmt skólarannsóknum vorið 1978 er meðalneysla kalks mjög nálægt ráðlögðum skömmtum. Um haustið er magnið töluvert lægra og eins í rannsókninni 1938 -40 og fer lægst niður í 71,6% af ráðlögðu magni á haustmánuðum 1938-39. Aðalkalkuppsprettan á Islandi er mjólk og mjólkurafurðir . Fósfór er mjög ríkulegur í fæðu íslendinga, einkum vegna fiskneyslu og kemur sérstaklega vel í ljós í könnuninni fyrir 40 árum. Kjöt er að sjálfsögðu einnig góður fósfórgjafi.

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.