Heilbrigðisskýrslur - 02.12.1982, Page 20
18
Járn: 10,5-11,3 mg (RS: 18 mg)
1 könnunum 1977 - 78 vantar mikið á að ráðlagður járnskammtur
fáist úr fæði skólaunglinganna. 1 rannsókninni 1939 - 40 var
aftur á móti nægilegt járn í fæðunni og var það trúlega að
þakka ríflegri sláturneyslu (í rannsókninni þá var járn 16,9-
17,8 mg) .
Zink: (RS: Zink 15 mg, magníum 250 mg, kopar 2 mg)
Þessi steinefni voru vorið 1978 nokkurn veginn við hæfi, þó
var zinkneysla aðeins neðan við það sem talið er fullnægjandi.
Þess ber þó að gæta, að mikið vantar á að fullnægjandi þekking
sé á þörfum þessara efna fyrir búskap líkamans.
Natríum: 1632 -I947mg (RS: Natríum 500 mg
Kalíum 2000 - )
Natríum og þar með matarsalt er mun meira í fæðu en í ráðlögðum
skammti. Kalíum er vel við hæfi.