Leikhúsmál - 01.06.1997, Side 4

Leikhúsmál - 01.06.1997, Side 4
LEIKHÚSMÁL Undirbúningur næsta leikárs er löngu haf- inn hjá leikhúsunum, að minnsta kosti atvinnuleikhúsunum þremur. Æfingar eru hafnar á nokkrum þeirra verka sem frumsýnd verða í haust og nokkur verk munu flytjast yfir á næsta leikár. En líkt og venjulega er verk- efnavalið meira og minna hernaðar- leyndarmál leikhús- stjóra og nánustu samstarfsmanna, jafnvel þótt æði margir séu búnir að hlera hvað stendur til. Söngleikurinn Fiðlarinn á þak- inu eftir Bock, Stein og Harnick var frumsýndur þann 18. apríl við geysigódar viðtökur. A myndinni má sjá Jóhann Sigurðarson í aðalhlutverkinu, Tevje mjólkur- pósti. framundan Þjóðleikhúsið Þó ekki sé enn búið að tilkynna neitt um verkefni næsta leikárs í Þjóðleikhúsinu má geta sér til um hvernig leikárið fari af stað. Fastlega má gera ráð fyrir að Fiðlarinn á þakinu og Listaverkið, sem frumsýnd voru í apríl við geysigóðar viðtökur, verði tekin upp aftur í haust. Þá voru á verkefhaskránni í vetur tvö verk sem ekki komust að, sænska leikritið Krabbasvalirnar og nýtt leikrit Hall- gríms Helgasonar Vorkvöld með krókódílum. Bæði áttu þau að vera á Smíðaverkstæðinu en velgengni fýrstu sýningarinnar, Leitt hún skyldi vera skækja, hefur verið slík að færri hafa komist að en vildu í vetur, bæði leikrit og áhorfendur. Æfingar eru nýhafnar í Þjóðleikhúsinu á Þremur systrum eftir Anton Tsjekhov. Þetta verður væntanlega fýrsta frumsýning leik- hússins á næsta leikári en fyrirhugað er að frumsýna um miðjan september. Leikstjóri er hinn góðkunni Lithái, Rimas Tuminas, sem kemur nú í þriðja sinn til starfa í Þjóð- leikhúsinu, en áður hefur hann leikstýrt Franska gamanleikritið Listaverkið eftir Yazminu Reza var frumsýnt síðasta vetrar- dag á litla sviði Þjóðleikhússins. Þar fara á kostum Baltasar Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og Ingvar B. Sigurðsson. A myndinni er Hilmir Snær í hlutverki sínu. rómuðum sýningum á Mávinum effir Tsjekhov og Don Juan eftir Moliére. Leik- mynd og tónlist eru í höndum landa hans og félaga nú sem fýrr, þeirra Vytautas Narbutas og Faustas Latenas. Leikfélag Reykjavíkur Hjá Leikfélagi Reykjavíkur eru hafnar æfing- ar á tveimur verkum fyrir haustið. Þetta er annars vegar nýr söngleikur eftir Benóný Ægisson sem fengið hefur heitið Hið Ijúfa líf. Verkið verður frumsýnt í ágústlok á stóra sviði Borgarleikhússins (einn af fimm söng- leikjum sumarsins). Leikurinn gerist á veit- ingastað og greinir ffá lífi og örlögum þeirra sem þar vinna, en gestir blandast gangi mála. Leikstjóri er Þórarinn Eyfjörð og er þetta fyrsta leikstjórnarverkefni hans hjá ,stóru‘ leikhúsunum. Tónlistina semur KK (Kristján Kristjánsson), en hann gerði garð- inn frægan með Leikfélaginu í Þrúgum reið- innar um árið. Jón Ólafsson er tónlistar- 4

x

Leikhúsmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leikhúsmál
https://timarit.is/publication/1744

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.